mán. 14.12.2009
Stóru málin í Mosfellsbæ á árinu 2009
Á morgun, þriðjudag, verður jólablað okkar Vinstri grænna borið í hús í Mosfellsbænum. Í blaðinu er m.a. farið yfir það sem framkvæmt var á brátt liðnu ári.
Munið vgmos.is
Stóru málin á árinu 2009
* Bygging glæsilegs Krikaskóla
* Framhaldsskóli hóf störf í Mosfellsbæ
* Undirritun viljayfirlýsingar um byggingu sjúkrahúss og hótels
* Nýtt og vandað miðbæjarskipulags kynnt
* Ævintýragarðurinn og hugmyndir um hönnun hans kynntar
* Nýtt hjúkrunarheimili í burðarliðnum
* Verðlaunatillaga á byggingu nýrrar kirkju og menningarhúss kynnt
* Ný reiðhöll tekin í notkun
Hugum að tækifærunum
Jólin og áramótin nálgast og þá er okkur tamt að líta yfir farinn veg. Vonandi eigum við flest margar góðar minningar um árið sem senn hverfur í aldanna skaut.
Bæjarmálin hafa gengið vel í Mosfellsbæ, þrátt fyrir að hér, líkt og í öðrum bæjarfélögum, hafi þurft að grípa til ráðstafana í kjölfar efnahagshrunsins. Margar af þeim ákvörðunum voru erfiðar og í slíku árferði skiptir öllu máli að forgangsraða rétt og það hafa bæjaryfirvöld kappkostað að gera. Í nýrri fjárhagsáætlun hefur verið reynt að standa vörð um skóla, fjölskyldu- og velferðarmál. Ég vil nota tækifærið og þakka embættismönnum og öllu starfsfólki Mosfellsbæjar fyrir þá miklu vinnu, samheldni og einhug sem hefur ríkt við gerð fjárhagsáætlunarinnar. Það er ómetanlegt fyrir bæjaryfirvöld að vinna í slíku umhverfi.
Á árinu 2009 eru nokkur verkefni sem rísa hátt hjá okkur Mosfellingum. Mig langar að nefna nýjan og glæsilegan Krikaskóla, sem er óðum að taka á sig mynd. Framhaldsskólann okkar langþráða sem tók til starfa í gamla Brúarlandshúsinu síðastliðið haust. Nýlega samþykkti menntamálaráðherra að fram færi samkeppni um hönnun skólans á nýjum stað svo ljóst er að ríkistjórnin mun ekki fresta áformum um byggingu hans. Í haust var undirrituð viljayfirlýsing um uppbyggingu sjúkrahúss og hótels sem mun sérhæfa sig í mjaðma- og hnjáliðaaðgerðum. Þar er um að ræða verkefni og starfsemi af þeirri stærðargráðu að líkja má við grettistak fyrir allt okkar samfélag. Nýtt og vandað miðbæjarskipulag er nú í auglýsingaferli. Þar hefur vandlega verið gætt að halda í græn svæði. Hugmyndasamkeppni Ævintýragarðsins liggur nú fyrir og þar komu margar spennandi tillögur fram. Ævintýragarðurinn er talandi dæmi um áherslur bæjaryfirvalda í umhverfismálum en stærð hans, umfang og staðsetning mun hafa mikla sérstöðu í bæjarfélaginu. Nú hyllir loks undir að byggingu nýs hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ verði hrynt í framkvæmd en félagsmálaráðherra vinnur þessa dagana við framkvæmdaráætlun um það og fjármögnun þess. Kynnt hefur verið sú tillaga sem bar sigur úr býtum í hönnun kirkju- og menningarhúss og virðist almenn ánægja ríkja um hana.
Hér hef ég stiklað á okkar stærstu málum. Þau umfangsminni eru okkur einnig að sjálfsögðu hugleikin en of langt mál að telja þau upp hér.
Íþrótta- og útivistaraðstaða Mosfellsbæjar er tvímælalaust ein af okkar stærstu skrautfjöðrum og alla tíð hefur ríkt mikill einhugur hjá bæjaryfirvöldum að slaka ekkert á í stuðningi við uppbyggingu hennar. Nýjasta dæmið er ný og glæsileg reiðhöll á Varmárbökkum sem tekin var í notkun í nóvembermánuði. Félagar í Hestamannafélaginu Herði eiga miklar þakkir skildar fyrir uppbyggingu hennar en fjöldi sjálfboðaliða lagði nótt við dag við að reisa hana.
Ekkert er dýrmætara í öllu íþrótta- og tómstundastarfi en áhugasamt fólk sem er tilbúið að leggja sitt af mörkum til að efla það. Við Mosfellingar megum vera þakklátir og stoltir af því fjölmarga góða fólki sem starfar á þeim vettvangi. Stærsta íþróttafélag Mosfellsbæjar er Ungnennafélagið Afturelding og eins og flestir vita fagnaði félagið aldarafmæli sínu á árinu. Af því tilefni var m.a. hafist handa við ritun á sögu félagsins. Bókin sem kom út nú á dögunum er hátt í 400 bls og full af fróðleik um þetta merka íþróttafélag. Bókin sem er skrifuð af Bjarka Bjarnasyni og Magnúsi Guðmundssyni er ómissandi jólalesning á öllum heimilum bæjarins.
Nú fljótlega á nýju ári má búast við að hið pólitíska litróf taki að mótast af væntanlegum bæjar- og sveitarstjórnarkosningum. Stjórnmálaflokkarnir fara nú hver af öðrum að undirbúa þá baráttu sem í hönd fer.
Allt samstarf á vettvangi sveitarstjórnarinnar byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu. Ef það er haft í heiðri tekst vel til, líkt og raunin hefur verið á þessu kjörtímabili.
Við vinstri græn höfum sannarlega lagt okkar af mörkum og munum ganga með ánægju til næstu bæjarstjórnarkosninga að loknu farsælu kjörtímabili sem við erum stolt af.
Athugasemdir
Ég tel samstarf D-lista og VG hafa verið mjög farsælt og gott. Bæjarfélaginu er stjórnað af röggsemi og festu og fullur trúnaður virðist ríkja á milli flokkanna sem er alveg öfugt við það sem flestir spáðu. Það var auðvitað minnisstætt hvernig Samfylkingin sverti orðstír bæjarins með upphlaupinu um veglagningu um Álafosskvos og upp í Helgafellsland. Baugsmiðlarnir fóru á kostum með Bryndísi Scram hágrátandi krókódílatárum ofan í drullupolli og Garðálfurinn Össur Skarp þeytti fúkyrðum í allar áttir um umhverfisspjöllin í Mosfellsbæ. Í dag er þetta bókstaflega sprenghlægilegt miðað við þær hörmungar sem Samfylkingin er að leiða yfir þjóðina með Icesave-þrælalögunum. Hvar er núna fúkyrðaflaumur Jóns Baldvins, Össurar og Árna Páls yfir ósköp venjulegri gatnagerð í Mosfellsbæ. Þvílíkir aular og lýðskrumarar.
Þórir Kristinsson (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 22:34
Til hamingju Kalli minn með allt gott sem hefur veri gert. Við fjölskyldan í Hvarfi óskum þér, Línu og börnunum friðsælla og gleðilegra jóla, auk farsældar í allri framtíð.
Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 14.12.2009 kl. 23:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.