Snóker er skák

Hér má sjá Ronnie O Sullivan ná hámarksskori í snóker á skemmri tíma en nokkrum hefur tekist. Snóker er íþrótt sem við íslendingar eigum að geta náð langt í.

Því miður hefur hún ekki náð þeirri fótfestu hér á landi að hún sé stunduð af einhverju marki. Snóker er annað vinsælasta sjónvarpsefni í Englandi á eftir fótbolta í sportinu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dunni

Heyðu Kalli.

Ég ætlaði eiginlega að senda þér allt annað lag, "Party Line" með The Kinks, en bara fann  það ekki á You Tube.  Held að það hefði passa ykkur Gildrukörlum mjög vel.

En þetta er ekker verra lag. Eiginlga betur samið ef eitthvað er. annars er Face To Face mögnuð plata og ef eitthvað hefði átt að fylgja eftir Gildrumezzinu er það covering av Face To Face.  Kýlið á það þegar þið vaknið til lífsins. Getið bætt I Need You, Till The End Off The Day og All Day and All Of The Day við. Ef liggur vel á ykkur þá er Long Tall Shorty líka ágætt.

Skál og kveðja frá Ósló 

Dunni, 22.11.2008 kl. 01:51

2 Smámynd: steinimagg

Ekki botna ég nú alveg í því hvað snóker og skák eiga sameiginlegt, en hvað um það, það er alveg magnað að sjá hvað Ronnie spilar hratt.

steinimagg, 22.11.2008 kl. 10:34

3 Smámynd: steinimagg

Það er alltaf gaman að sjá snillinga, John Lowe náði líka hámarksskori í sinni íþrótt sem er líka mjög skemmtileg.

Sjá hér.

steinimagg, 22.11.2008 kl. 11:37

4 Smámynd: steinimagg

Hvaða rugl er þetta, botna ekkert í þessu, virkar þetta.

steinimagg, 22.11.2008 kl. 11:39

5 Smámynd: Karl Tómasson

Sæll Dunni og bestu þakkir fyrir komuna. Nú þarf ég að hlusta á þessi lög sem þú nefnir ég gef þér svo komment um það síðar hversu ánægður ég er með þau.

Sæll frændi. Í snóker, rétt eins og í skák, þarf oft að hugsa nokkra leiki fram í tímann. Það var nú eiginlega bara það sem ég meinti. Þetta er svakalegur hraði á Sullivan.

Myndbandið af pílukastaranum er magnað, takk fyrir sendinguna.

Bestu kveðjur frá K. Tomm. 

Karl Tómasson, 22.11.2008 kl. 11:54

6 Smámynd: HP Foss

þeir einu sem gaman hafa að því að horfa á þessa ballskák, eru þeir sem fá fróun af því  að horfa á afturenda manna  í níðþröngum buxum.

Svo eru það þeir sem keppa í þessu, það eru svo aðrar hvatir.

HP Foss, 22.11.2008 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband