Þeir eltu hann á átta hófahreinum og aðra tvenna höfðu þeir til reiðar en Skúli gamli sat á Sörla einum svo að heldur þótti gott til veiðar.
Meðan allar voru götur greiðar gekk ei sundur með þeim og ei saman, en er tóku holtin við og heiðar heldur fór að kárna reiðargaman.
Henti Sörli sig á harða stökki, hvergi sinnti hann gjótum, hvergi grjóti, óð svo fram í þykkum moldarmekki, mylsnu hrauns og dökku sandaróti.
Þynnast bráðum gerði fjandaflokkur, fimm á Tröllahálsi klárar sprungu, og í Víðikerum var ei nokkur vel fær nema Jarpar Sveins í Tungu.
Ei var áð og ekkert strá þeir fengu, orðnir svangir jóar voru og mjóir, en - þótt miðlað væri mörum engu, móðurinn þó og kraftar voru nógir.
Leiddist Skúla, leikinn vildi hann skakka, ljóð við Ok úr söðli fastar gyrti. Strauk hann Sörla um brjóst og stinnan makka, sté á bak og svo á klárinn yrti:
Sörli minn! Þig hef ég ungan alið og aldrei valið nema besta fóður.
Nú er líf mitt þínum fótum falið,
forðaðu mér nú undan, klárinn góður.?
Þessu helv. ESB kjaftæði
Það var eins og blessuð skepnan skildi Skúla bæn því háls og eyru hann reisti, frýsaði hart - og þar með gammurinn gildi glennti sig og fram á hraunið þeysti.
Á kostum Sörli fór í fyrsta sinni, furðar dverga hve í klungrum syngur.
Aldrei hefur enn í manna minni
meira riðið nokkur Íslendingur.
Tíðara Sörli en sendlingur á leiru sinastælta bar í gljúfrum leggi, glumruðu Skúla skeifurnar um eyrum, skóf af klettunum í hófahreggi.
Rann hann yfir urðir eins og örin eða skjótur hvirfilbylur þjóti. Ennþá sjást í hellum hófaförin, harðir fætur ruddu braut í grjóti.
Örðug fór að verða eftirreiðin, allir hinir brátt úr sögu detta. En ekki urðu fleiri Skúla skeiðin, skeið hans fyrsta og síðasta var þetta.
Hann forðaði Skúla undan fári þungu, fjöri sjálfs sín hlífði klárinn miður - og svo með blóðga leggi, brostin lungu á bökkum Hvítár féll hann dauður niður.
Sörli er heygður Húsafells í túni, hneggjar þar við stall með öllum tygjum, krafsar hrauna salla blakkurinn brúni, bíður eftir vegum fjalla nýjum.
|
Athugasemdir
Heyr, heyr.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 12.5.2009 kl. 01:43
Á gylltum stjörnum - Frónsins feigðartákni
í fjölmiðlunum einkar mikið ber.
Mig hryllir við því beiska reglubákni,
sem bandalagið sýnist vera - og er.Steindór D (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 02:30
Algjörlega sammála, og flott færsla hjá þér Kalli minn.
Ég er algjörlega alfarið á móti þessu ESB blaðri.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.5.2009 kl. 10:02
Það er nokkuð til í þessu sem þú bendir á, að málaefnaleg umræða hefur varið um víðan völl og vart til sá snápur sem ekki hefur ráfað frá austri til vesturs í þessu máli. En varla get ég tekið undir að Framsóknarflokknum sé um að kenna, eins og greina má á þínum skrifum. Tel ég þar um oftúlkun að ræða.
HP Foss, 12.5.2009 kl. 15:08
Ég þakka ykkur öllum fyrir komuna kæru vinir.
Helgi, minn kæri vinur. Ég hélt þú værir framsóknarmaður en ég komst að öðru í dag. Þú ert svosem ekki einn um það að yfirgefa þá samkomu. Hér er ekki um neina oftúlkun að ræða.
Þú þarft ekki annað en að kafa aðeins dýpra í skrifin til að komast að því
Karl Tómasson, 12.5.2009 kl. 15:57
Að vera framsóknarmaður er ekki eitthvað sem maður yfirgefur. Maður er það eða ekki. Svipað og vera samkynhneygður. Maður lagar það ekki.
Dúddi (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 16:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.