Mosfellingar ánægðir

Um þetta leiti fyrir ári síðan birti ég könnun á bloggi mínu um hversu ánægðir Mosfellingar voru með bæinn sinn árið 2011. Þá könnun má sjá hér að neðan hjá mér.

Ég hef verið nokkuð latur undanfarið að skrifa á bloggið mitt síðan þá en er að ranka úr rotinu þessa dagana.

Það er gaman að geta þess hér að samkvæmt nýjustu og sömu könnun ári síðar virðast Mosfellingar enn ánægðari nú.

 

 

Fyrirtækið Capacent gerði þjónustukönnun meðal sveitarfélaga október og nóvember árið 2012. Þar voru íbúar Mosfellsbæjar beðnir að meta hversu ánægðir þeir væru með Mosfellsbæ sem stað til að búa á.

 

Skemmst er frá því að segja að yfir 93% kváðust vera ánægðir.

 

 

Mosfellsbær er samkvæmt þessu í öðru sæti af 16 stærstu sveitarfélögunum landsins.

 

 

Íbúar voru beðnir í 11 liðum að leggja mat á umhverfi sitt og þjónustu sveitarfélagsins. Í öllum liðum var meðaleinkunn frá íbúum Mosfellsbæjar í eða yfir heildarmeðaltali allra sveitarfélaganna.

 

Hægt er að skoða skýrslu um könnunina nánar  hér á pdf skjali  eða vefútgáfu skjals  ef skjal hér neðar opnast ekki.

 

Ef þú hefur ekki 'Adobe PDF Reader' til að lesa .pdf skjöl getur þú sótt forritið hér

 


Ögmund á þing annað er rugl

Þegar vinstri stjórnin tók við hafði ráðherra í ráðuneyti dómsmála verið hægri maður sleitulaust frá 1989. Það er langur tími til að hafa tækifæri til að beita valdi sínu til góðra verka. Það var þó ekki fyrr en vinstri maðurinn Ögmundur Jónasson var ráðherra sem mannréttindi voru sett á oddinn í ráðuneytinu. Að sinna mannréttindamálum varð hluti af skilgreinindu hlutverki ráðuneytisins. Úr varð dóms- og mannréttindamálaráðuneyti. Heitið var táknrænt fyrir að vera ekki bara ráðuneyti kerfisins heldur líka fólksins. Síðar á kjörtímabilinu voru þessi málefni færð með samgöngumálum undir hatt núverandi innanríkisráðuneytis.

Verkin tala

Mannréttindi voru sett á oddinn og tekið var til hendinni. Sett var á fót ný staða fulltrúa mannréttindamála í ráðuneytinu sem ekki var til áður. Sá hefur alfarið á sinni könnu að sinna málefnum er varða mannréttindi og af nógu er að taka. Í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar hefur Ögmundur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um áætlun í mannréttindamálum til fjögurra ára. Undirbúning áætlunarinnar var í samráði við stjórnsýslu, fræðasamfélag og frjáls félagasamtök í opnu og umfangsmiklu samráði.

Unnið markvisst gegn ofbeldi

Hér ber auðvitað hæst kraftmikil barátta gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum. Hegningarlögum hefur verið breytt til að styrkja réttarvernd barna gegn ofbeldi. Sem dæmi má nefna að nú má refsa þeim sem seldur eru undir íslenska lögsögu fyrir kaup á barnavændi óháð því hvar í heiminum brotið á sér stað. Þetta er gríðarmikilvægt skref til þess að stuðla að vernd allra barna fyrir ofbeldi, ekki bara á Íslandi.
Komið hefur verið á laggirnar og staðið að vitundarvakningu um kynferðisofbeldi og kynbundið ofbeldi, í samvinnu við ráðuneyti mennta- og velferðarmála. Fjármagni hefur verið veitt í að styðja við forvarnir sem unnar eru af grasrótarsamtökum. Átakið hefur skilað stuttmyndinni Fáðu já og fræðslu fyrir börn í öðrum bekk um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum í formi brúðuleikhúss í samstarfi við samtökin Blátt áfram.
Staðið hefur verið fyrir umfangsmiklu samráðsferli um meðferð kynferðisbrota í réttarkerfinu og stórum alþjóðlegum ráðstefnum, minni samráðsfundum og ráðist hefur verið í lagabreytingar.
Nýlegur samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi, svokallaðan Istanbúl samning, er nú til umfjöllunar í ráðuneytinu. Ráðuneytið vinnur nú að úrvinnslu niðurstaðna úttektarinnar með fullgildingu samningsins að leiðarljósi.
Þrátt fyrir að við séum í efsta sæti yfir besta jafréttislandið í heimi fjórða árið í röð heldur Ögmundur áfram að vinna að jafnrétti með því að stuðla að því að enda ofbeldi gegn konum.
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur hrósað Íslandi fyrir lagabreytingar í þágu mannréttinda og jafnréttis til dæmis vegna innleiðingar hinnar svökölluðu austurrísku leiðar en hún snýst um að ofbeldismaður á heimili er fjarlægður þaðan í stað þess að þolandi og e.t.v. börn þurfi að fara að heiman. Þá hefura kaup á vændi bannað.
Sett hefur verið á laggirnar fagráð um kynferðisbrot innan trúfélaga þegar komu upp kynferðisbrot í kaþólsku kirkjunni.

..og fleira…

Barnalögum hefur verið breytt þannig að deildur foreldra um forsjá og umgengni hefur í auknum mæli verið beint í sáttafarveg í stað þess að slíkar deilur séu leystar í dómsölum. Þegar í ljós kom að það var kynbundinn launamunur í innanríkisráðuneytinu var hann leiðréttur. Unnið hefur verið að því að fullgilda samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks. Búið er að breyta kosningalögunum. Áhersla hefur verið lögð á að breyta útlendingalögunum með mannúð og skilvirkni að leiðarljósi.
Þetta er langt frá því að vera tæmandi talning á því sem gert hefur verið í innanríkisráðuneytinu og varðar mannréttindi og jafnrétti en mér þykir merkilegt að margt af þessu hafi ekki verið gert fyrir löngu síðan.

Árangur

Það er gríðarlega mikilvægt að opnað sé á umræðu um þau grófu ofbeldisbrot sem hér er fjallað um. Það leiðir til þess að fólk er frekar tilbúið til að stíga hið þugna skref út úr þeim skelfilegu aðstæðum sem það er í vitandi það að samfélagið mun mæta því með skilningi en ekki fordómum. Engum hefur dulist sú mikla umræða sem farið hefur fram um þessi ofbeldisbrot að undanförnu og nú er svo komið að fjöldi kæra hjá lögreglu vegna kynferðisbrota hefur aukist gríðarlega á undanförnum misserum.
Í síðustu viku var samþykkt að verja 79 milljónum króna á næstunni til fjölga rannsóknarlögreglumönnum og saksóknurum til að takast á við aukin verkefni vegna rannsóknar og meðferðar kynferðisbrotamála á Íslandi.
Pótlitík skiptir máli – enda þurfti róttækan vinstri mann í ráðuneytið til að hreyfa við þessum mikilvægu málum.


Ráð undir rifi hverju

Það er allt að verða geggjað venju samkvæmt svona rétt fyrir kosningar.

 

 

Öll blöð og netsíður orðnar stútfullar af sérfræðingum sem sjá lausnir á öllum vanda og ástæðu klúðurs síðari ára og hvernig hefði átt að bjarga öllum málum.

 

 

Hafa alltaf ráð undir rifi hvreju. 

Nú skal kosið eitthvað að viti. Eitthvað sem kemur okkur á réttan kjöl eftir að skútan fór svo eftirminnilega á hvolf og nánast hver einasti farþegi um borð var nærri drukknaður.

 

Já, nærri drukknaður!!!

 

En hriplekri skútunni tókst að koma á réttan kjöl og nú verður vonandi hægt að sigla henni í örugga höfn að loknum kosningum. Ég og mín fjölskylda höfum ekki farið varhluta af þeim skaða sem skútan varð fyrir, hann varð mikill og erfiður fyrir okkur.Við treystum hinsvegar engum betur til að sigla skútunni í örugga höfn, heldur en akkúrat þeirri áhöfn sem tókst að koma henni á flot á sínum tíma.

 

 

 

Það er með ólíkindum að lesa greinar allra þessara besservissara, bæði gömlu hrunflokkanna og áðdáenda klofningsframboða sem reyndar eiga það flestir sameiginlegt að tolla aldrei í einu eða neinu og virðast hafa það eitt að markmiði að mótmæla.

 

 

 

Mótmæla. Mótmæla. 


Undan vetri

Undan vetri

Orð segja eitt

en þögnin annað

orð segja allt sem er bannað

orð eru þörf

en þögnin betri

ef þú vilt koma

vel undan vetri. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband