Strákurinn á forsíðu

Nýlega bárust fréttir um það í fjölmiðlum að íslenski fjárhundurinn hafi loks verið samþykktur sem einstakt og hreinræktað hundakyn sem á engan sinn líkan á heimsvísu. Úrslitavald í þessum hreinræktunar dómsstóli er í höndum einhverrar stofnunar út í heimi. Þessar fréttir heyrði ég og hafði vissulega gaman af, enda mikill hundaáhugamaður og ekki síst gamla íslenska fjárhundsins.

Tryggur 1010

Fyrir ári síðan eignuðumst við fjölskyldan íslenskan fjárhund sem heitir Tryggur. Hann var þá rúmlega fimm ára. Þetta fyrsta ár sem Tryggur hefur verið hjá okkur hefur verið lærdómsríkt og skemmtilegt, hann er sérlega ljúfur og góður og bókstaflega skilur íslensku. Hann er mikill og sterkur karakter sem við höfum þurft að læra inn á, rétt eins og hann okkur og það gengur allt vel.

Ég fékk kostulega hringingu um síðustu helgi. Nú hefur verið ákveðið að birta mynd af íslenska fjárhundinum á forsíðu eins stærsta hundaræktarblaðs sem gefið er út á heimsvísu vegna þessara týðinda um íslenska fjárhundinn og hefur verið sóst eftir mynd af Tryggsanum okkar á forsíðu blaðsins.

Þetta er vissulega gaman og spennandi en heilmikið mál ef marka má allar serímóníurnar sem á undan eru gengnar og þarf að ganga í gegnum hvað varðar öll höfundarréttarlög eins og kananum er einum lagið.

Það verður spennandi að sjá þetta stóra blað þegar það kemur út með okkar einstaklega ljúfa, skemmtilega og fallega Trygg á forsíðunni.

Tryggur 


Meyjan hrein


Á fljúgandi uppleið

Við gömlu mennirnir í Gildrunni erum nú á fljúgandi uppleið á vinsædarlista Rásar tvö með nýja lagið okkar Blátt blátt.

Við fórum upp um tíu sæti í gær og eigum nú 14. vinsælasta lagið. Nú er bara að koma gömlu rokkurunum á topp tíu og kjósa á Rás tvö.

Það eru 18 ár síðan við áttum tvö topplög það væri gaman að endurtaka leikin svona löngu síðar.

Hér að neðan er hægt að hlusta á lagið. Blátt blátt er fallegt lag sem vinnur hægt og sígandi á eins og mörg góð lög. Textinn er eftir Vigdísi Grímsdóttur rithöfund og sá fyrsti sem hún semur við dægurlag.

 http://www.facebook.com/l.php?u=http%3A%2F%2Fwww.youtube.com%2Fwatch%3Fv%3DomX0mMlsd9w&h=78343HiM_-FHi4qMzhkEu_33TYg

www.youtube.com
Nýtt lag

Bólan


Kærar þakkir fyrir stuðninginn

Bestu þakkir vil ég senda ykkur öllum sem stóðuð við bak okkar Vinstri grænna í Mosó fyrir frábærann stuðning í nýafstöðnum kosningum.

Við fórum mjög óhefðbundna leið í þessari kosningabaráttu. Við bönkuðum ekki á dyr heimila, stóðum ekki fyrir utan Bónus, Vínbúðina og Krónuna að dreifa áróðri eða gefa gjafir, hringdum ekki eða fórum í vinnustaðaheimsóknir.

Við lögðum störf okkar síðustu fjögur ár algerlega í hendur kjósenda. Með öðrum orðum reyndum ekki að sækja atkvæði, heldur fá þau ef við áttum þau skilin.

Útkoman var vissulega stórsigur fyrir okkur og enn og aftur þökkum við þann mikla stuðning sem við fengum.

Takk fyrir okkur. Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.


Framboðsfundur í Hlégarði

Framboðin til bæjarstjórnarkosninganna í Mosfellsbæ boða til sameiginlegs framboðsfundar með íbúum bæjarins. 

Fundurinn verður haldinn í Hlégarði fimmtudaginn 27. maí
og hefst kl. 20:00. 

Að loknum framsöguræðum gefst bæjarbúum tækifæri til spurninga og viðræðna við frambjóðendur við borð framboðanna í sölum Hlégarðs.

Fundinum lýkur kl. 22:00


Viðtal við Gildruna

http://dagskra.ruv.is/ras2/4521967/2010/04/28/

Við erum á réttri leið Mosfellingar

Höldum því áfram!!!

Með kröftugum,

áhugasömum

og hugmyndaríkum

Vinstri grænum

flyer1

flyer2


Vinstri græn í Mosfellsbæ

opna1

opna2


Gott að eiga góða stuðningsmenn

Jón Gnarr 1010

Í nýlegu blaðaviðtali við Jón Gnarr, þann 4. maí 2010 sagði hann eftirfarandi:

 „Ég til dæmis kaus Karl Tómasson sem var trommuleikarinn í Gildrunni, hann var að bjóða sig fram fyrir Vinstri græna.

Ég held ég hafi stutt allt nema Framsóknarflokkinn, það er bara prinsipp hjá mér að styðja ekkert sem hann gerir."

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband