Röddin hennar og röddin hans

Mikið óskaplega er ég heillaður af söngröddum Ellýjar Vilhjálms og Hauks Morthens. Við Íslendingar státum af mörgum stórkostlegum söngvurum og hafa þau Ellý og Haukur verið í fremstu röð þeirra.

Ég set hér inn myndband með Ellý og eins og sjá má koma mörg gömul og skemmtileg myndbrot frá gamalli tíð fram í því. Eins er þetta eflaust skemmtilegt myndband fyrir þá sem þjást af bíladellu.

 

Ellý

Þessi hljómplata er ein af mörgum frá Ellý. Hún var hljóðrituð í Englandi í kringum 1966. Með henni lék ensk hljómsveit skipuð úrvals hljóðfæraleikurum.

Haukur Morthens

Ég var svo heppinn að vera árið 1984 á árshátíð á gamla Naustinu þar sem Haukur Morthens ásamt stórhljómsveit lék fyrir dansi. Það er ógleymanlegt. Í myndbandinu hér fyrir neðan syngur Haukur með Erlu Þorsteins. Hún var kölluð stúlkan með lævirkjaröddina og var engri lík.

Erla Þorsteins

Erla Þorsteins

<object width="425" height="344"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/tHpvHLk62qI&hl=en&fs=1"></param><param


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Karl og takk fyrir frábært kvöld og viðkynni í heimboðinu hjá Þorbjörgu og Steinþóri síðustu helgi.    Skemmti mér konunglega.  Hef ekki rambað inn á bloggið þitt fyrr en gruflaði það upp eftir að við hittumst.Verð að viðurkenna að þó þessi lög séu eldri en maður sjálfur þá eru þau stórkostleg og framkalla gæsahúð.  Maður þarf að vera orðinn ansi "freðinn" til að viðurkenna það ekki.  Lagið þrek og tár er stórkostlegt og flutningurinn frábær.  Páll Óskar á líka mjög góða útgáfu af laginu og ef mig misminnir ekki þá söng hann það í upphafi síns ferils, og kom röddinni hans á sporið. ef þannig má að orði komast.  Samt er ég oftast hrifnari af upprunalegum útgáfum af lögum.  Kannski ellimörk? Takk fyrir að deila þessu með okkur.  Bestu kveður og skilaðu kveðju til Línu frá mér og Maríu.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 20:57

2 Smámynd: Karl Tómasson

Takk sömuleiðis Einar. Það var sérlega gaman að kynnast þér og spjalla við þig.

Ég og Lína skemmtum okkur konunglega í glæsilegu boði Þorbjargar og Steinþórs og hlökkum til að sjá ykkur, vonandi í janúar. Við erum oft búin að tala um þetta skemmtilega kvöld okkar allra.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 20.11.2008 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband