Færsluflokkur: Bloggar
mið. 26.6.2013
Það er ekki sama hvernig breitt er á
Ábreiða er eitt af fjölmörgum skemmtilegum orðum sem hafa komið upp í íslenskri tungu, þar sem átt er við þegar gömul lög eru sett í nýjan búning.
Við Gildrufélagar tókum upp og gerðum tvær ábreiður á ferlinum og settum þær báðar í okkar búning, það voru lögin, Vorkvöld í Reykjavík og House of the rising sun. Bæði lögin náðu vinsældum og þó sér í lagi útgáfa okkar af gamla Vorkvöldinu, hún sló í gegn.
Í dag trónir efst á vinsældarlista Rásar tvö ábreiða Mosfellsku hljómsveitarinnar Kaleo með lagið, Vor í Vaglasskógi og mikið ósköp er ég ánægður með hvað þeim félögum tókst vel upp með lagið og sína útgáfu af því.
Ég hef verið svo heppinn að sjá þá félaga í Kaleo vaxa og dafna og upplifa spilagleðina og óbilandi áhuga. Þeir félagar í Kaleo eru æskuvinir Óla sonar míns og hafa því verið tíðir gestir á mínu heimili.
Mér er minnisstætt þegar Jökull söng fyrir okkur Línu, einn með gítarinn, Vor í Vaglaskógi og við vorum bæði sannfærð um að þetta ætti eftir að ná langt hjá þeim.
Í dag virðist sem fátt sé vinsælla hjá Íslenskum tónlistarmönnum en að halda tribute tónleika þar sem helsta áhersla virðist lögð á að gera þetta allt saman nákvæmlega eins og það kom upprunalega út og litlu sem engu er breytt eða bætt við. Ég get ekki með nokkru móti skilið áhuga á slíkri spilamennsku á tónleikum.
Það eru fá dæmi um að ábreiður virki þar sem tónlistarmenn og flytjendur bæta litlu sem engu við.
Hér að neðan má sjá og heyra Kaleo flytja Vor í Vaglaskógi og Gildruna leika House of the rising sun á tónleikum í Hlégarði í maí 2010.
P.s. Eru Mosfellskar hljómsveitir ekki nokkuð góðar í ábreiðum þegar þær taka sig til???
http://www.youtube.com/watch?v=OIk44XofHSE
http://www.youtube.com/watch?v=OKfSxYuMS8Q
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 17.6.2013
Gildran og samstarf okkar félaga frá árinu 1979
Við félagarnir í Gildrunni vorum að fá sent myndband sem tekið var upp á tónleikum sem við gleymum seint, tónleikum sem við héldum í tilefni af 30 ára samstarfi okkar og haldnir voru í Mosfellsbæ í maí 2010.
http://youtu.be/OKfSxYuMS8Q
Steel guitar
Steel guitar er hljóðfæri sem tekur nokkurn tíma að meðtaka og ná sáttum við en þegar það gerist er ekki aftur snúið. Þannig var það a.m.k. hjá mér.
Hér að neðan kemur myndband með einum fremsta steel guitar leikara heims sem er jafnframt í miklu uppáhaldi hjá Sigurgeiri.
mán. 18.7.2011
Gildran á Spot í Kópavogi
http://www.facebook.com/#!/pages/Gildran/117874914893638
Fiðringurinn mun hljóma á SPOT næstu helgi. Þetta er upptaka frá tónleikunum Gildrunnar í Hlégarði í maí á síðasta ári og sú fyrsta sem er birt á DVD frá tónleikunum.
GILDRAN á SPOT laugardagskvöldið 23. Júlí.
Það þarf ekki að fjölyrða um að Gildran er eitt stærsta nafn íslenskrar rokksögu, skipuð einum fremstu tónlistarmönnum landsins og hafa fyrir löngu skipað sér á stall með bestu rokksveitum Íslandssögunnar.
Síðast þegar Gildrumenn spiluðu á höfuðborgarsvæðinu var rúmlega húsfyllir og þurftu margir frá að hverfa.
Við hvetjum alla unnendur íslenskrar rokktónlistar til að láta þetta EKKI framhjá sér fara og endilega segðu vinum þínum frá ;-)
Aftureldingarlagið
Hér má heyra nýja útgáfu af baráttulagi Aftureldingar sem við Gildrufélagar sömdum upphaflega fyrir félagið árið 1994 en vorum nú að setja í nýjan búning í maí síðastliðinn.
Lagið færðum við félaginu formlega að gjöf nú á dögunum.
http://youtu.be/dnqfSL-cAY4
Slíkt má sannarlega segja um þá feðga, Sigurgeir, félaga minn úr Gildrunni og Davíð son hans sem stefnir jafnvel í að verða betri en pabbinn á gítarinn og þá er nú mikið sagt.
Það er einnig kostulegt að þeir eru bókstaflega eins á sviði með hljóðfærið í hönd
Nútímakona
Allar tilraunir okkar Gildrufélaga til að reyna vera fyndnir í textum hafa mislukkast. Sennilega er það vegna þess að við höfum verið svo heppnir að starfa með frábærum textahöfundum sem hafa samið fyrir okkur svo innihaldsríka og góða texta.
Því virðist sem gagnrýnendur hafi ekki gefið okkur félögunum tækifæriá að gantast öðru hverju, heldur tekið bullinu í okkur alvarlega þegar við höfum sjálfir reynt að hnoða einhverju saman.
http://www.youtube.com/embed/XJl4A2p76LI
Hún er flott þessi.
Gamlar upptökur með Gildrunni
Þeirra á meðal er nýjasta hljóðverslag okkar Blátt blátt og einnig af nýju plötunni okkar Vorkvöld, ásamt ýmsu öðru.
http://www.formula1movies.net/gildran/
Það er gaman fyrir okkur Gildrufélaga að lag okkar, Huldumenn, er hástökkvari vikunnar á vinsældarlista Rásar 2. Hver veit nema að hinn þjóðlegi taktur í laginu og baráttuandi í texta þess hafi góð áhrif á hlustendur.
Okkur íslendingum veitir ekkert af baráttuanda nú um mundir.
Það er óneitanlega gaman að upplifa það að titillag á fyrstu hljómplötu okkar Gildrufélaga, Huldumenn, sé nú bókstaflega farið að skríða upp á vinsældarlista á útvarpsstöðvum tæpum 24 árum eftir að það var gefið út.
Val á fyrsta lagi tónleikanna og um leið þá á plötunni var pínu hausverkur, því verður ekki neitað, en eins og fyrri daginn komumst við allir að samkomulagi. Lagið skal verða Huldumenn.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Takk fyrir okkur
Takk fyrir frábærar móttökur á nýju plötunni okkar og tónleikum undanfarið.
Við erum allir, gömlu rokkararnir, bókstaflega í skýjunum.
Við ætlum að fara um allt land á nýju ári og spila fyrir landa okkar.
Sjáumst eldhress.
Gildran.
Platan okkar verður komin í allar helstu plötubúðir landsins mánudaginn 8. nóvember.
Við ætlum að halda glæsilega útgáfutónleika í Austurbæ föstudaginn 12. nóvemer.
Sjáumst vonandi sem flest!!!

Gamla Gildrurútan var engu lík. Loftur Ásgeirsson bílstjóri Gildrunnar lét innrétta hana fyrir okkur með stæl. Það væsti ekki um okkur félagana í Gildrurútunni.
Út kom út árið 1992
Gildran var stofnuð árið 1986 og frá stofnun hefur hún gefið út 6 hljómplötur: Huldumenn (1987), Hugarfóstur (1988), Gildran 1989, Ljósvakaleysingjar (1990), Út (1992) og Gildran í 10 ár (1997). Sjöunda plata þeirra, Vorkvöld (2010), er fyrsta hljómleikaplata þeirra félaga. Á henni er ennfremur hljóðversúgáfa af nýjasta lagi þeirra Blátt blátt sem er eftir Birgi Haraldsson við texta Vigdísar Grímsdóttur.
Í tilefni af útgáfunni efna Gildrumenn til útgáfutónleika þar sem öllu verður tjaldað.
Tónleikarnir verða föstudagskvöldið 12.nóvember í Austurbæ í Reykjavík.
fim. 28.10.2010
GILDRAN ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Í AUSTURBÆ
Platan okkar verður komin í allar helstu plötubúðir landsins mánudaginn 8. nóvember.
Við ætlum að halda glæsilega útgáfutónleika í Austurbæ föstudaginn 12. nóvemer.
Hins vegar tökum við generalprufuna okkar í Logalandi laugardaginn 6. nóvember.
Sjáumst vonandi sem flest!!!

Hin goðsagnakennda rokkhljómsveit Gildran fagnar nú útkomu nýrrar tónleikaplötu sem ber nafnið Vorkvöld.
Gildran var stofnuð árið 1986 og frá stofnun hefur hún gefið út 6 hljómplötur: Huldumenn (1987), Hugarfóstur (1988), Gildran 1989, Ljósvakaleysingjar (1990), Út (1992) og Gildran í 10 ár (1997).
Í tilefni af útgáfunni efna Gildrumenn til útgáfutónleika þar sem öllu verður tjaldað.
Tónleikarnir verða föstudagskvöldið 12.nóvember í Austurbæ í Reykjavík.

Gildran í Rokklandi
Við félagarnir vorum í skemmtilegum Rokklandsþætti hjá Óla Palla á sunnudaginn var. Þar flutti hann alla plötuna okkar sem við hljóðrituðum í Mosó í vor og spjallaði við okkur á milli laga.
Þátturinn verður endurfluttur í kvöld, þriðjudag 21. sept kl: 22:00 á Rás 2.
Hér að neðan er slóðin á þáttinn.
http://dagskra.ruv.is/ras2/4558231
/2010/09/19/
Dýrðlegt er í Dalnum
Dalurinn hefur alla tíð verið mér hugleikinn og ekki síst það góða fólk og vinir mínir sem þar búa.
Þegar ég kynntist Línu minni fyrir margt löngu síðan, bráðum 30 árum, sagði hún mér margar sögur frá afa bústað í Mosfellsdalnum. Þaðan átti hún margar ógleymanlegar stundir. Afabústaður, svokallaður, og landið í kringum hann, var innarlega í Dalnum, mótsvið núverandi Skógræktarstöðina Grásteina. Þar ræktuðu afi og amma Línu upp stóra jörð sem glöggt má sjá í dag.
Sjáumst næst í okkar óborganlega Dal á styrktartónleikum fyrir skjólstæðinga Reykjadals.
Dýrðlegt er í Dalnum,
umvöfnum fjallasalnum,
Þar eru: Rósabændur og söngfuglar,
grautvíxlaðir graðfolar,
yxna kýr og ofvitar,
nóbelsskáld og gullmolar,
frekjusvín og drykkjusvolar,
ljóðskáld og þurfalingar,
hestamenn og monthanar,
þingmenn og snillingar,
listamenn og letingjar,
klerkur, kirkja,
ég er hættur að yrkja.
Óskar Þ.G. Eiríksson
Fimmtudagskvöldið 9 september nk. verða haldnir útitónleikar í Reykjadal í Mosfellsdal.
Þetta eru styrktartónleikar.
Allir listamennirnir og allir sem að þessu koma gefa vinnu sína.
Tónleikarni hefjast kl 20.00.
Um leið styrkið þið gott málefni.
Sjáumst í Túninu heima
Við félagar komum næst saman á bæjarhátíðinni Í Túninu Heima í Mosó þann 28.ágúst. Við spilum á stórdansleik í íþróttahúsinu að Varmá.
Sjáumst hress!!!
Meyjan hrein
Gildran Hér er lifandi útgáfa af "Mærinni" sem er á tónleikaplötunni okkar "Vorkvöld" sem kemur út í ágúst. Gaman væri að heyra hvað ykkur finnst...
http://www.youtube.com/watch?v=LzMd48pSyEQ
Bestu kveðjur, Gildran.
Sjá meira

www.youtube.com
Lagið Mærin af fyrstu plötu gildrunnar í live útgáfu 1. Maí 2010 Birgir Haraldsson Söngur, Gítar, Þórhallur Árnason Bassi, Karl Tómasson Trommur Sigurgeir Sigmundsson Gítar
Á fljúgandi uppleið
Við gömlu mennirnir í Gildrunni erum nú á fljúgandi uppleið á vinsædarlista Rásar tvö með nýja lagið okkar Blátt blátt.
Hér að neðan er hægt að hlusta á lagið. Blátt blátt er fallegt lag sem vinnur hægt og sígandi á eins og mörg góð lög. Textinn er eftir Vigdísi Grímsdóttur rithöfund og sá fyrsti sem hún semur við dægurlag.
http://www.facebook.com/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.youtube.com%2Fwatch%3Fv%3DomX0mMlsd9w&h=78343HiM_-FHi4qMzhkEu_33TYg
Gildran - Blátt Blátt
www.youtube.com
Nýtt lag

Viðtal við Gildruna
http://dagskra.ruv.is/ras2/4521967/2010/04/28/
sun. 16.5.2010
Gildran live í Mosó
Dagskrárgerðarmaðurinn góðkunni, Ólafur Páll Gunnarsson, (Óli Palli) frumflutti í dag í þætti sínum Rokklandi á Rás 2 þrjú lög af tónleikum Gildrunnar Í Hlégarði.
Hér fyrir neðan er slóðin á þáttinn. Lög okkar Gildrufélaga flutti hann að lokinni kynningu á Stranglers svona um það bil um miðbik þáttarins.
Semsagt hér kemur splúnkunýtt efni frá tónleikunum í Mosó.
http://dagskra.ruv.is/ras2/4519255/2010/05/16/

Tónleikar sem við gleymum aldrei
Tónleikar okkar félaganna í Gildrunni í gær munu aldrei nokkru sinni renna okkur úr minni. Andrúmsloftið og stemningin í Hlégarði var hreint stórkostleg. Við félagarnir erum innilega þakklátir og bókstaflega hrærðir.
Takk fyrir okkur.
Hér koma nokkrar myndir af síðustu æfingunni fyrir tónleika.
3. maí 2010
Hér koma myndir af tónleikunum.
Alsælir í pásu í góðum félagsskap.
Eftir tónleikana

Kærar þakkir
Nú styttist í tónleika okkar Gildrufélaga og hefur allt gengið eins og í sögu hjá okkur fram að þessu. Æfingarnar hafa verið sérlega skemmtilegar og erum við allir klárir í slaginn.
Við erum mjög þakklátir fyrir þá stemningu og þann meðbyr sem við höfum fundið fyrir úr öllum áttum undanfarna daga.
Kærar þakkir fyrir góðan stuðning og sjáumst eldhress í löngu troðfullum Hlégarði á morgun.
Hér fyrir neðan getið þið heyrt nýja lagið okkar og séð slóðina á facebook síðu Gildrunnar.
Nýtt lag með Gildrunni
Nú höfum við félagarnir í Gildrunni lagt lokahönd á upptökur af nýju lagi. Þetta er okkar fyrsta hljóðritun í langan tíma. Lagið er eftir, Birgi Haraldsson, söngvara og textinn eftir, Vigdísi Grímsdóttur, rithöfund. Þetta lag hljóðrituðum við í tilefni 30 ára samstarfsafmælis okkar.
Vonandi fellur ykkur við okkar nýjasta lag.
Einnig bendi ég hér á slóðina á Facebook síðu Gildrunnar:
http://www.facebook.com/pages/Gildran/117874914893638?v=wall&ref=ts

Forsala aðgöngumiða
mán. 29.3.2010
Gömlu meistaraverkin
Eins og ég hef skrifaði um áður hér hjá mér, þá hef ég ætlað mér að koma með fréttir af gangi mála hjá okkur gömlu Gildrumönnum við undirbúning tónleika okkar í Mosó þann 1. maí í tilefni af 30 ára samstarfsafmæli.
Upptakan er úr gömlum þætti hjá Hemma Gunn á tali.
Það er búið að vera svooooo gaman hjá okkur
Við gömlu félagarnir í Gildrunni undirbúum nú af krafti tónleika okkar sem haldnir verða í Hlégarði þann 1. maí.Eins og ég hef skrifað um hér áður eru þeir haldnir í tilefni af 30 ára samstarfsafmæli okkar.
Hér læt ég eitt gamalt og gott fylgja með þessari færslu minni.
sun. 21.2.2010
Vorkvöld í Reykjavík
Undanfarna daga hef ég sett hér inn á bloggið mitt nokkur lög með Gildrunni. Ástæða þess, er vegna fyrirhugaðra tónleika okkar félaga þann 1. maí í Mosfellsbæ til að fagna 30 ára samstarfsafmæli okkar.
Lagið hljóðrituðum við árið 1990 og það kom út á hljómplötu okkar Ljósvakaleysingjar og hér kemur það.
fös. 19.2.2010
Fiðringur
Fiðringur var eitt af þeim lögum sem við sömdum og kom út sem bónuslag á safnplötu okkar Gildran í 10 ár.
Það er í senn einföld en mögnuð mellódía eins og Bigga er lagið.
Sjáumst 1. maí á Gildrutónleikum í Mosó.
fös. 19.2.2010
Ég er að koma
Ég er að koma, var eitt af nýju lögunum sem fylgdi með á tvöfalda safndiski okkar, Gildran í 10 ár. Lagið sömdum við félagarnir saman og textinn er eftir mig og Þórhall. Þetta er sannkallaður karlrembuóður eins og þeir gerast bestir.
Þetta tvöfalda albúm hljómsveitarinnar seldist fljótt upp og er ófáanlegt í dag.
Værð
Lagið Værð á sinn stað hjá okkur félögum, einlægt og fallegt. Lagið kom út á okkar annarri hljómplötu, Hugarfóstri.
Lagið höfum við m.a. spilað margsinnis, bæði við brúðkaup og jarðafarir.
Þú komst með vorið
um vetrarnótt
og vaktir huga minn
í húminu værðist vindurinn
hann himneskan
heyrði sönginn þinn
Um ástir og eilífan dans
Þú söngst í Rjóðri
um sólarlag
og fluttir sálminn þinn
í kyrrðinni
kvaddi helkuldinn
hann heilagan
kveikti neistann minn
Um ástir og eilífan dans
Þú varst með völdin
um vetrarnótt
og sýndir styrkinn þinn
á heiðinni
heyrðist hljómurinn
hann háfleygan
hreyfði drauminn minn
Um ástir og eilífan dans.
sun. 14.2.2010
Meyjan hrein
Mærin kom út á okkar fyrstu hljómplötu, (Huldumenn) Lagið sló í gegn og hefur verið eitt af okkar vörumerkjum alla tíð síðan. Á bakvið lagið er skemmtileg saga.
Sú hreina mey sem við fjöllum um í laginu virðist af mörgum hafa verið misskilin hjá okkur.
Það var ekki sú sama og Madonna söng um á sínum tíma.
Gildran 1. maí 2010 í Mosó
Nú er ljóst hvenær við gömlu félagarnir í Gildrunni ætlum að koma saman að nýju og fagna 30 ára samstarfsafmæli.
Laugardagurinn 1. maí 2010 í Hlégarði er málið.
Sjáumst hress í gamla Hlégarðinum okkar 1. maí 2010.
Textinn er eftir Þóri Kristinsson.
Vorbragur
Vaknar allt á vorin
Vermir sólin landið
Grænu laufin borin
Brotið verður bandið
Blíður syngur blærinn
Brosir gulli sólin
Vaknar aftur bærinn
Börnin vantar í bólin
Opin Laugarvegur
Iðar Austurstræti
Digur andann dregur
Dúfa í heiðursæti
Fuglum iðar tjörnin
Fegra loftið sönginn
Brauði kasta börnin
Dapur er nú enginn
Situr bakvið sundin
Esjan undur fríða
Léttist aftur lundin
Dýrðar dagar líða.
mið. 20.1.2010
Rokk og ról í Mosó
Það ríkir mikil stemning í Mosó þessa dagana. Allt stefnir í metaðsókn á þorrblótið og Gildrutónleikarnir verða svakalegir.
Sjáumst hress á blótinu
mið. 13.1.2010
Gítarveisla Bjössa Thor
Gítarleikararnir sem fram komu á tónleikunum.
Í lok síðasta árs, stóð gítarleikarinn góðkunni og magnaði, Björn Thoroddsen, í fjórða skipti á jafn mörgum árum fyrir tónleikum þar sem allir fremstu gítarleikarar landsins koma fram. Um þetta fjallaði ég hér á síðu minni á dögunum og birti viðtal, Bjössa Thor, við Sigurgeir Sigmunds, Gildrugítarleikara af þessu tilefni.
Sigurgeir í góðri sveiflu með Gildrunni í afmæli mínu. Hjalti Úrsus vel með á nótunum.
Í gær, kíkti ég í kaffi til Sigurgeirs á skrifstofu Fíh og ræddum við aðallega fyrirhugaða tónleika Gildrunnar í Mosó. Í samtali okkar, stakk ég því reyndar að Geira, hvað mér hafi fundist gaman af viðtali Bjössa Thor við hann á dögunum. Eins og fyrri daginn, ef ég nefni einhvern á nafn, þá er sá hinn sami mættur á svæðið skömmu síðar eins og ég hef skrifað um hér áður. Á því varð engin undantekning í gær, því skömmu eftir að ég nefndi Bjössa á nafn var kappinn mættur, þar sem við Geiri sátum tveir í mestu makindum að spjalla yfir góðum kaffibolla.
Þarna var hann mættur með glóðvolgan diskinn sem hljóðritaður var á gítartónleikunum góðu í Salnum í lok árs, eins og áður sagði og færði okkur Geira sitthvort eintakið. Það er óhætt að mæla með þessum grip, þar sem margir fremstu gítarleikarar landsins fara hreint á kostum.
Diskurinn nýútkomni
Björn Thoroddsen spilaði margoft á Álafoss föt bezt á sínum tíma og mætti alltaf með einvala lið tónlistarmanna með sér. Þeir voru margir ógleymanlegir og magnaði tónleikarnir sem hann hélt þar.
Til hamingju með diskinn Bjössi og takk fyrir mig.
lau. 2.1.2010
Robin Nolan heimsóknin var einstök og ógleymanleg
Ég var að hlusta á þáttinn, Blár nótur í bland, á rás 1, í umsjá, Ólafs Þórðarsonar, (Í Ríó Tríó) Hann spilaði eitt sinn á sérlega skemmtilegum tónleikum á Álafoss föt bezt ásamt Bjössa Thor og félögum.
Robin Nolan, er í dag heimsþekktur gítarleikari og þykir af mörgum vera snillingur. Tengsl hans við Ísland eru svolítið skemmtileg og sérstök saga.
Þórður heillaðist af hljóðfæraleik þeirra félaga og bauð þeim að koma til Íslands og spila, sem þeir
Þetta voru án vafa einir flottustu tónleikar sem þar voru haldnir.
Þórður Pálma á vafalítinn þátt í því og Íslandsáhugi gítarleikarans er greinilegur eins og heyra má á myndbandinu sem ég læt hér fylgja með.
Gildran kemur saman á ný
Nú höfum við félagarnir í Gildrunni ákveðið að koma saman á ný og að sjálfsögðu verða tónleikarnir í okkar heimabyggð. Tilefnið er 30 ára samstarf okkar félaga.
Um þetta mun ég fjalla nánar hér á síðunni minni þegar nær dregur.
Hér fyrir neðan má heyra eitt gamalt og gott með Gildrunni.
Raunarsaga 7:15
Árið 1991 gerði Guðmundur Þórarinsson, betur þekktur, sem Mummi í Mótorsmiðjunni kvikmyndina Raunarsaga 7:15, með Rósu Ingólfs, í aðalhlutverki.
Karl Tómasson
mán. 21.12.2009
Á tali fyrir tuttugu og einu ári síðan
Það var var gaman að koma í þáttinn hans Hemma Gunn á sínum tíma. Annan eins viðbúnað og tilstand vegna eins sjónvarpsþáttar var fróðlegt að sjá. Hemmi Gunn, alltaf jafn þægilegur og skemmtilegur, allra manna hugljúfi.
Karl Tómasson
þri. 15.12.2009
Gítarsnillingar spjalla
Hér fyrir neðan má sjá nýlegt og fróðlegt viðtal sem Björn Thoroddsen, gítarleikari, tók við Sigurgeir, Sigmundsson, gítarleikara.
Jú!!! Eitt enn, hlustið endilega á Fiðring, gamalt og gott lag með Gildrunni sem er í spilaranum mínum hér á síðunni. Þar fer Geiri oft sem áður á kostum í lagi sem hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér.
Karl Tómasson
mið. 25.11.2009
Síðan eru liðin 21 ár
Karl Tómasson

Birgir og félagar í Lágafellskirkju
Fyrir nokkru síðan, skrifaði ég hér um fallega og einlæga sólóplötu vinar míns og félaga, Birgis Haraldssonar, söngvara Gildrunnar, sem nýlega kom út og ber nafnið, Sjáumst á ný.
Texta plötunnar á Þórir Kristinsson, gamli textahöfundur okkar Gildrufélaga en hann vann þessa plötu náið með Bigga undanfarin þrjú ár.
lau. 19.9.2009
Sjáumst á ný
Eins og ég hef skrifað um hér áður lauk vinur minn og félagi, Birgir Haraldsson, nýlega við gerð sinnar fyrstu sóló plötu, sem ber heitið, Sjáumst á ný.
Þessi fallega og persónulega plata Bigga, vinnur sannarlega á með hverri hlustun.
fös. 17.7.2009
Tónlistarveisla
Nýlega skrifaði ég um væntanlega sólóplötu vinar míns og félaga, Birgis Haraldssonar. http://ktomm.blog.is/blog/ktomm/entry/895718

Myndin er tekin að loknum tónleikunum og eins og sjá má er Eiki vel sveittur.

Mikill meistari heimsækir okkur um helgina
Ken Hensley, hljómborðsleikari Uriah Heep og lagahöfundur margra þekktust laga þeirrar mögnuðu hljómsveitar er væntanlegur til landsins á morgun. Til landsins kemur hann til að fagna 50 ára afmæli vinar síns og félaga, Eiríks Haukssonar.
fös. 12.6.2009
Sjáumst á ný
Birgir, vinur minn, Haraldsson, var rétt í þessu að færa mér sjóðheita sína fyrstu sólóplötu beint úr masteringu. Hljómplötu sem hann og Þórir Kristinsson, textahöfundur Gildrunnar, hafa verið að vinna að undanfarin þrjú ár.
Mikið getið þið kæru vinir, Biggi og Þórir, verið stoltir af þessari plötu.
Jói hefur sannarlega lagt sitt af mörkum, það er nú annaðhvort.
Elsku Biggi minn og Þórir. Innilegar hamingjuóskir.
Eiríkur Hauksson 50 ára 4. júlí
Nú er ljóst að söngvarinn góðkunni, Eiríkur Hauksson mun halda upp á 50 ára afmæli sitt með stórtónleikum á Íslandi þann 4. júlí.
Kapparnir úr Start, sem naut mikilla vinsælda um þær mundir, tóku okkur sveitamönnunum úr Mosó opnum örmum. Sú vinátta hefur varað alla tíð síðan, einlæg og góð.
Eiki Hauks, Kalli Tomm og Pétur Kristjáns. Þarna heldur Pétur á uppáhalds plötualbúmi sínu, saumaða albúmi Gildrunnar.
Gildrumezz ásamt Eika. Myndin er tekin fyrir tónleika á Akureyri.
Billi Start og Kalli Tomm á Álafoss föt bezt í Mosó. Billi var um árabil helsti aðstoðarmaður og vinur félaganna í Start og seinna okkar félaganna í Gildrunni.
Hamingjuóskir með frábæra plötu, sem er ykkur sannarlega til sóma.
mið. 6.6.2007
Tók sjensinn á sprellanum
Allflestir tónlistarmenn hafa frá skemmtilegum sögum að segja.
Ferðalög um landið okkar þvert og endilangt, allan ársins hring, á öllum tímum sólarhringsins og tónleikahald á ólíklegustu stöðum hafa oft orðið að ævintýrum og uppákomum sem seint gleymast.
Ég hef allnokkru sinnum verið beðinn um að segja frá þeim ævintýrum sem við Gildrufélagar lentum í á löngum ferli okkar og skorast ég ekki undan því, svona öðru hvoru að minnsta kosti.
Eflaust kann einhverjum að þykja sögurnar ekki sæmandi en það verður þá bara að hafa það. Ég ætla nú samt að fara varlega í sakirnar.
Nú koma tvær.
Einu sinni vorum við félagarnir að spila á hörku balli um verslunarmannahelgi og eins og gengur og gerist vill oft teygjast úr slíkum böllum.
Þórhallur að taka sitt óborganlega stef í upphafi Mærinnar
Að balli loknu fórum við félagarnir upp á herbergi og fengum okkur smá hressingu fyrir svefninn. Við vorum á hótelherbergi sem var ekki með sturtu heldur var hún í hinum enda gangsins. Það var töluverður spölur út ganginn til að komast í þá aðstöðu.
Einn okkar sagðist endilega vilja komast í sturtu fyrir svefninn og við sögðum honum endilega að gera það, enda sveittur og ómögulegur að loknu góðu balli. Hann sagðist ekki vera með handklæði og bað okkur um að lána sér eitt slíkt þar sem hann stóð orðið hálfnakinn fyrir framan okkur á hótelherberginu. Við sögðum við félagann að fara bara úr hverri spjör og spretta bara úr spori út ganginn, það væri allt seif á þessum tíma sólarhrings.
Hann lét til leiðast og spretti úr spori með sprellann dinglandi í allar áttir. Þegar vinurinn var kominn rúmlega hálfa leið kom miðaldra kona úr einu herbergjanna og stóðu þau saman frosin í dágóða stund. Viti menn haldið þið ekki að frúin hafi tekið upp á því að öskra á ganginum eins og ljón. Í kjölfarið opnuðust einar og einar dyr með reglulegu millibili á meðan okkar maður kom sér til baka.
Hann sleppti sturtunni þennan morguninn og lét lítið fyrir sér fara morguninn eftir.
Hin sagan gerðist fyrir vestan.
Okkur félögunum var boðið að fara í skoðunarferð að gömlum skreiðarhjalli undir leiðsögn heimamanns og mikils sérfræðings í harðfisksverkun. Þegar við renndum í hlað og stóðum fyrir utan hjallinn kom rúta full af bandarískum ofurkurteisum túristum. Sennilega eldri borgarar.
Við félagarnir ákváðum að gera smá tilraun með það hvort okkur tækist að láta hvern einasta túrista þurrka af skónum áður en hann færi í skreiðarhjallinn sem að sjálfsögðu var bara með malargólfi.
Það varð úr að hljóðmaðurinn fékk það verkefni að fara fyrstur í röðina og hann átti að ofurþurrka þannig af skónum að það færi ekki fram hjá nokkrum manni. Hann klikkaði ekki á því og gerði það þannig að mikill sómi var af. Þarna átti enginn að fara inn á skítugum skónum.
Það var eins og við manninn mælt, hver einasti túristi stóð á mölinni fyrir framan hjallinn og þurrkaði nánast sólann undan skónum.
Aumingja leiðsögumaðurinn reyndi ítrekað að fá fólkið til að átta sig á því að þess væri ekki þörf án nokkurs árangurs.
Nóg að sinni.
Kær kveðja frá Kalla Tomm.
þri. 31.3.2009
Hér heyrið þið frumflutning á nýju lagi sannkallaðra meistara
Ég fékk sérlega skemmtilegt og frumlegt símtal í dag, þar sem þess var farið á leit við mig hvort ég væri tilbúinn til þess að frumflytja nýtt lag á bloggsíðu minni.
Kalli Tomm.
CCREYKJAVÍK eru:
Birgir Haraldsson: Söngur
Ingólfur Sigurðsson: Trommur, slagverk og milliraddir
Jóhann Ásmundsson: Bassi, hljómborð og forritun
Sigurgeir Sigmundsson: Kassa-, raf-, kjöltu- og pedal stál gítar
Aðrir hljóðfæraleikarar
Þórir Úlfarsson: píanó í Rockn all over the world og orgel í I put a spell on you
Eiríkur Hauksson söngur í It came out from the sky og Rockin all over the world
Upptökur fóru fram í hljóðveri FÍH, gítarvinnustofunni í Löngubrekku, hljóðveri Jóhanns Ásmundssonar í Laugarnesi og í Furunni hljóðveri Þóris Úlfarssonar á tímabilinu maí 2008 til mars 2009.
Upptökum stjórnaði Jóhann Ásmundsson
Aðstoðarmaður í hljóðveri: Ásmundur Jóhannsson
Útsetningar samvinnuverkefni CCREYKJVÍK
Hljóðblöndun gerði Jóhann Ásmundsson í hljóðveri sínu í Laugarnesi
Hönnun: Nikulás Róbersson
Prentun: Ljósrit og prent
Framleiðsla: Ljósrit og Prent.
Ljósmynd á framlið og bakhlið tók Ríkarður Bergstað Jónasson 1967
Ljósmynd af CCREYKJVÍK: Finnbogi Marinósson
1967
Það var í september 1999 að þeir félagarnir Birgir Haraldsson og Karl Tómasson sem höfðu unnið saman um árabil í hljómsveitinni Gildran og 66 fengu þá hugmynd að flytja tónlist John Fogerty og Creedence Clearwater Revival. Bjuggust menn við því að aðeins yrði um eitt kvöld að ræða, en þær væntingar brugðust algerlega.
Rauði þráðurinn í gegnum þessa plötu sem þú hefur nú undir höndum er að leyfa spilagleðinni að njóta sín. Við vonum að hún hafi skilað sér á plast. Þá hefur ætlunarverkið tekist.
Reykjavík apríl 2009
CCREYKJAVÍK. Biggi, Sigurgeir, Jói og Ingó.
XX xx x
lau. 21.3.2009
Samstarf í 30 ár
Á þessu ári, eru liðin 30 ár frá því að við Biggi og Þórhallur hófum samstarf. Fyrsta hljómsveitin okkar hét, Sextett Bigga Haralds og þá kom Pass og þar á eftir Gildran. Síðar stofnuðum við Biggi Dúett, sem við kölluðum, Sextíuogsex.
Gildran. Biggi, Þórhallur, Kalli og Sigurgeir.
Draumur okkar Gildrufélaga er að koma saman í tilefni af 30 ára afmælinu og jafnvel endurútgefa okkar fyrstu tvær plötur saman á tvöfaldan cd. Fyrsta plata okkar, Huldumenn, var einungis gefin út á vínil. Hugarfóstur var einnig gefin út á cd. Plöturnar eru báðar ófáanlegar.
Birgir Haraldsson er einn magnaðasti rokksöngvari okkar Íslendinga fyrr og síðar, hann er einnig, einn mesti ljúflingur sem ég hef nokkru sinni kynnst.
Karl Tómasson
Í kvöld
Ég var beðinn um að koma þessu á framfæri hér á síðunni minni og geri ég það með glöðu geði.
Mosfellingur og Áslákur efna til styrktarkvölds föstudaginn 27. febrúar þegar nýr og breyttu Áslákur verður opnaður. Safnað er fyrir Rebekku Allwood sem var í viðtali í Mosfellingi fyrir nokkru. Hún lenti í hræðilegu slysi á Vesturlandsvegi fyrir sex árum. Rebekka er í dag fjölfötluð með ósjálfráðar hreyfingar og verður það líklega ævistarf hennar að vinna úr afleiðingum þessa slyss. Safnað er fyrir æfingahjóli, sem kostar um 800.000 kr., fyrir áframhaldandi endurhæfingu Rebekku.
Bæjarrónafélag Mosfellsbæjar verður á staðnum og ýmsir kunnulegir Mosfellingar afgreiða á barnum.
Karl Tómasson
Svo furðulegt sem það kann að vera
Þrátt fyrir að Gildran og Mezzoforte eigi fátt sameiginlegt, þá hafa, einhverahluta vegna, leiðir hljómsveitanna oft leigið saman. Ég og Gulli Briem, sóttum báðir á sama tíma einkatíma í slagverksleik hjá Reyni Sigurðssyni. Ég sótti í framhaldi af því einkatíma hjá Gulla Briem til að læra á trommusett.
Mikið óskaplega er alltaf gaman hjá okkur þegar við hittumst
Gulli Briem og Sigurgeir á æfingunni í dag.
Jói Ásmunds.
Kalli Tomm og Jói Ásmunds.
Biggi Haralds.
Gömlu félagarnir, Kalli Tomm og Gulli Briem.
Á æfingunni í dag.
Sættir
Fyrir nákvæmlega 20 árum, samdi einn minn besti vinur og samstarfsfélagi í 30 ár, Birgir Haraldsson, undur fagurt lag sem kom út á Hugarfóstri Gildrunnar. Þetta var okkar fyrsta lag sem við hljóðrituðum án söngs.
Það er einstaklega góð tilfinning að geta verið sáttur. Sáttur við sjálfan sig, umhverfi sitt, sem og þá sem maður umgengst.
Með góðri kveðju úr Tungunni.
lau. 4.10.2008
Lítil saga um Gildruna og Sigstein gamla á Blikastöðum
Árið 1991 hringdi ég í Sigstein Pálsson bónda á Blikastöðum og óskaði eftir fundi með honum. Hann spurði mig hvert erindið væri, ég sagði honum að það væri áhugi minn og félaga minna í hljómsveitinni Gildrunni, að fá hjá honum leigða aðstöðu fyrir hljómsveitina í gamla fjósinu.
Sigsteinn þegar hann fagnaði aldarafmæli sínu í Hlégarði árið 2005 ásamt fjölda góðra gesta.
Að lokinni þessari skoðunarferð spurði Sigsteinn mig hvort ég væri ákveðinn að taka þetta pláss og ég svaraði rakleiðis að það væri engin spurning. Hann spurði mig þá hvort við réðum við húsaleiguna sem hann setti upp og ég sagði að það væri lítið mál, enda var hún sanngjörn í meiralagi.
Gömlu félagarnir úr Pelican á æfingu á Blikastöðum. Frá vinstri: Björgvin Gíslason, Pétur Kristjánsson, Jón Ólafsson, Sigurður Reynisson og Sigurgeir Sigmundsson.
Hljómsveitirnar saman komnar á Blikastöðum.
sun. 21.9.2008
Alltaf skemmtilegur og mikill ljúflingur

Það var gaman að horfa á viðtal sjónvarpsmannsins vinsæla, Jóns Ársæls, við Eirík Hauksson söngvara.
Til að gera langa sögu stutta, þá mislukkaðist þetta ævintýri okkar algerlega. Það komu bókstaflega engir til að hlýða á okkur og varð stórtap á þessu ævintýri okkar. Vissulega vorum við allir miður okkar en þetta gerði það að verkum að við félagarnir áttum saman næturlangt spjall. Við spjölluðum um lífið og tilveruna. Þetta var góð og ógleymanleg stund og tengdumst við þá böndum og vináttu, sem allt frá þeirri helgi hefur verið órjúfanleg.
Start og Gildran.
Efri röð frá vinstri: Sigurgeir Sigmunds, Kristján Edelstein, Pétur Kristjáns, Nikki Róberts, Dabbi Karls og Eiki Hauks. Neðri röð frá vinstri: Billi Start, Frikki Hall, Kalli Tomm, Biggi Haralds og Jonni Ólafs.
Myndin er tekin rétt áður en við fórum á svið til að spila á stórkostlegum og yfirpökkuðum tónleikum á Akureyri. Gildran ásamt Eiríki Haukssyni.
fös. 5.9.2008
Takið'i meyjan hrein
Á fyrstu hljómplötu Gildrunnar var lag sem af mörgum er talið eitt af okkar bestu lögum. Lag sem við komumst aldrei upp með að spila ekki þegar við komum fram.
Oft munum við félagarnir eftir því á tónleikum að hafa heyrt öskrað utan úr sal: "Takið'i meyjan hrein".
Lagið hef ég nú sett í spilarann hjá mér og njótið vel.
Mærin
Meyjan hrein
Sér þú til mín
Alltaf ein
Bænin ein
Ber mig til þín
Meyjan hrein
Faðir vor
Sér þú til mín
Engin orð
Himna storð
Tak mig til þín
Faðir vor
Bregður birtu
Mærin sofnar
Dofnar dagur burtu
Daufri varpar glóð
Kristur kær
Kom þú til mín
Himni nær
Hatri fjær
Tak mig til þín
Kristur kær.
lau. 30.8.2008
MKMedia strákarnir engum líkir
Mikið hafði ég gaman af heimsókn þeirra félaga í sumar og gleymi aldrei. Þá komu þeir á heimili mitt og spurðu mig spjörunum úr. Bókstaflega um allt á milli himins og jarðar.
Endilega kíkið á síðu þeirra félaga þar sem þeir taka mörg sérlega skemmtileg viðtöl.
Með bestu kveðju frá K. Tomm úr Mosó.
mið. 20.8.2008
Ævintýrið sem kom okkur hvað mest á óvart
Gildran hafði í raun aldrei verið hljómsveit sem fékkst við að spila annað en að mestu sín eigin lög. Vissulega tókum við gamla slagara inn á milli á tónleikum okkar og uppákomum og höfðum gaman af því og þá voru það auðvitað lög frá helstu áhrifamönnum okkar og átrúnaðargoðum.
Sagan var þannig að eftir eina tónleika á Álafoss föt bezt í Mosfellsbæ, ræddum við það félagarnir að gaman væri að halda eina tónleika í Mosó og að sjálfsögðu á Álafoss föt bezt og spila eingöngu lög Creedence Clearwater Revival.
Við höfðum í gegnum árin flutt mörg lög þeirrar frábæru hljómsveitar sem var einnig í miklu uppáhaldi hjá okkur félögunum. Þessi hugmynd hefði vafalaust aldrei komið upp nema vegna þess að við kunnum að spila flest lög þeirra og vissum að söngvari okkar, hann Biggi, var engum líkur þegar kom að þessum lögum.
Þessa dagskrá fluttum við 60 sinnum í Mosfellsbæ á Álafoss föt bezt, í hálft ár á Hótel Íslandi og í hálft ár á Kaffi Reykjavík. Einnig ferðuðumst við um land allt með þessa dagskrá. Í rúm tvö ár gerðum við ekkert annað. Það sem þetta virkaði og oftast komust færri að en vildu á þeim stöðum sem við spiluðum.
Þetta ævintýri kom okkur félögunum gersamlega á óvart og var einstaklega skemmtilegt.
Síðar hljóðrituðum við Gildrumezz, eins og við kölluðum okkur þá, hljómplötu með öllum þessum lögum snillinganna í CCR. Gítarleikari var Sigurgeir Sigmundsson, söngvari Birgir Haraldsson, trommari Karl Tómasson og bassaleikari var Jóhann Ásmundsson.
Þar með er þessari yfirferð minni um samstarf okkar og hljómplötuútgáfu lokið í bili.
Ég vona að þið hafið haft gaman af.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Félagarnir og vinirnir í 50 ára afmæli höfðingjans og stórsöngvarans
Bigga Haralds nú á dögunum.
Sextíuogsex
Árið 1993 fór Gildran í frí og upp úr því stofnuðum við Biggi dúettinn Sextíuogsex. Dúett sem varð fljótlega tríó með Frikka Hall, þeim ótrúlega náttúru tónlistarmanni, sem hefur komið mörgum á óvart með tónlistarhæfileikum sínum. Einnig starfaði með okkur í Sextíuogsex Jonni Ólafs Pelicani. Mikill húmoristi og snillingur, fullur af grallaraskap og endalausri reynslu sem var ómetanleg fyrir okkur.
Við spiluðum um land allt og það var bókstaflega brjálað að gera hjá okkur. Oftar en ekki fyrir troðfullum litlum krám. Krám sem höfðu öllu jafna ekki átt að venjast mikilli aðsókn. Það kom fyrir að auglýst væri að Gildran væri með tónleika. Það var stundum svolítið erfitt hjá okkur Bigga í upphafi slíkra tónleika að réttlæta þann gjörning en oftast tókst það.
Þetta 66 ævintýri var sannarlega skemmtilegur tími.
Karl Tómasson
sun. 17.8.2008
Birgir Haraldsson 50 ára
Vinur minn og samstarfsfélagi í 30 ár Birgir Haraldsson fagnaði í gær fimmtugs afmæli sínu með glæsibrag. Samstarf okkar hófst árið 1979 og höfum við frá þeim tíma m.a. hljóðritað saman 8 hljómplötur og farið saman hundrað hringi í kringum Ísland.
Auðvitað var mikið sungið og spilað í veislunni og m.a. tókum við félagarnir í Gildrunni tvö lög. Andvökunætur og Mærina og mikið höfðum við gaman að því.
Myndin var tekin af okkur eftir uppákomuna í gær.
Sigurgeir, Jói Ásmunds, Biggi Haralds og Kalli Tomm.
fös. 15.8.2008
Ógleymanlegur tími og lærdómur
Ég hef nú að undanförnu skrifað um samstarf okkar félaganna í Gildrunni og þær hljómplötur sem við gáfum út á þeim tíma sem við störfuðum saman að fullum krafti.
Gildran var í raun alla tíð svolítil Hulduhljómsveit eins og nafn okkar fyrstu hljómplötu gaf til kynna en aldrei fundum við fyrir öðru en virðingu og hlýju hvert sem við komum.
Hér koma myndir af plötunum okkar sem ég hef fjallað um.
Karl Tómasson
mið. 13.8.2008
Síðasta plata Gildrunnar
Að þessu sinni leið lengri tími hjá okkur félögunum á milli platna en nokkru sinni. Fyrstu fimm komu með nánast árs millibili en það liðu fjögur ár á milli Út og Gildran í tíu ár.
Gildran í tíu ár var tvöfaldur diskur og eins og áður segir innihélt hann bæði ný lög og eldri. Diskurinn seldist eins og heitar lummur og bókstaflega hvarf á einu augabragði. Vissulega var upplagið ekkert stórt en samt 4- 5000 eintök. Ég held bókstaflega að það mætti koma með annan eins pakka af honum aftur til landsins.
Útkoma alls þessa sé að rokksveitin Gildran eigi hásætið skilið í rokkflóru íslenskrar tónlistarsögu. Þegar farið er yfir efni sveitarinnar getur maður ekki annað en tekið undir þessar fullyrðingar og vonað með aðdáendunum að þeir komi saman á ný.
Bárður Örn Bárðarson
Ég vona innilega að við eigum einhvertímann eftir að telja í lag aftur og jafnvel skella nokkrum inn á plötu. Sá félagsskapur og sú vinátta allra sem að Gildrunni komu var heil og sönn og gleymist aldrei.
Á löngum ferli eru vissulega margir hápunktar en fyrir okkur félagana að fá tækifæri til að hita upp fyrir, Uriah Heep, Status Qvo, Nazareth og Jethro tull var auðvitað ógleymanleg lífsreynsla. Allt tónlistarmenn og hljómsveitir sem við bárum mikla virðingu fyrir og höfðum í gegnum tíðina hlustað mikið á.
Karl Tómasson
lau. 9.8.2008
Út markaði ákveðin tímamót hjá okkur
Á árunum 1991 og 1992 hljóðrituðum við hljómplötu sem ber heitið Út. Hún var hljóðrituð í Grjótnámunni og um upptökur sá Jóhann Ásmundsson Mezzoforte bassaleikari. Tengsl okkar við Jóa áttu svo eftir að verða meiri þegar fram liðu stundir.
Glæsilegir í karrýúlpunum við rútuna okkar. Eins og sjá má auglýstum við fyrir Samúel.
Hljómplatan markaði ákveðin tímamót hjá okkur félögunum, tvö lög af henni náðu toppsæti á vinsældarlista Rásar tvö og voru mörg lög af henni spiluð oft á útvarpsstöðvum. Í kjölfarið varð bókstaflega brjálað að gera hjá okkur við tónleikahald og spilamennsku um land allt. Við keyptum okkur stóra Benz rútu og merktum í bak og fyrir, réðum okkur bílstjóra, Loft Ásgeirsson, hljóðmann, Ásgeir Jónsson, söngvara úr Baraflokknum og rótara, Helga Pálsson, með í för var einnig oftar en ekki vinur okkar Billi Start. Þetta var sérlega skemmtilegur og samstilltur hópur.
Gamli góði hópurinn. Efst til vinstri: Ásgeir, Helgi, Billi og Sigurgeir. Neðri röð: Biggi, Kalli, Þórhallur og Loftur.
Gildran ásamt mökum og aðstoðarmönnum að fagna toppsætinu á Rás Tvö. Myndin er tekin fyrir tónleika á Gauki á Stöng.
Karl Tómasson
mán. 4.8.2008
Þá var komið að Ljósvakaleysingjum
Plötuna hljóðrituðum við árið 1990 og eins og hinar þrjár fyrri í Stúdíó Stemmu hjá Didda fiðlu. Við félagarnir fengum til aðstoðar við upptöku hljómplötunnar gítarleikarann og rokkarann mikla, Guðlaug Falk. Hann gekk að upptökum loknum til liðs við Gildruna og starfaði með, í rúm tvö ár. Guðlaugur er frábær rokkgítarleikari og góður drengur sem hefur aldrei vikið frá uppruna sínum í rokkinu og gefið út nokkrar sólóplötur.
Hér kemur plötudómur Mbl (Andrésar Magnússonar)
Fimmtudaginn 10. janúar, 1991 - Tónlist
Hljómplötur Andrés Magnússon
Ljósvakagildran Hljómplötur Andrés Magnússon Gagnrýnandi hefur aldrei skilið hvers vegna Gildran hefur ekki "meikað það" á öldum ljósvakans. Og reyndar botna hljómsveitarmeðlimir hennar ekki í því sjálfir. Þaðan er nafn nýjustu plötu Gildrunnar, Ljósvakaleysingjarnir, fengið.
Karl Tómasson
sun. 3.8.2008
Svo kom saumaða albúmið
Eftir útgáfu okkar á Huldumönnum og Hugarfóstri gáfum við út plötu árið 1989 sem við kölluðum einfaldlega Gildran. Oftast gekk hún undir nafninu saumaða albúmið eða bróderaða eins og vinur okkar og félagi, Pétur heitinn Kristjánsson kaus að kalla hana. Hún var hljóðrituð eins og hinar fyrri tvær í Stúdíó Stemmu.
Karl Tómasson
sun. 13.7.2008
Síðan eru liðin 20 ár
Um þessar mundir eru liðin 20 ár frá því að við félagarnir og vinirnir í Gildrunni gáfum út okkar fyrstu plötur. Systurplöturnar tvær, Huldumenn og Hugarfóstur. Þær eru báðar ófáanlegar í dag. Huldumenn kom einungis út á vínil en Hugarfóstur einnig á CD.
Birgir hefur samið og hann hafði samið við það texta þar sem hin fallega lína: um ástir og eilífan dans kemur fyrir. Þórir hélt þessari línu inni þegar hann samdi nýjan texta og úr varð þessi fallega ballaða. Í ljóðinu er annað persónulegt djók Þóris þar sem kemur hendingin í húminu // værðist vindurinn og margir hafa álitið vera prentvillu í textabókinni en er það ekki, þetta á að vera svona og Birgir syngur alltaf værðist.
Þegar litið er til baka yfir farinn veg er augljóst að lögin á Huldumönnum og Hugarfóstri hafa elst mjög vel. Þegar platan Huldumenn kemur út er hún á skjön við vel flest það sem var að gerast, og það er kannski þess vegna sem að hún lifir svona góðu lífi í dag, hún var eitthvað nýtt, ósvikið. Enn í dag er hún sívinsæl og hefur ekki misst þann ósvikna tón sem hún vakti svo mikla athygli fyrir í upphafi.
Meyjan hrein
Sér þú til mín
Alltaf ein
Bænin ein
Ber mig til þín
Meyjan hrein
Faðir vor
Sér þú til mín
Engin orð
Himna storð
Tak mig til þín
Faðir vor
Bregður birtu
Mærin sofnar
Dofnar dagur burtu
Daufri varpar glóð
Kristur kær
Kom þú til mín
Himni nær
Hatri fjær
Tak mig til þín
Kristur kær.
Vaknar allt á vorin
Vermir sólin landið
Grænu laufin borin
Brotið verður bandið
Blíður syngur blærinn
Brosir gulli sólin
Vaknar aftur bærinn
Börnin vantar í bólin
Opin Laugarvegur
Iðar Austurstræti
Digur andann dregur
Dúfa í heiðursæti
Fuglum iðar tjörnin
Fegra loftið sönginn
Brauði kasta börnin
Dapur er nú enginn
Situr bakvið sundin
Esjan undur fríða
Léttist aftur lundin
Dýrðar dagar líða.
Þú komst með vorið
um vetrarnótt
og vaktir huga minn
í húminu
værðist vindurinn
hann himneskan
heyrði sönginn þinn
Um ástir og eilífan dans
Þú söngst í Rjóðri
um sólarlag
og fluttir sálminn þinn
í kyrrðinni
kvaddi helkuldinn
hann heilagan
kveikti neistann minn
Um ástir og eilífan dans
Þú varst með völdin
um vetrarnótt
og sýndir styrkinn þinn
á heiðinni
heyrðist hljómurinn
hann háfleygan
hreyfði drauminn minn
Um ástir og eilífan dans.
Þekkirðu myrkrið þunga
Þagnarinnar sjávarnið
Næturskugga dauðans drunga
Drottins djúpu harmamið
Sorgin ein
Ég sit og bíð
Komir þú
Og gef mér frið
Vonin ein
Gefur grið
Sárt það er að syrgja
Þá sálin vætist blóði
Sorgina inni að byrgja
Brotna tára flóði
Hugann fyllir haustið
Horfin út í tómið
Birtan bak við brjóstið
Blómstrar svarta blómið.
Karl Tómasson
lau. 5.4.2008
Það fara fáir í skóna hans Bigga
Það var gaman að heyra unga manninn í þættinum, Bandið hans Bubba, spreyta sig á útgáfu Gildrunnar á Vorkvöldi í Reykjavík. Drengurinn lagði sig greinilega allan fram eins og fram kom hjá dómurunum og leysti það ágætlega en samt vantaði talsvert uppá. Það fór ekki fram hjá þeim, frekar en væntanlega mörgum áhorfendum.
Þannig er það nú bara.
Karl Tómasson
fös. 21.3.2008
Viti menn, hann er að koma.

Hér er ein gömul mynd af Gildrumezz ásamt Eika Hauks á blómatímabilinu og þar fyrir neðan lagahöfundurinn og forsprakki Creedence Clearwater Revival, John Fogerty með eitt af meistaraverkunum.
lau. 9.2.2008
Það eru tuttugu ár frá því ég fékk hringingu og ég hélt mig væri að dreyma
Ég svaraði í símann, Halló! Á línunni var maður sem sagði kurteislega á ensku "hi my name is Tony, and i am calling from Britain are you the drummer in Gildran"? Já sagði ég með semingi, eitthvað fannst mér þetta dularfullt. Þá sagði maðurinn á línunni "Have you heard about the band called Uriah Heep" Já svaraði ég og varð enn skeftískari. Þá sagði maðurinn "They are coming to Iceland in april, i was thinking if your band Gildran would like to warm up for them"
Karl Tómasson
mán. 3.12.2007
Billi Start og Gildran
Á efstu myndinni erum við félagarnir allir saman í efri röð: Sigurgeir, Krtistján, Pétur, Nikulás, Davíð og Eiríkur í neðri röð: Billi, Friðrik, Kalli, Biggi og Jón. Á þeirri næstu ég og Billi á Álafoss föt bezt og á þeirri neðstu ég og Pétur heitinn Kristjánsson, Pétur heldur á bróderaða albúmi Gildrunnar sem hann gerði á sinn einstaka hátt alltaf jafn mikið grín af og er vitnað í þá sögu í bókinni um Pétur.
Karl Tómasson
Gildran í Hlégarði
Árlegur stórdansleikur foreldrafélagsins Þruma og eldinga verður í Hlégarði í kvöld.
Tilefnið er auðvitað vegna bæjarhátíðarinnar Í túninu heima. Ég skora á alla sem vettlingi geta valdið að koma í Hlégarð í kvöld. Þetta er stóra ballið í Mosó.
Sjáumst í Hlégarði í kvöld. Hinn vinsæli dúett Hljómur hitar upp eins og endranær.
Karl Tómasson
fös. 4.5.2007
Átta dagar í kosningar. Valið er einfalt Vinstri græn og Eiki Hauks
Í dag var ágætis útvarpsfundur hjá efstu frambjóðendum í suðvestur kjördæmi. Fundinum var útvarpað beint úr Mosfellsbænum frá veitingastaðnum Ásláki. Nokkrir gestir mættu á Láka til að hlýða á frambjóðendurna sem stóðu sig ágætlega.
Bestu kveðjur til ykkar allra sem eruð í baráttunni 12. maí þó að sjálfsögðu helst til Ögmundar, Guðfríðar Lilju og Eika.
sun. 1.4.2007
Nú eru gömlu átrúnaðargoðin mín í Uriah Heep væntanleg til landsins öðru sinni. Fyrir 19 árum síðan, í apríl 1988, komu þessir höfðingjar til landsins og héldu tvenna tónleika. Þá urðum við, félagarnir í Gildrunni, þess heiðurs aðnjótandi að fá að hita upp fyrir þá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
lau. 8.6.2013
Lítill frændi skírður
Ég var við skírn í dag á heimili Trausta frænda og Kristínar þar sem litli frumburður þeirra fékk nafnið Tómas Gísli í höfuð langafa Tómasar og afa Gísla.
Þetta var yndisleg stund á meðal nánustu ættingja. Trausti er elsta barnabarn mömmu og pabba og það er nú alltaf og verður ákveðin virðingarstaða að vera elsta barnabarnið, rétt eins og elsta systkinið. Ég man eins og gerst hefði í gær þegar Sigrún systir kom með Trausta sinn heim í Markholt 4 í fyrsta skipti. Þá var ég níu ára.
Ég og Trausti höfum alltaf verið eins og bræður, í góðu sambandi, miklir vinir og það sem meira er veiðifélagar einnig.
Trausti setti á fésbókarsíðu sína yndislega færslu í dag sem ég set nú hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 24.5.2013
Mögnuð hljóðfæri
Trommusettin mín fjögur hafa vissulega hvert og eitt sinn karakter, enda ólík hljóðfæri. Fyrir 25 árum keypti ég notað Rogers trommusett sem var þá 25 ára, árgerð 1963, afmælisútgáfa frá Rogers. Þetta er óhemju fallegt og gott hljóðfæri sem ég notaði talsvert fyrstu árin sem ég átti það m.a. notaði ég bassatrommuna í útgáfu okkar félaga á Vorkvöld í Reykjavík sem var tekið upp 1991. Síðar lánaði ég rótara Gildrunnar hljóðfærið og var það um árabil stofustáss hjá honum.
Nú hin síðari ár hefur það ekkert verið notað og geymt vel pakkað uppá háalofti hjá Vimma rótara. Í vetur sem leið, sótti ég gamla Rogerinn og tók hljóðfærið algerlega í gegn, Skrúfu fyrir skrúfu, allt var tekið í sundur og hreinsað vandlega og það lagað sem þurfti. Ég læt hér að gamni fylgja með link á Vorkvöldið þar sem hljóðfærið sést. http://www.youtube.com/watch?v=OPDHsIuAXPc
Fyrir 8 mánuðum sérpantaði ég Yamaha Maple Custom Absolute trommusett hjá Hljóðfærahúsinu sem ég fékk heim fyrir tveimur dögum. Þetta er fyrsta trommusettið sem ég hef átt sem ég sérpanta. þ.e. vel allar stærðir á trommunum og lit hljóðfærisins. Það er óhætt að segja að tilfinningin hafi verið góð þegar ég tók hljóðfærið úr kössunum og stillti því upp heima. Ekki varð tilfinningin veri að spila á það í fyrsta skipti og upplifa svo sterkt gæði þess. Það stendur undir öllum væntingum. Ég hlakka mikið til að nota nýja hljóðfærið á næstu hljómsveitaræfingu.
Aldursmunur þessara tveggja hljóðfæra er akkúratt hálf öld. Hér að neðan má sjá myndir af þessum hljóðfærum.
Hér er ég að ná í nýja trommusettið og þakka Arnari Þór Gíslasyni, þeim frábæra trommuleikara og sölumanni hjá hljóðfærahúsinu, fyrir viðskiptin áður en að lagt var að stað heim í Mosó.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 24.5.2013
Þetta er sérkennilegt
Ég hef velt því fyrir mér undanfarið hvernig það er hægt að upplifa að fullu viðburði af hverju tagi sem er með farsíma í hönd og mynda allt sem er að gerast.
Allt til að koma því á feisið skömmu síðar. Sama hvort um er að ræða, listviðburði, samverustund með fjölskyldunni, gott matarboð með vinum eða sama hvað er.
Ef markmiðið er að koma því á feisið fyrir einhverja aðra sem fyrst, þá hlýtur maður að vera að hugsa um einhverja aðra, eða annað en það sem er að gerast þá stundina og með þeim sem maður er þá stundina.
Njótum líðandi stundar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mán. 22.4.2013
Mosfellingar ánægðir
Um þetta leiti fyrir ári síðan birti ég könnun á bloggi mínu um hversu ánægðir Mosfellingar voru með bæinn sinn árið 2011. Þá könnun má sjá hér að neðan hjá mér.
Ég hef verið nokkuð latur undanfarið að skrifa á bloggið mitt síðan þá en er að ranka úr rotinu þessa dagana.
Það er gaman að geta þess hér að samkvæmt nýjustu og sömu könnun ári síðar virðast Mosfellingar enn ánægðari nú.
Fyrirtækið Capacent gerði þjónustukönnun meðal sveitarfélaga október og nóvember árið 2012. Þar voru íbúar Mosfellsbæjar beðnir að meta hversu ánægðir þeir væru með Mosfellsbæ sem stað til að búa á.
Skemmst er frá því að segja að yfir 93% kváðust vera ánægðir.
Mosfellsbær er samkvæmt þessu í öðru sæti af 16 stærstu sveitarfélögunum landsins.
Íbúar voru beðnir í 11 liðum að leggja mat á umhverfi sitt og þjónustu sveitarfélagsins. Í öllum liðum var meðaleinkunn frá íbúum Mosfellsbæjar í eða yfir heildarmeðaltali allra sveitarfélaganna.
Hægt er að skoða skýrslu um könnunina nánar hér á pdf skjali eða vefútgáfu skjals ef skjal hér neðar opnast ekki.
Ef þú hefur ekki 'Adobe PDF Reader' til að lesa .pdf skjöl getur þú sótt forritið hér
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
sun. 21.4.2013
Ögmund á þing annað er rugl
Þegar vinstri stjórnin tók við hafði ráðherra í ráðuneyti dómsmála verið hægri maður sleitulaust frá 1989. Það er langur tími til að hafa tækifæri til að beita valdi sínu til góðra verka. Það var þó ekki fyrr en vinstri maðurinn Ögmundur Jónasson var ráðherra sem mannréttindi voru sett á oddinn í ráðuneytinu. Að sinna mannréttindamálum varð hluti af skilgreinindu hlutverki ráðuneytisins. Úr varð dóms- og mannréttindamálaráðuneyti. Heitið var táknrænt fyrir að vera ekki bara ráðuneyti kerfisins heldur líka fólksins. Síðar á kjörtímabilinu voru þessi málefni færð með samgöngumálum undir hatt núverandi innanríkisráðuneytis.
Verkin tala
Mannréttindi voru sett á oddinn og tekið var til hendinni. Sett var á fót ný staða fulltrúa mannréttindamála í ráðuneytinu sem ekki var til áður. Sá hefur alfarið á sinni könnu að sinna málefnum er varða mannréttindi og af nógu er að taka. Í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar hefur Ögmundur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um áætlun í mannréttindamálum til fjögurra ára. Undirbúning áætlunarinnar var í samráði við stjórnsýslu, fræðasamfélag og frjáls félagasamtök í opnu og umfangsmiklu samráði.
Unnið markvisst gegn ofbeldi
Hér ber auðvitað hæst kraftmikil barátta gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Hegningarlögum hefur verið breytt til að styrkja réttarvernd barna gegn ofbeldi. Sem dæmi má nefna að nú má refsa þeim sem seldur eru undir íslenska lögsögu fyrir kaup á barnavændi óháð því hvar í heiminum brotið á sér stað. Þetta er gríðarmikilvægt skref til þess að stuðla að vernd allra barna fyrir ofbeldi, ekki bara á Íslandi.
Komið hefur verið á laggirnar og staðið að vitundarvakningu um kynferðisofbeldi og kynbundið ofbeldi, í samvinnu við ráðuneyti mennta- og velferðarmála. Fjármagni hefur verið veitt í að styðja við forvarnir sem unnar eru af grasrótarsamtökum. Átakið hefur skilað stuttmyndinni Fáðu já og fræðslu fyrir börn í öðrum bekk um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum í formi brúðuleikhúss í samstarfi við samtökin Blátt áfram.
Staðið hefur verið fyrir umfangsmiklu samráðsferli um meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu og stórum alþjóðlegum ráðstefnum, minni samráðsfundum og ráðist hefur verið í lagabreytingar.
Nýlegur samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi, svokallaðan Istanbúl samning, er nú til umfjöllunar í ráðuneytinu. Ráðuneytið vinnur nú að úrvinnslu niðurstaðna úttektarinnar með fullgildingu samningsins að leiðarljósi.
Þrátt fyrir að við séum í efsta sæti yfir besta jafréttislandið í heimi fjórða árið í röð heldur Ögmundur áfram að vinna að jafnrétti með því að stuðla að því að enda ofbeldi gegn konum.
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur hrósað Íslandi fyrir lagabreytingar í þágu mannréttinda og jafnréttis til dæmis vegna innleiðingar hinnar svökölluðu austurrísku leiðar en hún snýst um að ofbeldismaður á heimili er fjarlægður þaðan í stað þess að þolandi og e.t.v. börn þurfi að fara að heiman. Þá hefura kaup á vændi bannað.
Sett hefur verið á laggirnar fagráð um kynferðisbrot innan trúfélaga þegar komu upp kynferðisbrot í kaþólsku kirkjunni.
..og fleira
Barnalögum hefur verið breytt þannig að deildur foreldra um forsjá og umgengni hefur í auknum mæli verið beint í sáttafarveg í stað þess að slíkar deilur séu leystar í dómsölum. Þegar í ljós kom að það var kynbundinn launamunur í innanríkisráðuneytinu var hann leiðréttur. Unnið hefur verið að því að fullgilda samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks. Búið er að breyta kosningalögunum. Áhersla hefur verið lögð á að breyta útlendingalögunum með mannúð og skilvirkni að leiðarljósi.
Þetta er langt frá því að vera tæmandi talning á því sem gert hefur verið í innanríkisráðuneytinu og varðar mannréttindi og jafnrétti en mér þykir merkilegt að margt af þessu hafi ekki verið gert fyrir löngu síðan.
Árangur
Það er gríðarlega mikilvægt að opnað sé á umræðu um þau grófu ofbeldisbrot sem hér er fjallað um. Það leiðir til þess að fólk er frekar tilbúið til að stíga hið þugna skref út úr þeim skelfilegu aðstæðum sem það er í vitandi það að samfélagið mun mæta því með skilningi en ekki fordómum. Engum hefur dulist sú mikla umræða sem farið hefur fram um þessi ofbeldisbrot að undanförnu og nú er svo komið að fjöldi kæra hjá lögreglu vegna kynferðisbrota hefur aukist gríðarlega á undanförnum misserum.
Í síðustu viku var samþykkt að verja 79 milljónum króna á næstunni til fjölga rannsóknarlögreglumönnum og saksóknurum til að takast á við aukin verkefni vegna rannsóknar og meðferðar kynferðisbrotamála á Íslandi.
Pótlitík skiptir máli enda þurfti róttækan vinstri mann í ráðuneytið til að hreyfa við þessum mikilvægu málum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 19.4.2013
Ráð undir rifi hverju
Það er allt að verða geggjað venju samkvæmt svona rétt fyrir kosningar.
Öll blöð og netsíður orðnar stútfullar af sérfræðingum sem sjá lausnir á öllum vanda og ástæðu klúðurs síðari ára og hvernig hefði átt að bjarga öllum málum.
Hafa alltaf ráð undir rifi hvreju.
Nú skal kosið eitthvað að viti. Eitthvað sem kemur okkur á réttan kjöl eftir að skútan fór svo eftirminnilega á hvolf og nánast hver einasti farþegi um borð var nærri drukknaður.
Já, nærri drukknaður!!!
En hriplekri skútunni tókst að koma á réttan kjöl og nú verður vonandi hægt að sigla henni í örugga höfn að loknum kosningum. Ég og mín fjölskylda höfum ekki farið varhluta af þeim skaða sem skútan varð fyrir, hann varð mikill og erfiður fyrir okkur.Við treystum hinsvegar engum betur til að sigla skútunni í örugga höfn, heldur en akkúrat þeirri áhöfn sem tókst að koma henni á flot á sínum tíma.
Það er með ólíkindum að lesa greinar allra þessara besservissara, bæði gömlu hrunflokkanna og áðdáenda klofningsframboða sem reyndar eiga það flestir sameiginlegt að tolla aldrei í einu eða neinu og virðast hafa það eitt að markmiði að mótmæla.
Mótmæla. Mótmæla.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fim. 18.4.2013
Undan vetri
Undan vetri
Orð segja eitt
en þögnin annað
orð segja allt sem er bannað
orð eru þörf
en þögnin betri
ef þú vilt koma
vel undan vetri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
þri. 3.1.2012
SPOT og vinir Péturs kynna með miklu stolti:

Laugardaginn 7. janúar 2012 ætlum við að heiðra minningu eins mesta RISA íslenskrar rokksögu. Pétur Wigelund Kristjánsson hefði orðið sextugur þennan sama dag og ætlum við í samvinnu við ei...tt mesta stórskotalið íslenskrar tónlistar, hvort sem um er að ræða tónlistarmenn eða söngvara að halda æðisgengið kvöld til heiðurs Pétri.
Flutt verða lög frá löngum, litríkum og fjölbreyttum ferli Péturs.
Að tónleikunum loknum mun hin goðsagnakennda rokkhljómsveit Gildran spila á dansleik.
ALLUR ágóði þessa kvölds fer í Minningarsjóð Péturs sem úthlutað verður úr á Múskiktilraunum á meðan sjóðnum endist fé, Pétur kom úr bílskúrshljómsveitum og með stofnun sjóðsins getum við haldið nafni hans á lofti hjá tónlistaræsku landsins.
Tryggið ykkur miða sem fyrst í eina mestu tónslistarveislu í langan tíma.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)