Meira af fuglum

Ég skrifaði hér nýlega um hann Póló sem heimsótti okkur í sumarbústaðinn okkar í Kjósinni.

Við fengum fleiri góða gesti, því Maríuerlupar kom sér einnig vel fyrir hjá okkur í blómapotti sem hangir utan á gestahúsinu.

Við vorum alltaf svolítið á nálum um það hvort hundarnir okkar eða næturgestir í gestahúsinu myndu styggja parið en svo fór sem beturfer ekki.

Allir lifðu í sátt og samlindi og áður en varði voru komnir nokkrir ungar sem allir komust á legg.

Maríuerla 2
Maríuerla 1

 

Maríuerla

 

Grænmetisgarðurinn

Það dafnar allt í Kjósinni.


Hnúðlaxar athyglisverð frétt

HrygnaMyndin er af fallegri hrygnu sem veiddist í Hrútafjarðará.

 

Þegar frétt um hnúðlax úr Víðidalsá birtist um daginn barst ábending um annan hnúðlax sem hefði veiðst á svipuðum tíma í Selá í Steingrímsfirði. „Hnúðlaxar eru regluleg sjón í íslenskum ám og það er ekki líklegt að þeir hafi áhrif á vistkerfi íslenskra áa.“ segir Sigurður Már Einarsson hjá Veiðimálastofnun

Sigurður sagði í samtali við veiðivefinn að hnúðlaxar hafi lengi veiðst í íslenskum ám. „Þeir fóru fyrst að birtast í evrópskum ám í kringum 1960 en það var vegna tilrauna Sovétríkjanna með að mynda hnúðlaxastofna í rússneskum ám. Fóru þeir þá að flækjast í aðrar ár í Evrópu og þar á meðal til Íslands.“

Aðspurður um hvort þessir fiskar séu allir flökkufiskar sagði Sigurður: „Jú það er nánast öruggt. Það er ekki vitað til þess að hnúðlaxar hrygni í íslenskum ám og því ætti engin vísir að stofni hnúðlaxa að vera kominn upp í íslenskum ám.“

Hvort fiskarnir geti blandast við stofn Norður-Atlantshafslaxins sagði Sigurður: „Nei, þetta eru svo fjarskyldir fiskar. Hnúðlax er uppruninn úr Kyrrahafinu og er einn af mörgum tegundum laxa þaðan. Þetta eru tvær mismunandi ættkvíslir og því ætti ekki að vera mögulegt fyrir þessar tvær tegundir að blandast.“

Fleiri flökkufiskar eru farnir að gera sig heimakomna í íslenskum ám, svo sem sæsteinssugan og flundran. Sigurður segir að allavega flundran sé nú búin að festa sig í sessi sem íslenskur fiskur en sæsteinssugan sem enn finnst aðeins við suðurströndina sé ekki búin að mynda hrygningastofn. Hlýnandi veðurfar og þar af leiðandi breytt skilyrði í sjónum umhverfis landið eru stórir áhrifaþættir í þessari þróun segir Sigurður og líklegt sé að Íslendingar muni sjá fleiri tegundir birtast í íslenskum ám á komandi árum og áratugum.


Eru þetta ekki svakaleg ellimerki???

Eru það ekki svakaleg ellimerki þegar maður upplifir tímann orðið líða skuggalega hratt???

Jú, ég held það.

Það eru brátt sex ár síðan þetta viðtal var tekið við mig og mér finnst eins og það hafi gerst í gær.

Ég held að þetta sé eitt það skemmtilegasta viðtal sem ég hef farið í.

Mikið óskaplega var gaman að fá þessa höfðingja í heimsókn til mín.

http://www.youtube.com/watch?v=ynIHVpA46gg 


Mjög óvænt og skemmtileg heimsókn

Við fengum mjög óvænta, sérkennilega en skemmtilega heimsókn í sumarbústaðinn einn góðan sumardag.

Ég var að smíða eitthvað og vesenast, þegar allt í einu settist við hliðina á mér lítill sætur fugl. Hann var greinilega gæfari en eðlilegt getur talist svo ég bað Línu um að hlaupa inn í bústað og ná í myndavél. Þegar Lína kom út með myndavélina var fuglinn sestur á hausinn á mér og var hinn rólegasti.

Ýmislegt ótrúlegt og óvænt átti eftir að gerast þegar leið á daginn. Fuglinn varð skírður nokkuð fljótlega af heimasætunni og fékk nafnið Póló.

Póló dvaldi hjá okkur fram á kvöld og elti okkur hvert sem við fórum, bæði innan- og utandyra. Þegar við höfðum átt margar góðar stundir með Póló ákvaðum við að fara í langan göngutúr með hann á öxlinni að heimsækja frænku mína sem á bústað í nokkurhundruð metra fjarlægð frá okkar sumarhúsi. Við kynntum Póló fyrir húsráðendum þar, sem voru vitanlega mjög hissa að sjá þennan vin okkar á öxl minni.

Þegar þeirri heimsókn var lokið ákváðum við að komið væri að kveðjustund og kvöddum Póló með því að henda honum upp í loftið, hann flaug á brott og hvarf sjónum okkar.

Vitanlega var svolítill söknuður hjá okkur öllum og þó sér í lagi hjá heimasætunni.

Sagan er samt ekki öll sögð, því nokkrum klukkustundum síðar kom Póló aftur til okkar og dvaldi hjá okkur allt þar til við fórum að sofa en þá settum við hann í pappakassa og fórum með hann út.

Póló var farinn úr pappakassanum morguninn eftir og vonandi er hann nú búinn að koma sér vel fyrir í því umhverfi sem hann á heima.

Við áttuðum okkur fljótt á því að þarna væri sennilega um að ræða fugl sem hafi verið tekinn úr hreiðri, eða í það minnsta ófleygur og alinn upp af mannfólki. Slík umhyggja getur stundum verið varasöm þegar fram líða stundir.

Þá er sagan öll.

Picture 064
Póló nýkomin og sestur á hausinn á mér.
Picture 066
Póló fær vatn og Tryggur fylgist spenntur með.
Picture 184
Birna og Póló.
Picture 185
Seinni heimsóknin hjá Póló og þarna er komið kvöld. Lína og Póló í heilmiklum samræðum.
Picture 186
Póló fékk aðeins að kíkja inn en var að því loknu kvaddur.

  


Viðburðaríkt veiði, hesta- og veislusumar

Þá er þetta blessaða sumar að renna sitt skeið.

Þetta var hið votviðrasama, víðburðaríka veiði, hesta- og veislusumar þar sem nánast hver dagur var bókaður.

Veiðitúrarnir voru frábærir og sá síðasti í Fljótaá var bráðskemmtilegur. Mikið er gaman að veiða í Fljótaá, skemmtilegir veiðistaðir og fallegt umhverfi.

Hestaferð með gömlum skólafélögum í besta veðri sumarsins var óborganleg og grillið á eftir í bústaðum okkar Línu í Kjósinni þar sem makar mættu var sérlega skemmtilegt. 

Stórveislurnar hafa verið nánast hverja helgi. Ættarmót, brúðkaup og afmæli. Í tveimur þeirra gegndi ég hlutverki veislustjóra hjá stórvini mínum Jónda og frænda mínum Trausta. Frábærar veislur báðar tvær og ekki var hún síðri hjá æskuvini mínum Hjalta Úrsusi og Höllu konu hans nú nýlega.

Bæjarhátíð okkar Mosfellinga var frábær þrátt fyrir votviðrasaman föstudag. Þann dag vorum við Lína með opið hús, við buðum upp á súpu og lifandi tónlist á heimili okkar að Álafossvegi. Viðburðurinn var ekkert auglýstur en hjá okkur fóru rúmlega 80 súpuskálar þannig að við áætlum að um 100 manns hafi heimsótt okkur þetta skemmtilega kvöld.

Þarna tróð nýja hljómsveitin mín upp öðru sinni og mikið höfðum við allir hljóðfæraleikararnir gaman af því. Þetta var frábær og heimilisleg stemning.

Hér að neðan koma nokkrar myndir.

 

Hjá Jónda

 

J afm 4
Jóndi og Stefanía glæsileg að vanda.
 
J afm
Með Röggu frænku, Línu og Jökli.
J afm 3
Hljómurinn stóð fyrir sínu að vanda, þarna eru Jóndi og Mundi með Gústa og Hilmari.
J afm 5
Ásta, mamma Jónda, Jökull, Stefanía, Jóndi og Óli Karls.
J afm 7
Þrír snillingar.
J afm 8
Með frænkum mínum, Möggu og Ósk.
J afm 2
Jóndi með Jökli að spila Vor í Vaglaskógi. Ég held að Jökull sé bókaður öllum stundum, enda stórkostlegur söngvari og listamaður.
J afm 1
Gömlu tvö í góðum fíling hjá Jónda.
Hjá Trausta frænda
T afm
Þórður Högna og Trausti.
T afm 3
Jón Sig.
T afm 5
Trausti með Köllu, Þóru systur sinni og Jóni pabba sínum.
T afm 7
Veislustjórinn að tala til frænda.
Sigrún T og K
Trausti með Kristínu sinni og móður, systur minni Sigrúnu.
T afm 8
Trommað með meisturum.
Hjá Hjalta og Höllu
Hjalti og Halla
Halla og Hjalti í sinni frábæru veislu, yndisleg hjón.
Hjalti
Fjöldi góðra gesta var í afmæli Hjalta og Höllu.
untitled
Með æskuvinum mínum, bræðrunum Hjalta, Guðbjarti og Þórhalli.
Í túninu heima hjá Línu og Kalla
Jónki og Ingibjörg
Æskuvinir okkar Línu, Ingibjörg og Jónki mættu eldhress að vanda til okkar í súpupartíið og náðu aldeilis stóru sveiflunni. Á síðari tónleikunum sem haldnir voru í stofunni okkar  sungu þau bæði listavel með okkur hljóðfæraleikurunum.
Lína súpa
Lína súpumeistari.
Súpa 3
Í austurenda Álafossvegar þar sem Óli sonur okkar býr var súpuveislan góða haldin og einnig boðið uppá stofutónleika með nýju hljómsveitinni minni. Fjöldi góðra gesta leit við og var stemningin vægast sagt notaleg og skemmtileg.
Súpa 1 
Hér eru félagarnir í góðum fíling. Þórður Högna á kontrabassa, Ási á nikku og Jón Sig á gítar. Frábærir vinir og félagar sem unun er að spila með. Spilagleðin algjör.
Súpa   
Trausti frændi náði heildarsveiflu og bræddi alla upp úr skónum með söng sínum og framkomu.
Súpa 2
Þórður Högnason tekur frábært bassasóló.

Svakalega sé ég eftir þessum bíl

Um dagana hef ég átt ótal bíla, enda forfallinn bíladellukall. Marga þeirra sé ég oft eftir að hafa látið frá mér fara, þó engum meir en þeim sem sést hér á myndbandinu.

Þetta var fagurblár Saab Sonnet árgerð 1973 sem var eins og nýr að innan sem utan. Ég eignaðist hann árið 1988. Aðeins fáir bílar voru framleiddir af þessari tegund frá Saab og ég held að þetta hafi verið sá eini sem var til á Íslandi.

Ég vann á þessum árum sem bílasali og ég gleymi aldrei þegar eldri maður kom til mín á bílasöluna, þá þekktur bílamaður og spurði mig hver ætti þennan bíl. Ég sagði honum að ég ætti hann og hann spurði mig hvort hann væri til sölu. Ég sagði svo ekki vera. Þegar hann kvaddi mig sagði hann, láttu þennan bíl aldrei frá þér fara.

Viti menn, hvað gerði ég???? Ég fór ekki að ráðum þess gamla.

Nokkrum árum síðar seldi ég hann og kaupandinn seldi hann skömmu síðar eitthvert erlendis. Ég var ungur þá og vantaði aura enda að kaupa íbúð, ekki það að ég hafi fengið fyrir hann eitthvað að ráði, samt eitthvað sem munaði um.

http://www.youtube.com/watch?v=9v_Aa2Nyz-U


Allt í einu er hann að verða svo gamall

Hundar hafa alla tíð verið mér hugleiknar skepnur, reyndar eins og allar aðrar. Ég furða mig oft á því að þeir hafi ekki notið meiri hlýju og ástúðar frá mannfólkinu.

Því miður er sennilegasta ástæða þess að misvitrar mannskepnur hafa tekið þá að sér og misnotað hæfileika þeirra.

Engin skeppna á jarðríki hefur aðlaðast mannfólki eins vel og hundurinn og engin skeppna hefur nokkru sinni komið mannskeppnunni eins oft til bjargar.

Ég hef allt frá því að ég var barn alist upp við að hafa hund á heimili mínu og hef sjálfur eftir að ég varð fjölskyldumaður einnig alltaf átt hund.

Ég er svo fullkomlega viss um hversu góð áhrif það hefur haft á börnin mín að alast upp með hund á sínu heimili.

Bítillinn Paul MCartney sagði eitt sinn að eini fjölskyldumeðlimurinn sem tæki alltaf á móti sér eins og hann væri einn af Bítlunum væri hundurinn hans.

Rússlandskeisari sagði forðum og frægt varð. Þeim mun meira sem ég kynnist manninum þykir mér vænna um hundinn minn. 

Nú er Tryggur okkar að eldast og við erum nánast farin að finna daga mun á honum. Þvílíkur karakter sem hann er og það sem hann hefur gefið okkur.

Hér koma nokkrar myndir af Tryggi, bæði nýjar og gamlar.

Tryggur 10101010
Tryggur 101010
Tryggur 1010
Tryggur 10þ
Ég og Tryggur

Snillingurinn Bjartmar Guðlaugsson

Ég elska þetta lag.

bjartmar-13165

Þetta verður spennandi og er að bresta á

Fljótaá
http://www.youtube.com/watch?v=CvwTPa8wDG8


Aldrei nóg af Buddy

Buddy

http://www.youtube.com/watch?v=9esWG6A6g-k&list=RD026kc97rN4Af0


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband