fös. 19.3.2010
Listi VG Mos samþykktur samhljóða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
mið. 17.3.2010
Notaleg lesning
Það eitt að lesa orðið samstöðufund var notaleg og góð lesning. Hafðu þökk fyrir þetta frumkvæði Birgitta.
Vonandi næst góður árangur á fundinum og eins og fram kemur í fréttinni, verði í framhaldinu hægt að ná þverpólitískri sátt um afgreiðslu mála sem vafalítið eru mörg.
![]() |
Formenn halda samstöðufund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
þri. 16.3.2010
Gríðarleg spenna
Undanfarið hafa verið hér hjá mér tvær skoðanakannanir. Önnur snérist um hvort stjórnmálaleiðtogarnir hafi staðið undir væntingum og hin um ánægju á störfum Ólafs Ragnars Grímssonar undanfarið.
Ljóst er að vinsældir forsetans virðast samkvæmt öllu hér hjá mér, vera miklar hjá Sjálfstæðismönnum og Hreyfingunni þessa dagana.
Hvað varðar, hvort leiðtogarnir hafi staðið undir væntingum, þá hafa Bjarni Ben og Sigmundur Davíð haft vinninginn undanfarið.
Nú er komin ný könnun og endilega taktu þátt lesandi góður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 14.3.2010
Nikkan er engu lík
Jón Steinar Ragnarsson bloggvinur minn skrifaði nýlega skemmtilega grein um nikkuna á blogginu sínu og lét fylgja með skemmtilegt myndband af sönnum meistara á hljóðfærið.
Ég má einnig til með að skella hér inn hjá mér myndbandi af einum mögnuðum spilara leika listir sínar á þetta skemmtilega hljóðfæri.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
fim. 11.3.2010
Forseti vor, Ólafur Ragnar.
Mér datt í hug að setja hér á bloggið mitt skoðannakönnun og endilega taktu þátt.
Könnunin er hér efst upp í hægra horninu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 7.3.2010
Katrín Jakobsdóttir í Mosó.
Þriðjudaginn 9. mars kl. 20:00 verður haldin almennur félagsfundur Vinstri grænna í Mosfellsbæ.
Sérstakur gestur fundarins verður, Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra.
Fundurinn verður haldin í Hlégarði á annarri hæð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
fim. 4.3.2010
Ne, nei, nei, nei, nei, nei, nei, nei, nei, nei, nei,
Einar sögulegustu kosningar lýðveldisins fara fram nú á laugardag. Ekkert á að fá því breytt. Þjóðin hefur verið arðrænd af fáeinum, siðblindum fjárglæframönnum sem stóðu í brúnni þegar hið íslenska "efnahagsundur" stóð sem hæst.
Þjóðinni blæðir nú hægt og sígandi út og fyrsta skref til að koma í veg fyrir þá blæðingu er að segja nei á laugardaginn.
Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
mið. 3.3.2010
Lýðræðið leysti ekki vandann
Einn helsti talsmaður lýðræðis í Mosfellsbæ og leiðandi mannræktarfrömuður, Gunnlaugur B. Ólafsson, fer mikinn í nýlegri færslu á bloggi sínu. Gunnlaugur hefur um árabil dásamað Samfylkinguna og þá helst áhuga flokksins á inngöngu í ESB og einnig aðdáun flokksins á hinum pólitísku Varmársamtökum hans.
Gunnlaugur B. við girðingarvinnu í Kvosinni.
Nú bregðast krosstré allsvakalega. Gunnlaugur, sem gall afhroð eftir lýðræðislega kosningu í prófkjöri Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ, rétt eins og fyrir flokkinn í prófkjöri sýnu fyrir síðastliðnar alþingiskosningar, er nú kominn í fýlu. Lengra náði lýðræðið ekki hjá honum blessuðum.
Niðurstaða prófkjörsins er honum greinilega ekki að skapi. Auðvitað er sárt að gefa kost á sér í fyrsta sæti og enda svo í því síðasta og fá ekki einu sinni sæti á listanum, það skil ég mæta vel.
Það sem ég fæ engan botn í, er hinsvegar þessi svakalegi viðsnúningur hjá þessum mikla talsmanni lýðræðis.
Niðurstaða prófkjörs ljós og greinilega sumum erfið eins og gengur.
Hann gagnrýnir í færslu sinni bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, af öllum mönnum í Mosfelsbæ, enn dásamar nú orðið Framsóknarflokkinn fyrir öfluga stjórnarandstöðu. Vissulega dansaði bæjarfulltrúi Framsóknar, Marteinn með Gunnlaugi og samtökunum um tíma enn í þann dans er komin þreyta og það veit Gunnlaugur. Því virðist sem sérframboð sé jafnvel orðin besti kosturinn eins og fram kemur í færslu hans.
Eiga Marteinn og Gunnlaugur eftir að stíga ljúfann dans saman að nýju að loknum kosningum Emm og Bé? Á Marteinn jafnvel von á Gunnlaugi í hringinn? Jónas og Valdi tókust pínulítið á eins og öllum er kunnugt.
Nú er spurningin sú hvort Béið eða Emmið verði fyrir valinu hjá honum, ef Emmið verður fyrir valinu verður væntanlega stóra spurningin sú hvort það verði lýðræðislegt prófkjör eða uppstilling.
Gunnlaugur gælir ekki við Effið eins og Valdimar forðum, ekki enn að minsta kosti.
Auðvitað, eins og dæmin sanna er hægt að hafa prófkjör og að því loknu stilla svo bara upp listanum eins og helstu mönnum þóknast eftir það. Jafnvel í Fréttablaðinu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
mið. 3.3.2010
Heilsuklasi í Mosfellsbæ
Hugmyndin að stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ er að hagsmunaaðilar í Mosfellsbæ ásamt tengdum aðilum, taki sig saman um að móta klasa sem byggir á þeirri þekkingu og reynslu sem samfélagið í Mosfellsbæ býr yfir á sviði endurhæfingar og heilsueflingar.
Kynningarfundur um stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ verður haldinn fimmtudaginn 4. mars í Listasal Mosfellsbæjar kl. 20. Vinsamlegast skráið þátttöku í Þjónustuveri Mosfellsbæjar í s. 525 6700 eða með tölvupósti.
Sjá nánar á mos.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)