9857

Tæpar tíu

Maður er gersamlega búinn að missa allt verðskyn. Ég hef svosem ekkert haft það neitt sérstaklega öflugt um dagana. Þetta var ekki botnfylli í innkaupakerrunni enda stóð aðeins til að ná í smá nesti í skólann og eitthvað pínu meira. Það eru ekki nema nokkur ár síðan að maður gat bókstaflega stútfyllt innkaupakerruna fyrir 14 - 15 þúsund. Fyrr má nú rota en dauðrota.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: HP Foss

Mér sýnist nú að þú sért að splæsa í óþarflega dýrt sjampó á frúna.

HP Foss, 11.1.2009 kl. 19:49

2 Smámynd: Karl Tómasson

Jú jú, Helgi minn. Það eru stundum gerðar talsverðar kröfur í sjampó kaupum og voru þessi innkaup mín nú í raun léttvæg í þeim efnum.

 Einhvervegin læðist nú samt að mér sá grunur, að kröfurnar séu ekki minni á þínu heimili hvað það varðar.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 11.1.2009 kl. 22:18

3 identicon

Eftir að ég "tók upp" núverandi hártísku, lækkaði sjampó kostnaðurinn um 50% á mínu heimili, kostnaðurinn við hársprey um nær 80%. Bara vinsamleg ábending.  Það eru til "leiðir".

Kær kveðja úr Teigunum.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 17:20

4 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

skal segja þér að tannkremstúpan hefur hækkað um heilar 100 kr. síðan í haust !!!!!!!!

Spara það þarf rétt hálfa nögl af litla fingri af tannkremi fyrir fullvaxta fólk

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 12.1.2009 kl. 18:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband