þri. 12.11.2013
Vikurnar líða sem aldrei fyrr
Það hlýtur í senn bæði að vera ánægjulegt að tíminn líði hratt, því þá er örugglega gaman að vera til en einnig áhyggjuefni, því það er óneitanlega glöggt merki um að aldurinn færist hratt yfir. Síðastliðin vika er gott dæmi um viku sem leið vægast sagt hratt.
Við æskuvinirnir og bekkjarfélagarnir úr Varmárskóla héldum ásamt spúsum okkar villibráðarkvöld á heimili okkar Línu á Álafossvegi sem var hreint stórkostlega vel heppnað. Allir komu með eitthvað og úr varð hrein snilldar veisla og bráðskemmtilegur dagur, kvöldstund og nótt. Þvílík stemning í öllum og meistararéttir snæddir fram eftir nóttu ásamt því að spjalla, hlusta á tónlist og syngja eins og gengur. Það er ómetanlegt að hitta gamla æskuvini reglulega og rifja upp gamla tíma og nýja og ég er endalaust þakklátur fyrir það.
Matur undirbúinn
Yfirkokkurinn Óskar, ásamt aðstoðarmönnum sínum, Stínu, Pétri og Kalla
Stoltur yfirkokkurinn við aðeins brot af veitingunum
Pétur og Gunna og aðstoðarkokkurinn greinilega alsæll
Þóra og Kiddi
Gunna og Lína
Trommuleikari Cosinus, Karl Tómasson og bassaleikari Lost, Hannes Hilmarsson, leiða saman hesta sína í fyrsta skipti á tónlistarferlinum en hljómsveitirnar báðar nutu mikilla vinsælda í Mosó á árum áður
Trausti Gylfason, kom m.a. með desertinn og það með stóru Déi
Þóra og Nonni
Lína og Birna fengust við það að setja saman jólapakka í vikunni sem kallast jól í skókassa sem er sending til munaðarlausra barna í Úkraínu. Þær mæðgur prjónuðu m.a. fallega vettlinga sem að fóru með í pakkana.
Jólapakkarnir fallegu tilbúinir, vonandi á innihaldið eftir að gleðja lítil börn
Birna afhendir pakkana
Okkur gamla settinu var boðið í hlustunarpartý hjá Kaleo þar sem nýja platan þeirra var spiluð og nýtt myndband frumsýnt. Það var frábær skemmtum og mikið er gaman að upplifa svo sterkt hvað strákarnir eru algerlega að slá í gegn.
Óli með mömmu og pabba
Jökull og Aldís
Við skemmtum okkur vel
Kalli Tomm, Svenni Matt, rótari okkar Bigga og alltmúligt mann í 66, frábær félagi og vinur. Aldís, Jökull og Kalli nafni sem m.a. rak Skálafell í Mosó og var fastagestur hjá mér á Knattborðsstofunni Kjuðanum.
KáTomm og sjóðheitur Jökull
Þetta er sérkennilegt augnablik á myndatöku. Gummi, gítarleikari, ég og Dabbi, trommari Kaleo og bræðurnir, Halldór og Gunnar allir í fíling, samt misgóðum
Bústaðurinn beið okkar svo í allri sinni dýrð og allt hans umhverfi sem nú er óðum að komast í vetrarbúning. Mikið er alltaf notalegt að fara í litla húsið okkar í Kjósinni og við hreinlega elskum það.
Þetta verður ekki toppað. Búið að kveikja upp í kamínunni og öll kerti loga, góður diskur á fóninum, hundarnir pollrólegir, konan og dóttirin að elda gúrme steik, væsari á kantinum og Skari í Garði á línunni
Við vorum ekki fyrr komin heim en að Helgi Páls vinur okkar kom færandi hendi með kofareykt hangilæri frá Fossi á Síðu og heilann skrokk. Kvöldið fór í að úrbeina hann og koma öllu gúrmeinu beina leið í frystinn.
Skrokkurinn kominn á borðið
Athugasemdir
Held að enginn skeri kjöt með grænum gleraugu milli eyrnanna, nema óskurðarkjötmeistarar. Var þetta ekki afhent með flugeldapökkum, hér um árið?
Efast ekki hænufet um að steikin var brilliant og allir skemmtu sér vel, en í Guðs bænum fáðu þér önnur gleraugu næst!
Þetta verður jú að líta "professional" út.;-)
Kveðja að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 15.11.2013 kl. 02:40
Það er rétt Halldór, þessi gleraugu fékk ég með flugeldunum. Ég þorði ekki annað en að hafa þau vegna ótta um að í mig gætu skotist kjötfliggsur og beinflísar.
Nei Halldór minn, það er greinilegt að þú ert algerlega að missa af nýjustu tískustraumum þarna fyrir sunnan, þetta eru heitustu gleraugun hér í menningunni.
Hver veit nema að þú fáir smá kjötbita næst þegar þú kíkir í heimsókn.
Bestu kveðjur og hafðu það alltaf sem best.
Kær kveðja frá KáTomm.
Karl Tómasson, 15.11.2013 kl. 17:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.