sun. 16.11.2008
Gamla Brúarland verður framhaldsskóli
Á fundi bæjarráðs Mosfellsbæjar þann 13. nóvember s.l. var samþykkt að kennsla í fyrsta framhaldsskóla Mosfellsbæjar hefðist í Brúarlandi. Það er sérlega gaman til þess að vita að fyrsta skóla- og menningarhús okkar Mosfellinga gegni því hlutverki til að byrja með að verða aftur, nú nokkrum áratugum síðar að nýju skólahús. Brúarland er eitt fallegasta hús Mosfellsbæjar, teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Nú verður þetta gamla fallega hús tekið í gegn að innan sem utan.
Anna Kristjáns, bloggvinkona mín, skrifar um skemmtilega endurfundi gamalla skólafélaga og kennaranna Klöru Klængs og Birgis D. Sveinssonar á bloggi sínu í dag. Þar segir m.a. "Á laugardagskvöldið var svo annað samkvæmi nokkurra krakka sem eignuðust fyrstu skólatöskurnar sínar haustið 1958, fyrir hálfri öld, áttu sínar fegurstu æskuminningar í Brúarlandsskóla og síðar Varmárskóla."
Þessar tvær myndir hér fyrir ofan eru teknar af fræðsluskilti við Brúarlandshúsið. Textann samdi Bjarki Bjarnason gamall nemandi í Brúarlandi.
Afi Lárus skólastjóri Brúarlandsskóla.
Gamlir kennarar í Brúarlands- og Varmárskóla. Efst til vinstri: séra Bjarni Sigurðsson, Lárus Halldórsson, Sigvaldi Sturlaugsson og Birgir D. Sveinsson. Neðri röð frá vinstri: Tómas Sturlaugsson, Klara Klængsdóttir og Eyjólfur Magnússon. Þessar skemmtilegu tvær myndir hér fyrir ofan fékk ég sendar frá Birgi D. Sveinssyni á dögunum og þakka ég fyrir þessa skemmtilegu sendingu en Birgir á stórt og mikið safn ljósmynda frá gamalli tíð og nýrri úr Mosfellssveit og bæ.
Talandi um Birgi, þá voru í dag haldnir hinir árlegu hausttónleikar Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar í íþróttahúsinu að Varmá. Í vor fagnar þessi fróma sveit 45 ára afmæli. Starf Birgis og allra kennarana sem hafa stjórnað, margir hverjir í áratugi er hreint stórkostlegt. Aðal stjórnandi sveitarinnar í dag er m.a. uppalinn hjá Birgi, það er Daði Þór Einarsson.
Þessi mynd er tekin þegar skrifað var undir samning við Menntamálaráðuneytið um að stofnsettur yrði framhaldsskóli í Mosfellsbæ.
Athugasemdir
Séra Bjarni skírði mig, Sigvaldi, Klara og Birgir kenndu mér og Tómas var skólastjórinn, gekk til prestsins á Brúarlandi og ég sem hélt að ég væri SVO ung
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 16.11.2008 kl. 22:53
Já og gott að gömul falleg hús fái ný hlutverk, til hamingju með það
Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 16.11.2008 kl. 22:54
Óska Mosfellingum og nærsveitungum til hamingju með þessa uppreisn Brúarlands, þessa söguríkasta húss sveitarfélagsins Mosfellsbæjar. Ánægjulegt líka að þurfa ekki að þegja yfir þessu lengur.
Sigurður Hreiðar, 17.11.2008 kl. 09:15
Það getur verið óbærilegt að þurfa að þegja yfir leyndarmálum, jafnvel árum saman. Gott að þetta fallega litla hús sem hefur lengi blasað við af aðalþjóðbraut landsmanna skuli hafa fengið verðugt hlutverk. Til hamingju Mosfellingar!
Jóhann G. Frímann, 17.11.2008 kl. 14:42
Já Sigvaldi Birgir,Klara og Tómas voru öll kennararnir mínir Klara var fyrsti kennarinn minn Og Tómas pabbi þinn átti oft erfitt með sig þegar ég tók upp á ýmsu .Ég var ekki í Brúarlandsskóla en Varmárskóla en eldri bræður mínir voru í Brúarlandi .Það er alveg frábært að þið skuluð ætla að nota gamla skólann aftur kveðja að norðan.
Laugheiður Gunnarsdóttir, 17.11.2008 kl. 18:13
já og líklega var ég sú síðasta sem séra Bjarni fermdi í Mosfellskirkju
Laugheiður Gunnarsdóttir, 17.11.2008 kl. 18:15
Til hamingju með þetta Mosfellingar, þarna er fallegt hús með sögu.
Guðni Már Henningsson, 17.11.2008 kl. 19:36
Það held ég að feður okkar sálugir hefðu haft gaman af þessu nýja / gamla hlutverki Brúarlands.
Ég tek undir og segi Til Hamingju til okkar allra í Mosfellsbæ.
steinimagg, 17.11.2008 kl. 22:00
Þetta hús hlýtur Guðjón að hafa teiknað í flýti.
HP Foss, 17.11.2008 kl. 22:36
Það væri synd ef þetta hús mundi drabbast niður húsið er fallegt og góður andi í því ég kom þar oft hér áður fyrr.
Guðjón H Finnbogason, 17.11.2008 kl. 23:41
Já, HP Foss, vel má vera að Guðjón hafi heldur verið að haska sér en hefur engu að síður tekist allvel til. Við verðum líka að muna að nokkuð hefur verið rjálað við það útlit sem hann hafði hugsað sér, fyllt upp í nokkra glugga tam. á vesturgafli og þar sem þú sérð nú tröppur upp í viðbyggingu endaði húsið á teikningu Gauja gamla. Sjálfur man ég líka eftir lágreistum viðbyggingum austan og norðan undir húsinu þar sem voru útihús Lárusar meðan hann bjó ekki bara með skólabörn og fjölskyldu í Brúarlandi heldur hafði líka búpening fyrir utan hundinn Hring, en ekkert af þeim var heldur á upprunalegri teikning Gauja.
Sigurður Hreiðar, 18.11.2008 kl. 09:37
Satt segir þú Sigurður en við nánari skoðun á myndinni sé ég að búið er að klæða húsið með plötum og sjálfsagt að einangra að utan. Þess vegna er húsið svona úr stíl Guðjóns, gluggarnir sitja djúpt og vatnsbretti efnislítil.
Það væri gaman að sjá mynd af húsinu eins og það var áður en það var klætt og það hlýtur að eiga að kippa þessari klæðningu af og færa húsi í sína upprunalegu mynd svo það geti borðið höfundi sínum gott vitni á ný.
HP Foss, 18.11.2008 kl. 11:23
Helgi, einhver staðar luma ég á mynd frá 1938 (ef ég man rétt) þar sem sést meirihlutinn af Brúarlandshúsinu eins og það var þá, þykist raunar vita að Ktomm og fleiri afkomendur Brúarlandsíbúa eigi fleiri myndir og fleiri sjónarhorn. En ég skal senda þér mína ef þú gefur mér netfangið þitt.
Góð kveðja
auto@simnet.is
Sigurður Hreiðar, 18.11.2008 kl. 13:46
Gaman að þetta fallega hús er að fá hlutverk aftur. Í hvert skipti þegar maður fer fram hjá finnst manni sorglegt að það stendur tómt.
Í sambandi við skólahljómsveitina þá voru tónleikarnir um helgina flottar eins og oftast áður. Frábært starfsemi sem fer þarna fram.
Úrsúla Jünemann, 18.11.2008 kl. 15:19
Sæl öll kæru bloggvinir og takk fyrir komuna.
Það er sérlega gaman að upplifa svo sterkt þá almennu ánægju sem virðist ríkja meðal ykkar og bæjarbúa um þessa fyrirhuguðu framkvæmd.
Það stóð vissulega til hjá okkur að taka þetta gamla hús í gegn á kjörtímabilinu og finna því verðugt og gott hlutverk í sveitarfélaginu. Það er með sanni hægt að segja að þessi niðurstaða uppfylli þá drauma alla.
Ég er hjartanlega sammála ykkur Helgi og Sigurður að húsið eigi að fara í sína upprunalegu mynd og rífa eigi m.a. annars utan af því þá klæðningu sem á því er í dag. Hún er ekki til að fríkka húsið, öðru nær.
Bestu kveðjur frá K. Tomm.
Karl Tómasson, 18.11.2008 kl. 23:03
KærleiksLjós til þín og Íslands
steinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 19.11.2008 kl. 08:05
Hjördís.
Háskólinn er með fegurri húsum á okkar landi, þó víðar væri leitað. Það er greinilegt að þú hefur ekki mikið vit á húsagerð og útliti þeirra
Helgi
HP Foss, 20.11.2008 kl. 09:23
Sem betur fer er til fólk sem kýs Framsóknarflokkinn, það væri nú ljótan ef fólk færi t.d að fylkja sig í kringum VG ?
Sé ekki alveg Steingrím J í ríkisstjórn, jafn trekktur og pirraður sem hann nú er alla daga.
Svo, vertu nú ekkert að segja mér til í þessum efnum, Hjössa mín!
HP Foss, 21.11.2008 kl. 08:57
Það þýðir ekkert að standa geætandi í hliðinu endalaus, gjammansi til hægri og vinstri. Það hætta allir að hlusta á slíka hunda, þeir eru einfaldlega settir inn.
Steingrímur Joð er ekki leiðtogi fyrir fimmaura, það er ekki nóg að vera öskureiður og halda að þá sé maður trúverðugur. Það er öðru nær! VG bera ábyrgð á því hvernig komið er fyrir þjóðinni, með því að koma aldrei með neitt uppbyggilegt og eyða þannig dýrmætum tíma alvöru þingmanna að hlusta á þvæluna í þeim.
HP Foss, 21.11.2008 kl. 14:38
Já, ég er alveg sammála Þér.
HP Foss, 22.11.2008 kl. 23:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.