Færsluflokkur: Bloggar
fim. 28.4.2011
Toyota Rav 4 til sölu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 28.4.2011
Hann er til sölu
Við vorum svo makalaust óheppinn að fíni bíllinn okkar, Toyota Rav 4 árgerð 2002 hafnaði á ljósastaur á dögunum og skemmdist þó nokkuð mikið að framan verðu.
Bíllinn er samt sem áður ökuhæfur og virðist sem allur vélarbúnaður og annað tilheyrandi hafi ekkert laskast í óhappinu.
Þetta er einstaklega gott eintak af bíl og aðeins ekinn 72.000 km. Þegar við eignuðumst hann fyrir ári síðan er mér til efs að nokkru sinni hafi verið sest í aftursætin. Bíllinn var í eigu eldri manns nánast frá upphafi.
Bíllinn er til sölu í því ástandi sem hann er í nú. Þetta er tilvalið verkefni fyrir laghenta menn og konur að fást við.
Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá mér í síma: 897 - 7664.
Athugið, myndin hér að ofan er ekki af okkar bíl en af sömu sort og árgerð, liturinn er einnig sá sami.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mán. 25.4.2011
Flottir feðgar
Það er magnað þegar genin skila sér alla leið til afkomendanna.
Slíkt má sannarlega segja um þá feðga, Sigurgeir, félaga minn úr Gildrunni og Davíð son hans sem stefnir jafnvel í að verða betri en pabbinn á gítarinn og þá er nú mikið sagt.
Það er einnig kostulegt að þeir eru bókstaflega eins á sviði með hljóðfærið í hönd.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fös. 22.4.2011
Eyþór var glæsilegur glímumaður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 14.4.2011
Hér er trommað af lífi og sál
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 8.4.2011
Nútímakona
Allar tilraunir okkar Gildrufélaga til að reyna vera fyndnir í textum hafa mislukkast. Sennilega er það vegna þess að við höfum verið svo heppnir að starfa með frábærum textahöfundum sem hafa samið fyrir okkur svo innihaldsríka og góða texta.
Því virðist sem gagnrýnendur hafi ekki gefið okkur félögunum tækifæriá að gantast öðru hverju, heldur tekið bullinu í okkur alvarlega þegar við höfum sjálfir reynt að hnoða einhverju saman.
Þetta lag og texti er eitt dæmi um það. Þarna ætluðum við að vera svakalega sniðugir og koma með rosalegan karlrembutexta, það fór ekki vel. Við vorum gersamlega teknir í bakaríið fyrir þetta þegar dómar um plötuna komu.
<iframe title="YouTube video player" width="480" height="390" src="http://www.youtube.com/embed/XJl4A2p76LI" frameborder="0" allowfullscreen></iframe>
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 6.4.2011
Dettifoss
|
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
sun. 20.3.2011
Gaman hjá Guðna
Í dag var ég í viðtali hjá Guðna Má Henningssyni, þeim skemmtilega og einstaklega viðkunnalega útvarpsmanni. Þáttur hans er alltaf á sunnudögum og hefst að loknum hádegisfréttum.
Hér set ég inn viðtalið sem hefst þegar þátturinn er u.þ.b hálfnaður.
http://dagskra.ruv.is/ras2/4558202/2011/03/20/
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
lau. 19.3.2011
Mosfellingar ánægðir
Mosfellsbær er, ásamt Garðabæ, besta sveitarfélagið til að búa í að mati íbúa og hvergi er meiri ánægja með skipulagsmál. Þetta kemur fram í könnun Capacent þar sem mæld var ánægja með þjónustu sveitarfélaga.
Alls eru 92% íbúa í Mosfellsbæ ánægð með Mosfellsbæ sem stað til að búa á og fær Mosfellsbær einkunnina 4,5 af 5 mögulegum, sem er hæsta einkunn sem íbúar gáfu sveitarfélagi sínu. Til samanburðar gáfu íbúar í Reykjanesbæ sínu sveitarfélaginu einkunnina 3,8 sem er lakasta einkunnin í mælingunni í ár.
Þetta er í þriðja sinn sem könnunin er gerð. Mosfellsbær er eitt fjögurra sveitarfélaga af 16 sem hækkar í einkunn milli ára. Einkunn flestra sveitarfélaga standa í stað eða lækka milli ára.
Hvergi á landinu er meiri ánægja með skipulagsmál en í Mosfellsbæ. Aðeins Vestmannaeyingar eru ánægðari en Mosfellingar með þjónustu til íþróttaiðkunar í sveitarfélaginu og einungis Ísfirðingar eru ánægðari með menningarmál en Mosfellingar í sínu bæjarfélagi.
Mosfellsbær kemur almennt mjög vel út í flestöllum spurningum. Í aðeins tveimur sveitarfélögum er meiri ánægja með leikskóla en í Mosfellsbæ og ánægja með grunnskóla Mosfelslbæjar hefur aukist talsvert milli ára og raðast Mosfellsbær í sjötta sæti í þeirri spurningu.
Samkvæmt könnuninni stendur Mosfellsbær sig síst í að sinna þjónustu við eldri borgara þar sem Mosfellsbær raðast fyrir neðan miðju miðað við önnur sveitarfélög.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri segist afar ánægður með útkomuna. Það er gaman að sjá hvað Mosfellingar eru ánægðir með bæinn sinn. Hér er frábært að búa eins og sést á niðurstöðum könnunarinnar.
Hann segir það ánægjulegt að Mosfellsbær hefur hækkað í einkunn síðustu tvö ár og að það sé staðfesting á þeim áherslum sem unnið sé eftir hér í sveitarfélaginu.
Við komum ekki nógu vel út varðandi þjónustu við eldri borgara en það kemur ekki á óvart. Við höfum barist fyrir því í mörg ár að fá hér byggt hjúkrunarheimili sem nú loksins er orðið að veruleika. Í tengslum við hjúkrunarheimili verður byggð aðstaða fyrir félagsstarf aldraðra sem lengi hefur mátt bæta, segir Haraldur ennfremur.
Bókun meirihlutans á síðasta bæjarstjórnarfundi
Mosfellsbær er besta sveitarfélagið til að búa í ásamt Garðabæ að mati íbúa samkvæmt könnun Capacent þar sem mæld var ánægja með þjónustu sveitarfélaga. Það er gleðiefni að 92% íbúa í Mosfellsbæ eru ánægð með sveitarfélagið sitt sem stað til að búa á og fær Mosfellsbær einkunnina 4,5 af 5 mögulegum, sem er hæsta einkunn sem íbúar gáfu sveitarfélagi sínu.
Einkunn Mosfellsbæjar hækkar milli ára og er Mosfellsbær eitt fjögurra sveitarfélaga sem það gerist. Í lang flestum atriðum sem spurt er um í könnuninni er einkunn Mosfellsbæjar með þeim bestu sem gerast en sérstaka athygli vekur að hvergi er meiri ánægja með skipulagsmál en í Mosfellsbæ. Mikil ánægja er einnig með aðstöðu til íþróttaiðkunar og menningarmálin þar sem aðeins eitt sveitarfélag á landinu öllu er með hærri einkunn.
Meirihluti D- og V lista fagnar þessum niðurstöðum sérstaklega um leið og starfsfólki bæjarins er þökkuð sú vinna sem m.a. skapar þessa niðurstöðu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 4.3.2011
Seppo Mattinen
Maleren og grafikeren Seppo Mattinen er født i 1930 i Finland. Han studerede kunst og kunsthåndværk i Helsingfors og senere i Göteborg, før han kom ind på Kunstakademiet i København i 1954 året før han debuterede på Kunstnernes Efterårsudstilling. Siden 1985 har Seppo Mattinen boet i Rom.
Trionfale er titlen på Seppo Mattinens maleri til Post Danmark. Titlen henviser til den ældgamle romerske triumfvej Via Trionfale, som Seppo Mattinens atelier i Rom ligger i nærheden af. Vejen er fyldt med fantasifulde og særprægede huse, der har givet ham inspiration til mange malerier.
I 1985 blev Seppo Mattinen hædret med Eckersberg Medaillen.
Udgivelsesdag: 6. juni 2007
Seppo Mattinen: Trionfale
Trykmetode: OffsetMaleren og grafikeren Seppo Mattinen er født i 1930 i Finland. Han studerede kunst og kunsthåndværk i Helsingfors og senere i Göteborg, før han kom ind på Kunstakademiet i København i 1954 året før han debuterede på Kunstnernes Efterårsudstilling. Siden 1985 har Seppo Mattinen boet i Rom.
Trionfale er titlen på Seppo Mattinens maleri til Post Danmark. Titlen henviser til den ældgamle romerske triumfvej Via Trionfale, som Seppo Mattinens atelier i Rom ligger i nærheden af. Vejen er fyldt med fantasifulde og særprægede huse, der har givet ham inspiration til mange malerier.
I 1985 blev Seppo Mattinen hædret med Eckersberg Medaillen.
Udgivelsesdag: 6. juni 2007
Seppo Mattinen: Trionfale
Trykmetode: Offset
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)