mán. 6.10.2008
Góðir tímar slæmir tímar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mán. 6.10.2008
Afhverju notar Framsóknarflokkurinn slíkar aðferðir?
Það var athyglisvert að hlusta á þetta viðtal við Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra á Mbl. Þar gagnrýnir hann harkalega Guðna Ágústsson formann Framsóknarflokksins og sagði hann eiga að skammast sín fyrir að reyna að notfæra sér þetta ástand.
Það er furðulegur skrambi hvað framsóknarmenn falla oft í þá gryfju að notfæra sér slæma eða góða umræðu til að hlaða á sig fjöðrum, fjöðrum sem þeir eiga jafnvel engan rétt á að eigna sér.
Það er ekkert athugavert við það að skipta um skoðun og það hefur Össur sjálfur margoft gert. Hann hefur nokkrum sinnum þurft að éta hatt sinn í þeim efnum.
Verri er þessi dæmigerða plottpólitík bakvið tjöldin þar sem menn segja eitt en gera annað og láta sem þeir komi algerlega af fjöllum og eigi engan þátt í þeirri stöðu sem komin er upp. Ætla að reyna að notfæra sér ástandið og koma fram sem einhverskonar frelsarar.
Ég þekki þetta m.a. úr sveitarstjórnarmálunum hér í Mosfellsbæ.
Ég má til með að bæta því við að það er athyglisvert hvað Össur virðist nota hvert tækifæri til að hlaða þingmenn VG lofi fyrir störf sín. Össur er ágætur og skemmtilegur en hann er ekki með umhverfistagl, það er nokkuð víst.
![]() |
Verndum hagsmuni almennings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mán. 6.10.2008
Esjan
Undanfarið hef ég tekið nokkrar myndir af Esjunni og sett m.a. hérna á bloggið mitt. Það er ekkert sérlega létt yfir henni núna blessaðri.
Esjan klukkan 9:10 þann 6. október 2008
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
mán. 6.10.2008
Þorramatur
Ég sá þessa mögnuðu myndaseríu á youtube af hvíta hákarlinum. Auðvitað var það Davíð gamli og hans menn sem tóku þetta og sýndu í þætti sínum.
Hver man ekki eftir mögnuðum dýralífsmyndum og þáttum David Attenboro sem sýndir voru um árabil í sjónvarpinu?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
mán. 6.10.2008
Lunkinn bardagamaður og sannur meistari
Nokkrum sinnum hef ég skrifað um Muhammad Ali og dálæti mitt á honum, ekki einungis sem stórkostlegum íþróttamanni, heldur einnig, hreint og beint listamanni og mannvini. Boxið er ekkert öðruvísi en aðrar íþróttir, það getur verið fallegt og ljótt.
Bardagar Ali, voru undantekningalaust fallegir og magnaðir. Enda er hann þekktasti boxari allra tíma. Muhammad Ali mátti þola látlausa gagnrýni, ekki einungis sem boxari heldur einnig sem manneskja, lengi framan af. Oftar en ekki var hann talinn vitlaus gasprari, en raunin var, að hann var oftast nokkrum númerum of stór fyrir flesta sýna andstæðinga, alla tíð. Það kom oftast í ljós á endanum. Í hringnum sjálfum.
Í einum af hans frægustu bardögum, þessum sem fylgir þessari færslu hér, við Joe Formann sýndi hann í eitt skipti fyrir öll, að í boxinu, rétt eins og flestum öðrum íþróttum þarf hausinn einnig að vera í lagi. Kænska hans og herbragð að leyfa andstæðingnum að berja á sér linnulítið án mótsvars varð á endanum vendipunktur í einum af hans glæstasta og stærsta sigri.
Rothögg hans kom á endanum, þaul hugsað, allt frá upphafi.
Hann lokkaði rebbann upp úr greni sínu með sojakjöti. Hann vissi að það væri nóg, hið innra eðli og grimmd rebbans verður honum nefnilega oft að falli.
Þeir sem kunna engin mörk og virða engar reglur í boxi eða einfaldlega hverju sem er, eru teknir úr leik.
Þeir sem geta ekki barist heiðarlega, fá ekki að taka þátt.
Þeir eru gerðir útlægir.
http://www.youtube.com/watch?v=Kf64ZCYVcEI
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)