Bingi fór með hnífasettið og Gummi nikkuna

Verða þeir ekki bara nokkuð góðir saman á þorrablótunum sem eru framundan hjá Framsókn og burtflognum Samfylkingarkrötum, Bingi og Gummi? 

Bingi á örugglega flugbeitt hnífasettið ennþá, sem kemur sér vel á seiga kjammana og súra pungana og Gummi getur án vafa flutt eldfjörug lög á nikkuna.

Að loknu borðhaldi syngur Bingi Stál og hnífur, söng verkamannsins og Gummi flytur skemmtilegan annál sem ber heitið aldrei kaus ég ...................

Þar mun Gummi vafalítið koma tæpitungulaust inn á hugðarefni sín sem hafa fyrst og síðast virst vera umhverfismál. Vart er hægt að ímynda sér að sú mikla hugsjón hans fái meiri hljómgrunn en á þorrablóti Frammarana.

harmonikkuleikari_2006-11-30_21-53-35

Á þessari mynd er Árna Páli ofaukið. Hann er enn sem komið er í Samfylkingunni.

 

Bingi og Mars

Á þessari mynd er Marsibil ofaukið, hún er farin í Samfylkinguna.

 

Fram fram sam fram samfylking,

forðum okkur háska frá

því ræningjar oss vilja ráðast á.

Sýnum nú hug, djörfung og dug.

Vakið, vakið vaskir menn

því voða ber að höndum.

Sá er okkar síðast fer

mun sveipast hörðum böndum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahahaha góður !!!  Er þetta það sem kallast krosseignarhald

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.1.2009 kl. 10:46

2 Smámynd: HP Foss

Ég hef þá trú að Framsóknarflokkurinn sé að hefja sig til flugs.

Samfylkingakratar og Vinstri kommar geti farið að vara sig.

HP Foss, 7.1.2009 kl. 15:20

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Ekki finnst mér þeir nú gæfulegir Björn Ingi og Guðmundur góði Steingrímsson. Framsóknarmenn eru að verða mjög sjaldséðir hér úti á landi. Sem von er öll þeirra gömlu gildi endanlega farinn með brott hvarfi Guðna Ágústsonar, Þeim tókst einnig að drepa samvinnuhreyfinguna með einokunar tilburðum. Samvinnuhreyfingin var og er mjög góð ef hún er hafin yfir pólitík.

Ragnar Gunnlaugsson, 7.1.2009 kl. 17:33

4 identicon

Ég bið Karl forláts ef skrif mín hafa verið of mikið í anda Valda Sturlaugs, en ég var einn af þeim mörgu sem var blekktur af Samfylkingunni varðandi Varmár-samtökin. Eins og fleiri hélt ég að þetta væru raunveruleg umhverfissamtök en ekki bara auðvirðuleg kosningabrella Samfylkingarinnar stofnuð til höfuðs okkur í Vinstrihreyfingunni Grænt framboð. Þú hefur með skrifum þínum og málflutningi flett markvisst ofan af þessum lygavef þar sem þú sem eini fulltrúi V-Grænna í starfandi meirihluta varst þú persónulega fyrir árásum Samfylkingarinnar sem voru svakalega rætnar.

Guðmundur Steingrímsson var jú einn af þeim fræknu Samfylkingarmönnum sem bloggaði grimmt og drullaði yfir persónu þína. Árni matt blaðamaður kallaði þig menningarníðing á Sigurrósartónleikunum frægu. Hvernig hann fann það út í Sigurrósarsnobbinu sínu er auðvitað í anda hans barnalegu skrif um tónlist.

Ragnar Ingi Magnússon (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 17:53

5 identicon

Er ekki bara tímaspursmál hvenær Jónas og Hanna Bj. ganga í Framsóknarflokkinn og Marteinn í Samfylkinguna. Reyndar er Samfylkingin alveg föst á Gustavsbergnum eftir að fylgið byrjaði að hrynja og Framsókn reyndist ekki hafa hælana þar sem samfylkingin var með tærnar eða fingurna á kaf í spillingunni.

Hvenær ætla Varmársamtökin að opna bókhaldið sitt svo hægt sé að sjá hvaðan fjárstuðningur hefur komið frá stofnun Samtakanna?

Við hvað er Samfylkingin hrædd?

Þórir kristinsson (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 20:30

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góður.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.1.2009 kl. 23:53

7 identicon

Þegar ip-tölurnar af Valda Sturlaugs "láku út" frá DV. voru hryðjuverkasamtök Samfylkingarinnar við pappírstætarana langt fram á nótt. Það var víst andvökunótt  í herbúðum þeirra. Merkilegast var þó að

IP. tölurnar tengdust tölvum í opinberri stjórnsýslu í Mosfellsbæ. 

Það verður víst bið á að Samfylkingin reyni aðra eins kosningabrellu og Varmársamtakaprumpið. Umhverfisstefna Samfylkingar er auðvitað ekki til enda myndu þeir ekki hika við að virkja Gullfoss og Geysi og byggja háhýsi í tjörninni í Reykjavík. Gatnagerð í þéttbýli í Mosfellsbæ

Hversu langt er hægt að ganga í lýðskrumi? Samfylkingin virðist hafa engin mörk. 

Stefán Helgi Grétarsson (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 11:05

8 identicon

Asskoti góður Kalli!. Spurning um hvaða hlutverk þeir fá í leikritinu "fjandsamleg yfirtaka"?  Furðuleg vinátta á milli manna í þessum annars ágæta flokki félagshyggjunnar og jafnræðis. 

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 20:23

9 Smámynd: Björgvin R. Leifsson

Þrátt fyrir að blogginnleggið hafi verið um frammara en athugasemdir hafi smám saman farið að fjalla um krata ætla ég samt að leyfa mér að vekja athygli á nýstofnuðu Framsóknarvinafélagi á blogginu hjá mér.

Björgvin R. Leifsson, 8.1.2009 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband