Lagt er til að Varmársamtökin kosti málshöfðun

Það er greinilega í nógu að sýslast hjá forkólfum Varmársamtakanna þessa dagana, svona rétt fyrir jól, og allt er þetta jafn uppbyggjandi, jákvætt og skemmtilegt eins og vanalega. Ólafur gjaldkeri Varmársamtakanna virðist tvístígandi þessa dagana hvort hann á að kæra eða ekki. Hvað samtökin ætla að kæra, er svo annað mál og flóknara að átta sig á. Það verður tíminn að leiða í ljós.

Þetta sagði gjaldkeri samtakanna þann  4. des kl. 19:39

"Varmársamtökin geta lögsótt Karl vegna framgöngu sinnar en ég legg til að samtökin leggi frekar áherslu á að gerð verði hvítbók í Mosfellsbæ, þar sem farið verður yfir gerðir Karls og annarra bæjarstjórnarmanna og hvort að þeirra persónulegu hagsmunir hafi haft áhrif á  ákvarðanir í tengslum við almannahagsmuni.  Í ljósi þeirra atburða sem hafa riðið yfir samfélagið og sú spilling sem er allsráðandi í meðhöndlun fjármuna væri athugandi að fara fram á það að bæjarstjórnamenn geri grein fyrir eigna og fjárhagsstöðu sinni, að þeir geri grein fyrir því hvort að þeir hafi átt viðskipti persónulega með jarðir og lóðir, hvort að þeir hafi hagnast persónulega á síðustu misserum beint eða óbeint á þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið í bæjarstjórn.  Ef menn hafa ekkert að fela hafa þeir ekkert að óttast".

Þetta sagði svo gjaldkerinn sama dag kl. 22:07

"Ég styð þig heilshugar Gunnlaugur og legg til að Varmársamtökin leiti leiða til að fjármagna málsóknina þar sem aðförin að þér hefur verið í tengslum við málflutning þinn og störf fyrir hönd samtakanna". 

Í hverju málshöfðunin mun felast, er mér reyndar hulin ráðgáta. Það verður tíminn einn að leiða í ljós eins og áður segir.


Desembersýning Þóru

Hin árlega desembersýning leirlistarkonunnar Þóru Sigurþórsdóttur verður opnuð á morgun. Eins og venjulega er hún haldin á vinnustofu hennar að Hvirfli í Mosfellsdal.

Sýningin stendur yfir til 23. desember og er opið alla daga frá kl. 14-18.

Að venju mun dúettinn, Hvirfilbylur, leika og syngja við opnunina.

Í vikunni, var sýnt í þættinum, Innlit útlit, á Skjá einum afar skemmtilegt viðtal við Þóru, það er hægt að sjá á netinu..

Þóra sýning 7

Þóra sýning 1

Þóra sýning 2

Þóra sýning 3

Þóra sýning 4

Þóra sýning 5

Þóra sýning 10

Þessi mynd er tekin á vinnustofu Þóru fyrir nokkrum árum. Gæsapabbi gægist á gluggann.

Þóra sýning 6

Þóra og Birna eru miklar vinkonur. Á myndinni hlýðir Þóra Birnu yfir í lestrinum.

 


Það ríkir mikil ánægja

Svo virðist sem það ríki almennt mjög mikil ánægja með það að fyrsti framhaldsskóli Mosfellinga hefji göngu sína í gamla Brúarlandshúsinu.

Ég skrifaði um þetta ekki alls fyrir löngu hér á blogginu mínu og ætla nú í tilefni dagsins að birta part af því aftur.

Rétt er að benda á að bæjarblaðið Mosfelling er hægt að sjá hér til vinstri á síðu minni en þaðan er fréttin fengin hjá mbl.

Það er sérlega gaman til þess að vita að fyrsta skóla- og menningarhús okkar Mosfellinga gegni því hlutverki til að byrja með að verða aftur, nú nokkrum áratugum síðar að nýju skólahús. Brúarland er eitt fallegasta hús Mosfellsbæjar, teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Nú verður þetta gamla fallega hús tekið í gegn að innan sem utan.

  

Brúarland

Brúarland 1

Þessar tvær myndir hér fyrir ofan eru teknar af fræðsluskilti við Brúarlandshúsið. Textann samdi Bjarki Bjarnason gamall nemandi í Brúarlandi.

 

 

Brúarland kennarar

Gamlir kennarar í Brúarlands- og Varmárskóla. Efst til vinstri: séra Bjarni Sigurðsson, Lárus Halldórsson, Sigvaldi Sturlaugsson og Birgir D. Sveinsson. Neðri röð frá vinstri: Tómas Sturlaugsson, Klara Klængsdóttir og Eyjólfur Magnússon. Þessar skemmtilegu tvær myndir hér fyrir ofan fékk ég sendar frá Birgi D. Sveinssyni á dögunum og þakka ég fyrir þessa skemmtilegu sendingu en Birgir á stórt og mikið safn ljósmynda frá gamalli tíð og nýrri úr Mosfellssveit og bæ.

 

undirskrift

Þessi mynd er tekin þegar skrifað var undir samning við Menntamálaráðuneytið um að stofnsettur yrði framhaldsskóli í Mosfellsbæ.

Brúarlan nýtt


mbl.is Framhaldsskóli í Brúarlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. desember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband