lau. 7.4.2007
Fóbían
Hvernig ætli standi á því að fólk fái heiftarlega fóbíu fyrir öllu mögulegu? Oft er þetta svo slæmt að sækja þarf námskeið til að vinna bug á ástandinu. Maður fær svo sem botn í það að manneskja sem býr í Ástralíu geti verið nervös við loðnar köngulær. Það er hins vegar verra að átta sig á því að manneskja sem býr á Íslandi óttist ekkert meira en krókódíla eða eiturslöngur. Ég er t.d. svo illa haldinn af fóbíu gagnvart hákörlum að þegar ég fór í fyrsta skipti á sólarströnd fyrir fimm árum óð ég ekki dýpra í flæðarmálinu en upp að hnjám. Getur einhver bent mér á hvort það eru haldin námskeið á Íslandi gegn hákarlafóbíu, ég er nefnilega að spá í að fara aftur á Benidorm í sumar. Flugleiðir, sem flytja ógrynni af ferðamönnum á sólarstrandir eru oft með námskeið fyrir þá sem eru með flugfóbíu.
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:22 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Efni
Tenglar
Mínar síður
- Mosfellsbær Heimasíða Mosfellsbæjar
- Mosfellingur Bæjarblaðið Mosfellingur
- Vinstri Græn Vinstri hreyfingin - grænt framboð
Bloggvinir
- Hulda Bergrós Stefánsdóttir
- Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Áslaug Helga Hálfdánardóttir
- Ásthildur Cesil Þórðardóttir
- Sigurður Hreiðar
- Bjarni Bragi Kjartansson
- Bergþóra Jónsdóttir
- Benedikt Halldórsson
- Brynjar Hólm Bjarnason
- Brynjólfur Þorvarðsson
- Hrannar Baldursson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Viðar Eggertsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Elín Katrín Rúnarsdóttir.
- Einar Sveinbjörnsson
- Eyþór Árnason
- Fjarki
- Baldur Fjölnisson
- Gísli Bergsveinn Ívarsson
- gudni.is
- Guðmundur H. Bragason
- Guðmundur Rafnkell Gíslason
- Gústav J. Daníelsson
- Haukur Nikulásson
- Heimskyr
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Kaleb Joshua
- Sigga Hjólína
- Hlynur Hallsson
- HP Foss
- Hvíti Riddarinn
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Ingvar Valgeirsson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jakob Smári Magnússon
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- JEA
- Jenný Anna Baldursdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Kristjánsson
- Jóna Á. Gísladóttir
- Jón Ingi Cæsarsson
- Gudrún Hauksdótttir
- Bergur Thorberg
- Þorkell L. Þorkelsson
- Pétur Björgvin
- Kristján Kristjánsson
- Kjartan Pálmarsson
- Kjartan Valdemarsson
- Guðjón H Finnbogason
- Laugheiður Gunnarsdóttir
- Linda Samsonar Gísladóttir
- Helga Sveinsdóttir
- Magnús Már Byron Haraldsson
- Alfreð Símonarson
- Hlynur Þór Magnússon
- Markús frá Djúpalæk
- Þráinn Árni Baldvinsson
- Guðjón Sigþór Jensson
- Mummi Guð
- Myndlistarfélagið
- Jón Svavarsson
- Pálmi Gunnarsson
- Paul Nikolov
- Vilborg
- Jón Steinar Ragnarsson
- Ragnar L Benediktsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Huld S. Ringsted
- Rósa Harðardóttir
- Rúnar Birgir Gíslason
- Sædís Ósk Harðardóttir
- Sæþór Helgi Jensson
- Ásgeir Eiríksson
- Gammur drils
- Matti sax
- Sigurjón Sigurðsson
- Óskar Þorkelsson
- Óskar V Kristjánsson
- Guðmundur St. Valdimarsson
- Halldór Sigurðsson
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Gunnar Ólafur Kristleifsson
- Sóley Valdimarsdóttir
- Steinunn Helga Sigurðardóttir
- Þorsteinn Briem
- Sverrir Stormsker
- Sveinn Ingi Lýðsson
- Sverrir Þorleifsson
- Þóra Sigurðardóttir
- Þrúður Finnbogadóttir
- TómasHa
- Halldór Egill Guðnason
- Úrsúla Jünemann
- Vefritid
- Vestfirðir
- Guðfríður Lilja
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Aðalheiður Haraldsdóttir
- Auðunn Hilmarsson
- Ásbjörg Ísabella Magnúsdóttir
- Bjarni Harðarson
- Björgvin R. Leifsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Haraldsdóttir
- Bwahahaha...
- Dunni
- Elísabet Sigmarsdóttir
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Gulli litli
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Halldór Baldursson
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Hilmar Dúi Björgvinsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- hilmar jónsson
- Högni Snær Hauksson
- Jack Daniel's
- Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
- Jóhann Pétur
- kreppukallinn
- Leikhópurinn Lotta
- Linda litla
- Ólafur Th Skúlason
- Páll Rúnar Elíson
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnheiður Ríkharðsdóttir
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigurður Einarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Sóldís Fjóla Karlsdóttir
- Steingrímur Helgason
- steinimagg
- Sveinn Arnar Sæmundsson
- Valdimar H Jóhannesson
- Þórður Björn Sigurðsson
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Myndaalbúm
á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kalli minn, það eru öngvir mannætuhákarlar við Spán. Aukinheldur, þótt þú værir staddur við Ástralíustrendur syndandi sæll og glaður, væru ekkert svo miklar líkur á að stór og hvítur hákarl myndi éta þig. Miklu líklegra að þú lendir þar í marglyttum, en það er gríðarlega langvinnt og sársaukafullt dauðastríð sem gefur sinnepsgasi ekkert eftir nema síður sé. Þá myndirðu grátbiðja Guð um hákarl.
Best er að vera ekkert að þvælast þetta til útlanda, ferðast bara innanlands og skoða þær náttúruperlur sem land vort hefur upp á að bjóða, Mosó, Akureyri og Kárahnjúkastífluna.
Ingvar Valgeirsson, 9.4.2007 kl. 15:39
Elsku Kalli minn.....er enginn spennufíkn í þér karlinn minn .... bara láta vaða og vaða, ekki spurning.
Ég má til með að skella einni hákarlasögu á bloggið mitt sem ég fann í grúski mínu á Siglufirði, þá sérðu hvað ég er í raun illa innrætt ...
Herdís Sigurjónsdóttir, 9.4.2007 kl. 17:21
Anna takk fyrir að reyna að hughreysta mig með að hákarlarnir séu meinlausir og dauðastríðið taki fljótt af.
Ingvar takk fyrir að reyna að hughreysta mig og bæta annarri tegund úr sjónum við einhverjum hræðilegum marglyttum.
Herdís mín ég þakka þér líka fyrir þessa fallegu mynd sem þú ert búinn að setja á bloggið þitt.
Kæru vinir, ég er allur annar.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 9.4.2007 kl. 23:00
Það var ekkert að þakka, ég lifi til að gjöra aðra ánægða...
Ingvar Valgeirsson, 10.4.2007 kl. 00:08
Ég vil nú ekki vera kvikindislegur Kalli minn en ég las einhversstaðar að flestar árásir hákarla á fólk væri einmitt í 30-90 cm. hæð.Hvað svo sem er þar satt en ég er líka haldin svipaðri fóbíu gagnvart hákörlum og sólbruna þá er sennilega best að halda sig bara sem næst barnum..
Högni Snær Hauksson
Högni Snær Hauksson (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 20:53
Sæll Högni minn og gaman að fá þig í heimsókn. Það er ekki að spyrja að þér, loks fékk ég gott ráð. Við förum saman á barinn.
Kær kveðja frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 11.4.2007 kl. 21:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.