Þetta er svolítið væmin færsla, ég má samt til á þessum tímum

Við förum stöku sinnum fjölskyldan í göngutúr um fallegu sveitina okkar og nú í vikunni varð kvöldganga um Skammadal fyrir valinu. Skammidalur er afskaplega fallegur og þar hafa fjölmargar fjölskyldur komið sér upp litlum húsum, flestum í tengslum við kartöflugarða sem þar hafa verið í áratugi.

Þegar við vorum þarna á göngunni hittum við gömul hjón við eitt þessara litlu húsa. Vitanlega buðum við þeim kurteisilega góða kvöldið og ætluðum okkur svo að halda göngunni áfram. Gamli maðurinn spurði okkur þá að því hvort við vildum ekki skoða húsið þeirra og garðinn í kring. Við þáðum boðið og okkur var sýndur gróðri vaxinn litli garðurinn við það og að því loknu var okkur boðið í litla húsið.

Húsið þeirra er 12 fermetrar og í því voru tveir beddar, borð á milli með kerti á, gasmiðstöð, gamalt útvarp, prímus með tveim hellum og fjöldi mynda og persónulegra muna á veggjunum.

Gömlu hjónin sögðu okkur að þetta væri þeirra sælureitur og búinn að vera það í rúm 30 ár. Þau geisluðu þegar þau sögðu okkur frá því hvernig þau hefðu í þessa þrjá áratugi komið sér upp þessum sælureit. Hver spýta, hver nagli, hvert tré, hvert blóm, allt átti sína sögu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Af hverju afsakarðu þessa færslu með að hún sé væmin?

Hún er það alls ekki ;o)

Hjödda (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 07:46

2 Smámynd: Sigrún Óskars

innlitskvitt - falleg færsla - yndislegt að hitta svona gömul hjón sem deila saman 12 fermetra sumarbústað

Sigrún Óskars, 14.8.2009 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband