Stoltur, stoltari, stoltastur. Gamla Brúarlandshúsið orðið skóli að nýju

Ég er nú sem betur fer yfirleitt mjög stoltur af því að vera Mosfellingur. Í dag var ég stoltari en nokkru sinni. Tilefni þess er setning nýs framhaldsskóla í sveitinni, sem haldin var í dag. Fyrsta framhaldsskóla Mosfellsbæjar.

Fjöldi góðra gesta voru viðstaddir þessa hátíðarstund í kjallaranum í gamla Brúarlandi, verðandi nemendur, þingmenn og ráðherrar, voru þeirra á meðal.

Eins og ég hef áður skrifað hér á síðuna mína, var Brúarland um árabil nafni alheimsins í Mosfellsbæ. Þar voru nánast öll mannamót í sveitinni, sama af hvaða toga þau voru. Þeir eru ófáir Mosfellingarnir sem eiga góðar og skemmtilegar minningar frá veru sinni í þessu fallaga húsi. Ég leifi mér að segja fallegasta húsinu í Mosfellsbæ.

Það er greinilega álit fleiri Mosfellinga en mín, að húsið sé það fegursta í sveitinni ef mark skal tekið á skoðanakönnun sem hefur staðið yfir hjá mér á síðunni minni, undanfarna mánuði.

Brúarland 1010

Brúarlandshúsið áður en hafist var handa við að gera það upp.

 

Það er vert að þakka öllum þeim fjölmörgu einstaklingum sem hafa komið að því að gera þetta hús svo glæsilegt að nýju og með því sína því þá virðingu, sem það sannarlega átti skilið.

Ég held að á engan sé hallað þó ég leifi mér hér að nefna í því sambandi, Davíð B. Sigurðsson. Davíð hefur sýnt verkefninu mikinn áhuga og lagt sig fram um að sjá til þess að haldið væri í það gamla eins og kostur var og með því skapa húsinu áfram sína sérstöðu og hlýleika.

Undirskrift Brúarland

Myndin er tekin þegar skrifað var undir samningin við Menntamálaráðuneytið á sínum tíma. Aftari röð frá vinstri: Bæjarfulltrúarnir, Hafsteinn Pálsson, Hanna Bjartmars, Herdís Sigurjónsdóttir og Marteinn Magnússon. Fremri röð frá vinstri: Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra og Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.

Einnig langar mig sérstaklega til að nefna þátt Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fyrrverandi menntamálaráðherra. Þorgerður virtist strax heilluð af því að Brúarlandshúsið yrði fyrir valinu sem fyrsti framhaldsskóli Mosfellsbæjar. En vert er að geta þess að það voru fleiri hús í sveitinni sem komu til greina. Við áttum oft saman gott spjall og bréfaskriftir, ég og Þorgerður, þegar þetta var allt saman í burðarliðnum. Áhugi Þorgerðar fór ekki framhjá mér og varð mér fljótlega ljóst að hann var einlægur. Kann ég henni miklar þakkir fyrir einstakt samstarf.

Nú er þetta allt saman orðið að veruleika og óska ég öllum Mosfellingum til hamingju og starfsfólki og nemendum velfarnaðar.

Skóli2  

Þessi forláta bjalla var gjöf Mosfellsbæjar til skólans. Ég var þess heiðursaðnjótandi að fá að hringja henni í fyrsta skipti. Afi Lárus og pabbi hafa örugglega verið stoltir af stráknum sínum. Á myndinni er bæjarstjórinn, Haraldur Sverrisson, greinilega sáttur og skólameistarinn, Guðbjörg Aðalbergsdóttir, tók gjöfinni fagnandi. 

 

Skóli

Bæjarfulltrúar Mosfellsbæjar ásamt þingmönnum, ráðherrum og skólameisturunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Karl Tómasson

Góður að vanda Sveinn.

Takk fyrir komuna og farðu nú að flytja í drauma bæjarfélagið þitt.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 20.8.2009 kl. 22:11

2 Smámynd: HP Foss

Ég tel að grein Kjartans Gunnarssonar í Morgunblaðinu í dag krefjist þess að Steingrímur Joð útskýri þessa kúvendingu sína í afstöðu sinni gangvart Icesave. Hvað veit hann sem hann hefur ekki sagt okkur ?

HP Foss, 21.8.2009 kl. 11:16

3 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

til hamingju

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 21.8.2009 kl. 20:40

4 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Til hamingju með endurnýjum lífdaga Brúarlands, Kalli. Ég veit að það eru fleiri en ég kátir með hvernig til hefur tekist. Búinn að skoða húsið -- með samblandi af hrifningu og söknuði. Mest sakna ég hillunnar úr skólastofunni hans afa þíns með öllum fuglunum -- hvar í veröldinni ætli þeir séu?

Brúarland lengi lifi!

Sigurður Hreiðar, 21.8.2009 kl. 21:35

5 Smámynd: Karl Tómasson

Takk fyrir komuna kæru vinir.

Já þetta var skemmtilegur dagur og ógleymanlegur í alla staði.

Helgi minn, það er eins og þú sért kominn með Steingrím á heilann. Ert þú ekki Framsóknarmaður?

Sigurður Hreiðar. Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki hvar fuglarnir eru en ég man vel eftir þeim. Eru þeir ekki í Varmárskóla? það er eins og mig minni það.

Þakka ég þér enn og aftur fyrir gömlu myndina sem þú sendir mér af Brúarlandi.

Já og sannarlega tek ég undir það með þér. Brúarland lengi lifi!!!

Bestu kveðjur frá K. Tomm úr Tungunni.

Karl Tómasson, 21.8.2009 kl. 22:42

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Innilega til hamingju með þetta Karl minn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 24.8.2009 kl. 12:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband