mið. 10.12.2008
Atvinnurekendur blésu okkur byr undir báða vængi
Bæjaryfirvöld Mosfellsbæjar stóðu fyrir hádegisfundi í Hlégarði í dag þar sem atvinnurekendum og fyrirtækjaeigendum í bæjarfélaginu var boðið að koma til skrafs og ráðagerða.
Óhætt er að segja að bæði mæting og hugur þess góða fólks sem að fyrirtækja- og atvinnurekstri stendur í bæjarfélaginu hafi blásið okkur bæjaryfirvöldum byr undir báða vængi. Ekki var á nokkurri manneskju að heyra uppgjafartón, heldur miklu frekar jákvæðni og að nú skildi blásið til sóknar.
Í ljósi þeirra aðstæðna sem nú ríkja og voru vissulega m.a. ástæða þess að fundurinn var haldinn, var það ómetanlegt að ganga út af honum með þá bjartsýni og einurð sem ríkti meðal allra fundargesta.
Hugurinn ber okkur hálfa leið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
þri. 9.12.2008
Stuldur frá Hallsteini frænda, kostulegar myndir
Þessar myndir eru kostulegar. Að venju grefur minn góði frændi, Hallsteinn Magnússon, (steinimagg.blog.is) alltaf upp skemmtilegar myndir.
Þessi myndasyrpa er kostuleg.
Ísbirnir eru mér sérlega hugleiknir fyrir allar sakir, þeir eru magnaðir.
Bangsa hefur eflaust langað að bregða á leik.
http://www.flickr.com/photos/alaskapodshow/sets/72157604456019482/show/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
lau. 6.12.2008
Flott sýning hjá Þóru að venju
Við hjónin, amma Millý og Birna vorum að koma frá Hvirfli, þar sem Þóra Sigurþórsdóttir, leirlistarkona, var með sína árlegu desembersýningu. Að venju far fjöldi fólks og heilmikil stemning. Það er alltaf jafn gaman að koma á Hvirfil.
Sýningin stendur yfir til 23. desember og er opið alla daga frá kl. 14-18.
Í vikunni, var sýnt í þættinum, Innlit útlit, á Skjá einum afar skemmtilegt viðtal við Þóru, það er hægt að sjá á netinu..
Þessi mynd er tekin á vinnustofu Þóru fyrir nokkrum árum. Gæsapabbi gægist á gluggann.
Þóra og Birna eru miklar vinkonur. Á myndinni hlýðir Þóra Birnu yfir í lestrinum.
Að venju spiluðum við Jónas Þórir saman við opnun sýningarinnar hjá Þóru. Dúettinn okkar kallast Hvirfilbylur og kemur alltaf saman við þetta tækifæri.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
lau. 6.12.2008
Var þetta fræga jólalag samið í Mosó?
Ég set hér inn eina ársgamla færslu því brátt mun nú gamla Brúarlandshúsið fá að nýju sitt gamla hlutverk, að vera skólahús.
Á stríðsárunum voru fjölmargir hermenn, bandarískir og breskir með sínar bækistöðvar í Mosfellsbæ. Enn í dag má sjá merki þess t.d. á Ásunum við Þingvallaafleggjara en þar eru enn rústir af gömlu sjúkrahúsi. Margar sögur hafa verið skrifaðar af hjúkrunarkonu sem starfaði þar og talið er að sé þar en á sveimi.
Á Brúarlandi hjá ömmu Kristínu og afa Lárusi var einnig fjöldi hermanna með sitt athvarf og hefur mamma sagt mér margar skemmtilegar sögur frá þeim tíma. Þá var mamma lítil stelpa, hún er næst yngst í stórum systkinahópi. Brúarland er eitt fallegasta hús okkar Mosfellinga og frá þessu gamla skólahúsi eiga margir Mosfellingar fallegar og góðar minningar.
Nú ári eftir að ég skrifaði þessa færslu mína er þetta gamla fallega hús að fá sitt gamla hlutverk aftur.
Nýlega sagði góður vinur minn mér skemmtilega sögu, hafða eftir föður sínum, að einn af þeim hermönnum sem hafi verið í Mosfellsbæ á þessum tíma hafi verið Lee Roy Anderson. Lee Anderson samdi skömmu síðar eitt frægasta og fallegasta jólalag allra tíma sem ég læt hér fylgja með í stórkostlegum flutningi Ellu Fitzgerald. Njótið vel.
Þessi mynd af gamla Brúarlandi er fengin frá Sigurði Hreiðari. Hann á stórt og mikið safn ljósmynda og er mikil fróðleiksnáma um gamla tíð í Mosfellssveit.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fös. 5.12.2008
Lagt er til að Varmársamtökin kosti málshöfðun
Það er greinilega í nógu að sýslast hjá forkólfum Varmársamtakanna þessa dagana, svona rétt fyrir jól, og allt er þetta jafn uppbyggjandi, jákvætt og skemmtilegt eins og vanalega. Ólafur gjaldkeri Varmársamtakanna virðist tvístígandi þessa dagana hvort hann á að kæra eða ekki. Hvað samtökin ætla að kæra, er svo annað mál og flóknara að átta sig á. Það verður tíminn að leiða í ljós.
Þetta sagði gjaldkeri samtakanna þann 4. des kl. 19:39
"Varmársamtökin geta lögsótt Karl vegna framgöngu sinnar en ég legg til að samtökin leggi frekar áherslu á að gerð verði hvítbók í Mosfellsbæ, þar sem farið verður yfir gerðir Karls og annarra bæjarstjórnarmanna og hvort að þeirra persónulegu hagsmunir hafi haft áhrif á ákvarðanir í tengslum við almannahagsmuni. Í ljósi þeirra atburða sem hafa riðið yfir samfélagið og sú spilling sem er allsráðandi í meðhöndlun fjármuna væri athugandi að fara fram á það að bæjarstjórnamenn geri grein fyrir eigna og fjárhagsstöðu sinni, að þeir geri grein fyrir því hvort að þeir hafi átt viðskipti persónulega með jarðir og lóðir, hvort að þeir hafi hagnast persónulega á síðustu misserum beint eða óbeint á þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið í bæjarstjórn. Ef menn hafa ekkert að fela hafa þeir ekkert að óttast".
Þetta sagði svo gjaldkerinn sama dag kl. 22:07
"Ég styð þig heilshugar Gunnlaugur og legg til að Varmársamtökin leiti leiða til að fjármagna málsóknina þar sem aðförin að þér hefur verið í tengslum við málflutning þinn og störf fyrir hönd samtakanna".
Í hverju málshöfðunin mun felast, er mér reyndar hulin ráðgáta. Það verður tíminn einn að leiða í ljós eins og áður segir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fös. 5.12.2008
Desembersýning Þóru
Hin árlega desembersýning leirlistarkonunnar Þóru Sigurþórsdóttur verður opnuð á morgun. Eins og venjulega er hún haldin á vinnustofu hennar að Hvirfli í Mosfellsdal.
Sýningin stendur yfir til 23. desember og er opið alla daga frá kl. 14-18.
Að venju mun dúettinn, Hvirfilbylur, leika og syngja við opnunina.
Í vikunni, var sýnt í þættinum, Innlit útlit, á Skjá einum afar skemmtilegt viðtal við Þóru, það er hægt að sjá á netinu..
Þessi mynd er tekin á vinnustofu Þóru fyrir nokkrum árum. Gæsapabbi gægist á gluggann.
Þóra og Birna eru miklar vinkonur. Á myndinni hlýðir Þóra Birnu yfir í lestrinum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 5.12.2008
Það ríkir mikil ánægja
Svo virðist sem það ríki almennt mjög mikil ánægja með það að fyrsti framhaldsskóli Mosfellinga hefji göngu sína í gamla Brúarlandshúsinu.
Ég skrifaði um þetta ekki alls fyrir löngu hér á blogginu mínu og ætla nú í tilefni dagsins að birta part af því aftur.
Rétt er að benda á að bæjarblaðið Mosfelling er hægt að sjá hér til vinstri á síðu minni en þaðan er fréttin fengin hjá mbl.
Það er sérlega gaman til þess að vita að fyrsta skóla- og menningarhús okkar Mosfellinga gegni því hlutverki til að byrja með að verða aftur, nú nokkrum áratugum síðar að nýju skólahús. Brúarland er eitt fallegasta hús Mosfellsbæjar, teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Nú verður þetta gamla fallega hús tekið í gegn að innan sem utan.
Þessar tvær myndir hér fyrir ofan eru teknar af fræðsluskilti við Brúarlandshúsið. Textann samdi Bjarki Bjarnason gamall nemandi í Brúarlandi.
Gamlir kennarar í Brúarlands- og Varmárskóla. Efst til vinstri: séra Bjarni Sigurðsson, Lárus Halldórsson, Sigvaldi Sturlaugsson og Birgir D. Sveinsson. Neðri röð frá vinstri: Tómas Sturlaugsson, Klara Klængsdóttir og Eyjólfur Magnússon. Þessar skemmtilegu tvær myndir hér fyrir ofan fékk ég sendar frá Birgi D. Sveinssyni á dögunum og þakka ég fyrir þessa skemmtilegu sendingu en Birgir á stórt og mikið safn ljósmynda frá gamalli tíð og nýrri úr Mosfellssveit og bæ.
Þessi mynd er tekin þegar skrifað var undir samning við Menntamálaráðuneytið um að stofnsettur yrði framhaldsskóli í Mosfellsbæ.
![]() |
Framhaldsskóli í Brúarlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mið. 3.12.2008
Um sannleiksást og þráhyggju
Undanfarna daga og vikur, hefur Gunnlaugur B. Ólafsson, bloggari farið mikinn í skrifum sínum á síðu sinni og annarra. Skrif hans hafa einkennst af harðri gagnrýni á störf Vinstri grænna. Að þessu sinni ekki einungis í Mosfellsbæ, heldur á landsvísu.
Á sama tíma hefur hann reynt að réttlæta öll útspil Samfylkingarinnar í landspólitíkinni vegna ástandsins. Ekki það, að mér detti í hug að álasa Samfylkingunni einni saman um það ástand sem í þjóðfélaginu ríkir nú um mundir. Öðru nær, það er öllu flóknara en það.
Svo virðist sem Gunnlaugi sé ekki svefnsamt vegna fylgisaukningar Vinstri grænna þessa dagana og vikurnar.
Gunnlaugur B. Ólafsson er einn stofnenda Varmársamtakanna og hefur verið þeirra aðal talsmaður ásamt Sigrúnu Pálsdóttur. Hann var formaður nú síðastliðna fimm mánuði en er nú varamaður í stjórn. Það vakti fljótlega athygli mína sú gengdarlausa þráhyggja Gunnlaugs og einstaka stjórnarfólks samtakanna, þar á meðal Sigrúnar Pálsdóttur að benda aðeins á okkur Vinstri græn í Mosfellsbæ í þessum margumtöluðu vegaframkvæmdum inn í Helgafellshverfi. Leynt og ljóst virtist sem það væri aðal markmið samtakanna að ná höggi á Vinstri græn í Mosfellsbæ og mig persónulega. Vakti sú harða aðför fljótlega athygli mína. Það sem verra er að ekkert lát virðist á henni.
Nýlega skrifaði Sigrún Pálsdóttir gein sem hún kallaði: Um sannleiksást Karls Tómassonar.
Í grein sinni segir Sigrún m.a.
"Margir hafa undrast það langlundargeð sem umhverfisverndarsinnar í Vinstri grænum hafa sýnt Karli".
"Sú spurning gerist sífellt áleitnari hversu langt Karl Tómasson fær að ganga áður en þolinmæði flokksfélaganna þrýtur endanlega"?
"Landslag á bökkum Varmár hefur verið sundurtætt af skurðgröfum í valdatíð Karls Tómassonar. Hann ber ásamt fleirum ábyrgð á því".
"Í viðtalinu gerir Karl sjálfan sig að píslarvotti og segist persónulega hafa verið tekinn fyrir. Ljóst er Karl gerir hér engan greinarmun á starfi sínu sem stjórnmálamaður og persónulegum málum".
Ég tel það löngu orðið tímabært að Gunnlaugur B. ,Sigrún, og þeirra fólk fari nú að átta sig á því, að baki slíkra ákvarðana eins og veglagninga í bæjarfélaginu koma fleiri að en ein manneskja.
Ég tel skrif Gunnlaugs B. undanfarið og Sigrúnar, sem bæði eru flokksbundin í Samfylkingunni, styðja þá ályktun mína allt frá upphafi, að þau hafi farið algerlega framúr sér í flokkspólitíkinni í störfum sínum fyrir samtökin.
Eins og frægt er orðið fór þessi umræða um veglagninguna inn í Helgafellshverfi, starf mitt og persónu að mestu fram á síðu nafnlaus bloggdólgs sem lengi vel var kenndur við Varmársamtökin. Dæmi voru um stjórnarfólk samtakanna sem tók þar virkan þátt í mjög svo niðrandi skrifum og persónuárásum. Lítið sem ekkert virtist hinsvegar gerast á síðu samtakanna sjálfra, hvorki þá né gerir nú og umræða þar og athugasemdir í lágmarki.
Eins og heyra má í viðtalinu sem ég set hér slóð á, taldi ég daga þessa bloggdólgs lokið, enda var þessari síðu lokað mjög snögglega og það án nokkurrar viðvörunnar. Það ætti að segja meira en mörg orð um það sem þar fór fram.
Þarna hafði ég ekki á réttu að standa. Frá því að viðtalið var tekið við mig hefur önnur síða verið opnuð sem var einnig lokað mjög snarlega og nú er sú þriðja nýlega farin í gang.
Ég set þetta viðtal hér inn með þessari færslu. Með því að fara 20 mínútur aftur í viðtalið má heyra þau orð mín þar sem ég tel daga bloggdólgsins lokið.
Mikið vona ég að þetta fólk sem að slíkum síðum stendur öðlist hugarró svona rétt fyrir jólin með fjölskyldum sínum, í eitt skipti fyrir öll.
Þetta er vægast sagt óhugguleg þráhyggja og heift.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Bloggar | Breytt 4.12.2008 kl. 06:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)