fös. 7.11.2008
Fimmhundraðasti bæjarstjórnarfundurinn í Mosfellsbæ
Þann 9. ágúst árið 1987 varð sveitin okkar að bæ. Þann dag var fyrsti bæjarstjórnarfundurinn haldin í Mosfellsbæ.
Í Fyrstu bæjarstjórn Mosfellsbæjar sátu: Þengill Oddsson, fyrir D lista, Aðalheiður Magnúsdóttir, fyrir G lista, Magnús Sigsteinsson, fyrir D lista, Þórdís Sigurðardóttir, fyrir D lista, Óskar Kjartansson fyrir D lista, Oddur Gústafsson fyrir, A lista og Helga A. Richter, fyrir D lista. Fyrsti bæjarstjórinn var Páll Guðjónsson.
Nú rúmu 21 ári síðar var haldinn fimmhundraðasti bæjarstjórnarfundurinn í Mosfellsbæ. Hann var haldinn í nýjum og glæsilegum fundarsal bæjarstjórnar.
Hér koma nokkrar myndir úr nýja og gamla salnum.
Fyrsti fundurinn í nýja salnum.
Frá vinstri: Marteinn Magnússon, bæjarfulltrúi Framsóknarmanna, Hanna Bjartmars, bæjarfulltrúi Samfylkingar, Jónas Sigurðsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar, Stefán Ómar Jónsson, bæjarritari, Karl Tómasson, bæjarfulltrúi Vinstri grænna og forseti bæjarstjórnar, Haraldur Sverrisson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna og bæjarstjóri, Hafsteinn Pálsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna og Gylfi Dalmann Aðalsteinsson varabæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna. Herdís Sigurjónsdóttir bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna og formaður bæjarráðs var forfölluð.
Að loknum fundi var fagnað. Frá vinstri Björn Þráinn Þórðarson framkvæmdastjóri fræðslusviðs, Unnur V. Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs, Sædís Pálsdóttir, þjónustu fulltrúi, Haraldur Sverrisson og Karl Tómasson.
Hanna fær heila hersingu yfir sig við prófarkarlestur fundargerðar. Hafsteinn, Marteinn, Karl, Jónas og Stefán Ómar
Síðasti fundurinn í gamla salnum.
Ég set hér einnig inn að gamni mínu gamla mynd þegar pabbi var í sveitarstjórn Mosfellsbæjar.
Efst til hægri: Haukur Níelsson, Axel Aspelund, Tómas Sturlaugsson. Neðri röð frá vinstri: Hrólfur Ingólfsson sveitarstjóri, Salome Þorkelsdóttir og Jón M. Guðmundsson.
Athugasemdir
Glæsilegt Kalli og gaman að sjá þetta. Nýji fundarsalurinn er glæsilegur.
gudni.is, 7.11.2008 kl. 22:02
Flottur nýi salurinn. Ég gat ekki annað en brosað þegar ég fann pabba þinn á myndinni. Svakalega eruð þið líkir.
Takk Kalli minn Tomm fyrir fallega kveðju mín megin.
Jóna Á. Gísladóttir, 7.11.2008 kl. 23:55
Gaman að þessu og tek undir, þið eruð líkir feðgarnir!
kveðja frá einni sem aldrei varð svo fræg að búa í Mosfellsbæ, aðeins sveit :)
Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 10:49
þessa eldri þekkti ég gaman að sjá þetta
Laugheiður Gunnarsdóttir, 8.11.2008 kl. 20:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.