Færsluflokkur: Bloggar

Ómar Ragnarsson

Í dag, á degi íslenskrar náttúru var hreint stórkostlegt að hlýða á ræðu Ómars Ragnarssonar sem dagurinn er og verður alltaf kenndur við. Þvílík ræða og einlægnin í henni hjá honum var einstaklega áhrifarík. 

Ómar vitnaði mikið í ræðu sinni í Jónas Hallgrímsson og ljóð hans, Gunnarshólma og hversu mikill frumkvöðull Jónas var og það eru vissulega orð að sönnu. 

Ómar okkar kæri, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir land okkar og þjóð.

http://dagskra.ruv.is/ras1/4587953/2011/09/16/

Gunnarshólmi

Skein yfir landi sól á sumarvegi,
og silfurbláan Eyjafjallatind
gullrauðum loga glæsti seint á degi.
Við austur gnæfir sú hin mikla mynd
hátt yfir sveit, og höfði björtu svalar
í himinblámans fagurtærri lind.
Beljandi foss við hamrabúann hjalar
á hengiflugi undir jökulrótum,
þar sem að gullið geyma Frosti og Fjalar.
En hinum megin föstum standa fótum,
blásvörtum feldi búin, Tindafjöll
og grænu belti gyrð á dalamótum.
Með hjálminn skyggnda, hvítri líkan mjöll,
horfa þau yfir heiðarvötnin bláu,
sem falla niður fagran Rangárvöll,
þar sem að una byggðarbýlin smáu,
dreifð yfir blómguð tún og grænar grundir.
Við norður rísa Heklu tindar háu.
Svell er á gnípu, eldur geisar undir.
Í ógna djúpi, hörðum vafin dróma,
skelfing og dauði dvelja langar stundir.
En spegilskyggnd í háu lofti ljóma
hrafntinnuþökin yfir svörtum sal.
Þaðan má líta sælan sveitablóma,
því Markarfljót í fögrum skógardal
dunar á eyrum. Breiða þekur bakka
fullgróinn akur, fagurst engjaval
þaðan af breiðir hátt í hlíðarslakka
glitaða blæju, gróna blómum smám.
Klógulir ernir yfir veiði hlakka,
því fiskar vaka þar í öllum ám.
Blikar í lofti birkiþrasta sveimur,
og skógar glymja, skreyttir reynitrjám.
Þá er til ferðar fákum snúið tveimur,
úr rausnargarði háum undir Hlíð,
þangað sem heyrist öldufalla eimur,
því atgang þann ei hefta veður blíð,
sem voldug reisir Rán á Eyjasandi,
þar sem hún heyir heimsins langa stríð.
Um trausta strengi liggur fyrir landi
borðfögur skeið, með bundin segl við rá,
skínandi trjóna gín mót sjávar grandi.
Þar eiga tignir tveir að flytjast á,
bræður, af fögrum fósturjarðar ströndum
og langa stund ei litið aftur fá,
fjarlægum ala aldur sinn í löndum,
útlagar verða, vinar augum fjær.
Svo hafa forlög fært þeim dóm að höndum.
Nú er á brautu borinn vigur skær
frá Hlíðarenda hám, því Gunnar ríður
atgeirnum beitta búinn. Honum nær
dreyrrauðum hesti hleypir gumi, fríður
og bláu saxi gyrður, yfir grund.
Þar mátti kenna Kolskegg allur lýður.
Svo fara báðir bræður enn um stund.
Skeiðfráir jóar hverfa fram að fljóti.
Kolskeggur starir út á Eyjasund,
en Gunnar horfir hlíðarbrekku móti.
Hræðist þá ekki frægðarhetjan góða
óvina fjöld, þó hörðum dauða hóti.
"Sá ég ei fyrr svo fagran jarðargróða,
fénaður dreifir sér um græna haga,
við bleikan akur rósin blikar rjóða.
Hér vil eg una ævi minnar daga
alla, sem guð mér sendir. Farðu vel,
bróðir og vinur!" - Svo er Gunnars saga.

- - -

Því Gunnar vildi heldur bíða hel
en horfinn vera fósturjarðar ströndum.
Grimmlegir fjendur, flárri studdir vél,
fjötruðu góðan dreng í heljar böndum.
Hugljúfa samt ég sögu Gunnar tel,
þar sem ég undrast enn á köldum söndum
lágan að sigra ógnabylgju ólma
algrænu skrauti prýddan Gunnarshólma.
Þar sem að áður akrar huldu völl,
ólgandi Þverá veltur yfir sanda.
Sólroðin líta enn hin öldnu fjöll
árstrauminn harða fögrum dali granda.
Flúinn er dvergur, dáin hamratröll,
dauft er í sveitum, hnípin þjóð í vanda.
En lágum hlífir hulinn verndarkraftur,
hólmanum, þar sem Gunnar sneri aftur.



Brósi og hljóðfærið hennar Bjarkar

http://youtu.be/J0uXL1E5qn8

Skemmtilegur útvarpsþáttur úr Kvosinni

Kvosó

http://dagskra.ruv.is/ras1/4556100/2011/08/05/


Fiðringur

Sjáumst eldhress á Spot í Kópavogi.

http://youtu.be/FrgSm_h24sE


Gildran á Spot í Kópavogi

http://www.facebook.com/#!/pages/Gildran/117874914893638

Gildran sundlaug

Fiðringurinn mun hljóma á SPOT næstu helgi. Þetta er upptaka frá tónleikunum Gildrunnar í Hlégarði í maí á síðasta ári og sú fyrsta sem er birt á DVD frá tónleikunum.

Gildran Austurbæ
Auglýsing frá Spot
Þá er LOKSINS komið að því....

GILDRAN á SPOT laugardagskvöldið 23. Júlí.

Það þarf ekki að fjölyrða um að Gildran er eitt stærsta nafn íslenskrar rokksögu, skipuð einum fremstu tónlistarmönnum landsins og hafa fyrir löngu skipað sér á stall með bestu rokksveitum Íslandssögunnar.

Síðast þegar Gildrumenn spiluðu á höfuðborgarsvæðinu var rúmlega húsfyllir og þurftu margir frá að hverfa.

Við hvetjum alla unnendur íslenskrar rokktónlistar til að láta þetta EKKI framhjá sér fara og endilega segðu vinum þínum frá ;-)

Toots

http://youtu.be/yKnG_9q4crA

Þvílíkir galdramenn

Stórkostleg hljómsveit sem var engri lík og öll meistaraverkin þeirra lifa eins og samin hafi verið í dag og um ókomna tíð.

Takið eftir mögnuðum trommaranum sem galdrar fram takta og tónlist úr settinu án þess að hafa nokkuð fyrir því.

http://youtu.be/pAVhKjsImeI


Ella ótrúlega

http://youtu.be/3ahbE6bcVf8

Flottir Valdimarar

http://youtu.be/NuP3zNC-vPo

Rain

http://youtu.be/1uTZMpxHEJw

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband