Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti samhljóða í gærkvöldi fjárhagsáætlun fyrir árið 2009. Áætlunin var unnin sameiginlega af öllum flokkum í bæjarstjórn. Megináherslur hennar eru að standa vörð um grunn- og velferðarþjónustu sveitarfélagsins, að Mosfellsbær taki virkan þátt í því að halda uppi atvinnustigi með mannaflsfrekum framkvæmdum og verkefnum en haldi jafnframt áfram að sýna ábyrgan rekstur. Hagrætt verður í rekstri bæjarins til að mæta lægri tekjum sem og hækkun kostnaðar og launa svo komast megi hjá því að hækka gjaldskrár vegna þjónustu að sinni. Í fjárhagsáætluninni er gert ráð fyrir 40% hækkun á niðurgreiðslum til foreldra sem eru með börn hjá dagforeldrum og að heimgreiðslur hefjist frá 9 mánaða aldri í stað við eins árs aldur eins og áður. Þá er gert ráð fyrir óbreyttum gjaldskrám í leik- og grunnskólum að sinni.
Tveir nýir skólar verða teknir í notkun á árinu, Krikaskóli, sem verður skóli fyrir eins til níu ára börn, og framhaldsskóli sem hefur göngu sína í bráðabirgðahúsnæði næsta haust. Framkvæmdakostnaður við Krikaskóla er rúmur hálfur milljarður á árinu 2009. Að auki eru fyrirhugaðar ýmsar aðrar framkvæmdir. Í þær verður þó ekki ráðist nema að því tilskildu að fjármagn verði tryggt. Eignfærðar fjárfestingar eru áætlaðar um einn milljarður á árinu. Í fjárhagsáætlun er jafnframt gert ráð fyrir því að laun bæjarfulltrúa og nefndarfólks lækki í samræmi við ákvörðun kjaranefndar um þingfararkaup og að laun hjá æðstu stjórnendum bæjarins lækki um 6-7%. Þá verður gert sérstakt átak í að lækka starfstengdan kostnað. Í greinargerð bæjarstjóra, Haraldar Sverrissonar, segir meðal annars: ,,Fjárhagsstaða Mosfellsbæjar er sterk. Sveitarfélagið býr að því að hafa á undanförnum árum verið að skjóta styrkum stoðum undir fjárhagslega stöðu sína. Mosfellsbær hefur ekki tekið lán síðan 2004 og hefur unnið jafnt og þétt að því að greiða niður lán. Ennfremur eru erlendar skuldir lítill hluti skuldasafnsins. Gert er ráð fyrir að skatttekjur lækki nokkuð milli ára. Heildartekjur A og B hluta bæjarsjóðs Mosfellsbæjar á árinu 2009 eru áætlaðar 4.276 mkr. en gjöld án fjármagnsliða áætluð 4.300 mkr. Rekstrarhalli án fjármagnliða er því áætlaður 24 mkr. Áætlað er að veltufé frá rekstri A- og B- hluta verði jákvætt. Útsvarsprósenta verður 13,03% og eru útsvarstekjur áætlaðar 2.518 mkr. Tekjur af fasteignasköttum eru áætlaðar 446 milljónir króna, sem er 2% aukning frá fyrra ári vegna fjölgunar íbúða en álagningahlutföll fasteignaskatta eru óbreytt. Ekki er gert ráð fyrir umtalsverðum tekjum af sölu byggingarréttar á árinu. |
Athugasemdir
Þetta eru eru verk sem vert er að kalla, þeir tomma ekki neitt í Firðinum miðað við ykkur, enda erum við ekki með sjallana í stjórn.
kv-Helgi
HP Foss, 18.12.2008 kl. 23:09
Það er greinilega gott að búa í Kóp......nei..... Mosfellsbæ
Bestu og mestu jólakveðjur til þín , þinna og sveitunga allra
Kjartan Pálmarsson, 19.12.2008 kl. 09:00
Gott Kalli að samstaða er um fjárhaginn og halda þessu c.a. á sléttu. Teki undir síðasta mælanda, virkilega gott að búa í Mosó. En reyndar er Kópavogur að skila af sér áætlun með 200 milljóna hagnaði, svo það ætti ekki að væsa um þá.
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 20:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.