Hnúðlaxar athyglisverð frétt

HrygnaMyndin er af fallegri hrygnu sem veiddist í Hrútafjarðará.

 

Þegar frétt um hnúðlax úr Víðidalsá birtist um daginn barst ábending um annan hnúðlax sem hefði veiðst á svipuðum tíma í Selá í Steingrímsfirði. „Hnúðlaxar eru regluleg sjón í íslenskum ám og það er ekki líklegt að þeir hafi áhrif á vistkerfi íslenskra áa.“ segir Sigurður Már Einarsson hjá Veiðimálastofnun

Sigurður sagði í samtali við veiðivefinn að hnúðlaxar hafi lengi veiðst í íslenskum ám. „Þeir fóru fyrst að birtast í evrópskum ám í kringum 1960 en það var vegna tilrauna Sovétríkjanna með að mynda hnúðlaxastofna í rússneskum ám. Fóru þeir þá að flækjast í aðrar ár í Evrópu og þar á meðal til Íslands.“

Aðspurður um hvort þessir fiskar séu allir flökkufiskar sagði Sigurður: „Jú það er nánast öruggt. Það er ekki vitað til þess að hnúðlaxar hrygni í íslenskum ám og því ætti engin vísir að stofni hnúðlaxa að vera kominn upp í íslenskum ám.“

Hvort fiskarnir geti blandast við stofn Norður-Atlantshafslaxins sagði Sigurður: „Nei, þetta eru svo fjarskyldir fiskar. Hnúðlax er uppruninn úr Kyrrahafinu og er einn af mörgum tegundum laxa þaðan. Þetta eru tvær mismunandi ættkvíslir og því ætti ekki að vera mögulegt fyrir þessar tvær tegundir að blandast.“

Fleiri flökkufiskar eru farnir að gera sig heimakomna í íslenskum ám, svo sem sæsteinssugan og flundran. Sigurður segir að allavega flundran sé nú búin að festa sig í sessi sem íslenskur fiskur en sæsteinssugan sem enn finnst aðeins við suðurströndina sé ekki búin að mynda hrygningastofn. Hlýnandi veðurfar og þar af leiðandi breytt skilyrði í sjónum umhverfis landið eru stórir áhrifaþættir í þessari þróun segir Sigurður og líklegt sé að Íslendingar muni sjá fleiri tegundir birtast í íslenskum ám á komandi árum og áratugum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband