Nýr vinur

Krummi 6a copy

Þessi heimsótti mig fyrir nokkru síðan.

Krummi 4 copy

Ég tók fyrir nokkru upp á því að henda út um eldhúsgluggann hjá mér einum og einum matarbita fyrir mýsnar og fuglana. Viti menn, heilu kjötstykkin og eplin voru farin að hverfa nokkuð fljótlega. Það vakti lengi vel athygli mína hversu drjúgir fuglarnir eða mýsnar voru og fór ég því að auka skammtinn allverulega. Viti menn alltaf hvarf það jafnharðan.

Auðvitað komst ég síðar að því að þetta var Krummi sem nældi sér í alla bitana, hann fór bara svo hægt í sakirnar lengi vel.

Í dag smellir hann sér niður beint fyrir framan gluggann og kveður ævinlega með vinalegu krunki, svona rétt til að þakka fyrir sig og láta mig vita af því að hann sé búinn að klára skammtinn.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

gleðilegt árið og takk fyrir liðna bloggárið, alltaf gott að eignast nýja vini

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 5.1.2009 kl. 18:03

2 identicon

Fyrir mýsnar Kalli?  Nú fer ég að hafa áhyggjur félagslegri stöðu þinni þarna í Tungunni

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 5.1.2009 kl. 18:24

3 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

falleg athöfn og fallegur fugl !

Kærleiksljós til þín dýravinarins

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 5.1.2009 kl. 18:33

4 Smámynd: Sigrún Óskars

krummi sér um mýsnar það þarf ekki að gefa þeim  en hann er samt fallegur og skemmtilegur fugl.

Sigrún Óskars, 5.1.2009 kl. 19:16

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Það þótti ævinlega mikið gæfumerki í minni sveit að gefa krumma. Svo var sagt að krummi réðist eingöngu á lömb þeirra bænda sem stunduðu það á vorin að steypa undan honum. Krummi er afskaplega skynsamur fugl og skemmtilegur.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 5.1.2009 kl. 23:23

6 Smámynd: HP Foss

  Brattland er eyðijörð næst vestur frá Dalshöfða vestan við Hverfisfljót.  Upplýsingar um örnefni eru að mestu fengnar frá Þórunni Ólafsdóttur á Selfossi.Land jarðarinnar er hlíðin vestan við Eldhraunið. Bærinn stóð uppi undir hlíðinni, vestan við hraunið.  Byrjum við fyrir framan bæ.  Þar er þá fyrst andspænis bænum gil, sem heitir Hrafnagil (1).  Framan þess eru svonefndar Torfur (2); í þeim var Moshóll (3).  Næst innan við hann er gil, sem heitir Skógargil (4).  Í því voru hríslur.  Þá er Skriða (5), og þar upp af heitir Skálatindur (6).  Niður af Torfunum, fyrir framan bæinn, heita Fitjar (7).  Milli Fitjanna og hraunsins er Farvegur (8), mikið gróinn upp.  Skálatindur er á merkjum móti Þverá, og suður af honum er Þverárdalur. Fyrir neðan og framan Skálatind er Eyjalón (9).  Úr því rennur í Þverárvatn.  Innan við Ey (10), sem lónið er kennt við, er Stórihólmi (11), og norður af honum er annar, sem heitir Litlihólmi (12).Næst fyrir innan bæ er gil, sem liggur fram fyrir vestan bæ.  Tungur ofan við gilið heita Maðkatungur (13).  Inn af þeim heita Fögrudalir (l4).  Hólaröð er norður af Brattlandi, sem heitir Grjóthólar (15).  Fögrudalir er hjallinn upp af þeim.  Þar innar eru tvö gil, sem liggja niður úr heiðinni. Þau heita Blágil (16) og eru aðgreind sem Fremra-Blágil (17) og Innra-Blágil (18).  Úr rennsli þessara gilja myndast Fjalldalsá (19).  Upp af giljunum er Fjalldalur (20).  Fjalldalsá rennur með eynni að austan.

Innan við Fjalldalsá, innan og neðan við Blágil, heitir Öxl (21) og Axlarhryggur (22).  Þar innar er Innöxl (23) og Nesgil (24).  Innan við Öx1 eru Fremsta-Meingil (25), Stóra-Meingil (26) og Innsta-Meingil (27).  Úr rennsli þessara gilja myndast Öðulbrúará (28).  Upp af Meingiljum er Stakkur (29), 540 m hátt fjall.  Utar er á fjallinu Krókasker (30).

HP Foss, 5.1.2009 kl. 23:25

7 Smámynd: HP Foss

Hef ekki séð þetta góða í hrafninum, hann kroppar augu úr litlum lömbum og gerir gat á mæður þeirra svo garnir dragast út svo mertum skiptir.

Skjóttann!

HP Foss, 5.1.2009 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband