fös. 30.1.2009
Heimasíða Vinstri grænna í Mosfellsbæ
Nú höfum við Vinstri græn í Mosfellsbæ opnað öfluga og líflega heimasíðu sem ég skora alla á að heimsækja.
Síðunni er ritstýrt af Högna Snæ Haukssyni stjórnarmanni okkar Vinstri grænna og varaformanni íþrótta- og tómstundarnefndar í Mosfellsbæ.
Slóðin er einfaldlega vgmos.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
fim. 29.1.2009
Íslenska efnahagsundur Hannesar Hólmsteins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
mið. 28.1.2009
Hreinsunin er rétt handan við hornið
Innan tveggja til fjögurra sólarhringa hefst ein víðtækasta hreinsun sem viðhöfð hefur verið í stjórnarfari okkar lýðveldis, allt frá stofnun þess.
Sú vítamínsprauta sem til þurfti að sú framkvæmd yrði að veruleika, var innkoma Vinstri grænna í ríkisstjórn.
Í framhaldi af hreinsunarátakinu verður allt lagt í sölurnar til að koma þjóðarskútunni á flot og um leið gera samfélag okkar mannlegra og fallegra.
Athugið, koma skútunni á flot, ekki fullt skrið, það tekur lengri tíma en nokkrar vikur eins og væntanlega allir vita.
Á hápunkti fylgis flokksins samkvæmt skoðanakönnunum og aðeins nokkrum vikum fyrir kosningar ganga Vinstri græn nú ótrauð í stjórnarráðið staðföst í sinni trú að láta gott af sér leiða.
Sjáum nú hvað setur næstu vikurnar, byrjum á því.
Að því loknu og ekki fyrr, er sanngjarnt að setja allt á blússandi ferð í gagnrýninni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mán. 26.1.2009
Með forsetann á heilanum
Það á sér enga hliðstæðu, að forseti Íslands gangi á svig við hlutleysi sitt og óhlutdrægni á þennan hátt og reyni að knýja fram einkasjónarmið sín við stjórnarmyndun".
Þetta lét Björn Bjarnason hafa eftir sér í kvöld. Að öðru leiti hefur hann ekkert tjáð sig um atburðarásina í þjóðfélaginu í dag og gaf ekki færi á viðtölum. Ég hefði talið eðlilegra hjá ráðherranum að blanda sér í umræðuna í dag í stað þess að vera eins og nokkrir aðrir með forsetann á heilanum allt frá því að hann tók við embætti. Að ráðherrann hafi fyrst séð ástæðu til að blanda sér í umræðuna eftir ummæli Ólafs Ragnars á Bessastöðum í dag er með ólíkindum.
Túlkun Björns á þessum ummælum sem einkaskoðun forsetans eftir allt sem á undan er gengið er með ólíkindum.
Það er ljóst og varð fyrir löngu síðan að Ólafur Ragnar hefur treyst sér til að tala um annað og meira en haustlitina á Þingvöllum.
Ólafur Ragnar nefndi eins og kunnugt er orðið, fjögur atriði sem mikilvægt væri að hafa í huga og eiga að setja svip á það sem gert verður.
Í fyrsta lagi það brýna verkefni að skapa á ný samfélagslega sátt í íslensku þjóðfélagi þannig að þeir atburðir og átök sem við höfum öll orðið vitni af að undanförnu lagist og íslenskt samfélag geti orðið að nýju það samfélag sem við kjósum og erum vön. Að þjóðin geti gengið til daglegra starfa á friðsaman og öruggan hátt. Segir Ólafur Ragnar það nauðsynlegt að skapa hér nauðsynlegan frið en hann telur það mikilvægast í því starfi sem fram undan er.
Í öðru lagi nefndi Ólafur Ragnar að haldið sé þannig á málum það þær ákvarðanir sem teknar eru séu teknar hafi hag þjóðarinnar, heimilanna í landinu fyrirtækja og atvinnulífs að leiðarljósi og þannig lagður grundvöllur að farsælli lausn eins fljótt og auðið er.
Í þriðja lagi að þjóðin fái sem fyrst tækifæri til þess að endurnýja umboð nýs Alþingis og kjósa sér þá fulltrúa á löggjafarsamkomuna sem íslensk stjórnskipun kveður á um.
Í fjórða lagi telur Ólafur Ragnar nauðsynlegt að skapaður sé farvegur fyrir þá umræðu sem við verðum mjög vör við í okkar þjóðfélagi þar sem fólk varpar fram hugmyndum og kröfum um nýja stjórnskipan, endurskoðun á stjórnarskrá, nýtt lýðveldi eins og sumir orða það. Eða þjóðfélagslegan sáttmála eins og forsetinn orðaði það í nýársávarpi sínu.
![]() |
Björn: Forsetinn gekk á svig við hlutleysi sitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
sun. 25.1.2009
Frábært þorrablót
Einstaklega vel heppnuðu þorrablóti okkar Mosfellinga er nú lokið. Ég vil nota tækifærið og óska öllu því góða fólki sem stóð að undirbúningi þess og framkvæmd innilega til hamingju.
Frábær matur, frábær veislustjórn og frábær skemmtiatriði.
Þorrablótið er nú komið til að vera og það sem ein stærsta árlega hátíð okkar Mosfellinga.
Til hamingju Mosó.!!!
Ég og Hilmar vinur minn, ritstjóri Mosfellings, í góðri sveiflu á þorrablótinu.
Hjördís Kvaran, vinkona okkar var með kameruna á lofti allt kvöldið og stórkostleg að vanda.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
mið. 21.1.2009
Mosfellingar, hittumst á þorrablótinu!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
mán. 19.1.2009
Skemmtilegar fréttir úr Mosfellsbænum
Íþróttamenn Mosfellsbæjar
Tveir golfíþróttamenn, Nína Björk Geirsdóttir og Kristján Þór Einarsson, bæði úr Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ, voru á sunnudaginn valin íþróttakona og íþróttamaður ársins 2008 í Mosfellsbæ. Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar velur verðlaunahafa eftir tilnefningar frá íþróttafélögum í Mosfellsbæ.
Í umsögn nefndarinnar segir um Nínu Björk:
"Nína hefur verið einn sigursælasti kvennkylfingur landsins seinustu ár. Nína varð klúbbmeistari Kjalar 2008 þar sem hún setti vallarmet. Einnig endaði hún í öðru sæti á Íslandsmótinu í höggleik eftir æsispennadi keppni þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir fimm holu bráðabana. Nína lék stórt hlutverk í kvennasveit Golfklúbbs Kjalar í sveitakeppni golfsambandsins, en sveitin endaði í 3ja sæti."
Í umsögn nefndarinnar segir um Kristján Þór:
"Kristján keppti fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í sumar þar sem Kristján lék gott golf. Hann lék einnig á heimsmeistaramótinu í Ástralíu og átti góða spretti þar. Stærsti sigur Kristjáns á árinu var þegar hann landaði Íslandmeistaratitlinum í höggleik á eftirminnilegan hátt. Kristján var einn af lykilmönnum silfurliðs Kjalar í Sveitakeppni Golfsambands Íslands . Kristján endaði í öðru sæti á stigalista Kaupþingsmótaraðarinnar og þykir það mikið afrek fyrir svo ungan leikmann."
Hugmyndasamkeppni um ævintýragarð í Mosfellsbæ
Mosfellsbær efnir til hugmyndasamkeppni um hönnun á ævintýragarði fyrir alla fjölskylduna í Ullarnesbrekkum í Mosfellsbæ.
Markmið hugmyndasamkeppninnar er að fá fram raunhæfar og spennandi tillögur um hönnun og innihald ævintýragarðs.
Ævintýragarðurinn skal nýtast allri fjölskyldunni til fjölbreyttrar útvistar og ánægju allt árið um kring. Aðgangur að svæðinu skal vera öllum opinn og ókeypis.
Verðlaunafé nemur alls 4 milljónum króna.
Keppnislýsing verður látin í té endurgjaldslaust frá og með 19. janúar á skrifstofu Arkitektafélags Íslands. Keppnislýsinguna er einnig að finna á vefsíðu Arkitektafélagsins, ai.is og vefsíðu Mosfellsbæjar,www.mos.is.
Keppendur skrá sig til þátttöku á skrifstofu Arkitektafélags Íslands frá og með 19. janúar og fá þar með aðgang að öðrum keppnisgögnum gegn greiðslu endurkræfs skráningargjalds að upphæð kr. 10.000.
Skilafrestur tillagna er 1. apríl 2009. Nánar á mos.is
Mosfellingur ársins 2008
Mosfellingur ársins 2008 er athafnamaðurinn og hóteleigandinn Albert Sigurður Rútsson. Á árinu opnaði Albert glæsilegt hótel í Mosfellsbæ, Hótel Laxnes. Alli Rúts, eins og hann er oftast kallaður er landskunnur skemmtikraftur og rak á árum áður eina þekktustu bílasölu landsins. Hótel Laxnes er með glæsilegri byggingum í Mosfellsbæ en hótelið opnaði í byrjun septembermánaðar. Hótelið er búið 25 herbergjum og getur tekið á móti allt að 50 næturgestum. Það var Hilmar Gunnarsson ritstjóri Mosfellings sem afhenti Alberti viðurkenninguna. Þetta kemur fram í síðasta tbl. Mosfellings.
Hér til hliðar má sjá slóð á blaðið og lesa þar að venju fjölda frétta úr Mosfellsbænum.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mið. 14.1.2009
Ekkert pláss fyrir persónulega muni
Fyrir nokkrum mánuðum síðan var elskulegur tengdafaðir minn orðin það lasburða að hann þurfti að fara á hjúkrunarheimili. Það voru þung skref að fara með hann frá heimili sínu, fullkomlega andlega hressan og meðvitaðan um nýja heimilið frá eldhressri eiginkonu og kveðja hann nokkru síðar í litlu herbergi sem hann deilir nú með öðrum gömlum og góðum manni. Ekki var það auðveldara fyrir tengdamömmu.
Ekkert pláss fyrir persónulega muni, ekkert skrifborð, ekkert einkalíf. Mann sem hefur eins og hundruðir annarra einstaklinga í sömu sporum skilað sínu starfi, nánast án þess að dagur félli úr vinnu fyrir samfélagið okkar. Manneskju sem hefur aldrei farið fram á neitt, eingöngu skilað sínu og það ríflega.
Það er óþolandi að við skulum ekki hafa gert betur fyrir eldriborgara okkar samfélags í svokölluðu góðæri. Fátt stefnir í að breyting verði á, nú á næstu árum, allt vegna gengdarlausrar græðgi fólks sem hefur hagnast á innantómum viðskiptum, plotti og svikum.
Vonandi munum við nota næstu, svokölluð góðæri, sem vonandi eiga eftir að koma, til að hlúa að þeim sem í raun unnu til þeirra.
Óli tengdó komin með Bítlahár.
Bloggar | Breytt 15.1.2009 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
þri. 13.1.2009
Afturelding fagnar brátt aldarafmæli
Á þessu ári, nánar tiltekið þann 11. apríl n.k. eru liðin 100 ár frá stofnun UMF Aftureldingar. Um þessar mundir er hópur einvalaliðs að leggja lokahönd á bók sem mun koma út af því tilefni og spanna söguna alla.
Í Dagrenningi sem kom út í tilefni 50 ára afmælisins í apríl 1959 er fjöldi skemmtilegra greina og mynda. Hér að neðan koma nokkrar myndir úr blaðinu gamla.
Hér koma nokkrar auglýsingar úr blaðinu gamla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)