fös. 7.11.2008
Að gera upp gömul hús
Það hefur verið okkur hjónum mikið hugðarefni að halda í og varðveita það gamla. Þar ber ekki síst varðveisla gamalla bygginga og höfum við á s.l.árum gert upp tvö sögufræg hús í gömlu Álafosskvosinni. Annað þeirra í samvinnu við bróður og mág, að Álafossvegi 22 þar sem handverksstæðið Ásgarður er nú til húsa. Þar lögðum við dag við nótt til að gera húsið upp og settum þar á stofn glæsilegan veitingastað sem átti engan sinn líkan og er mörgum enn í fersku minni.
Þar sóttust margir þekktustu tónlistarmenn landsins eftir að spila og höfðu þeir á orði að í húsinu væri frábær hljómburður og að þar væri einstakt að koma fram. Álafoss föt bezt eins og staðurinn hét fékk viðurkenningu frá Félagi íslenskra hljómlistarmanna fyrir framúrskarandi framtak og aðstöðu fyrir tónlistarmenn. Kappkostað var að hafa sem menningarlegastan blæ yfir staðnum. Til að mynda voru þar auk vandaðrar tónlistar haldnar myndlistarsýningar sem margar vöktu athygli gesta.
Nokkrum árum síðar festum við kaup á Álafossvegi 18 og gerðum það fallega hús upp frá grunni en það hús var á dögum ullariðnaðarins verbúð verkafólks gömlu Álafossverksmiðjunnar og þar fundum við margar menjar frá gamalli tíð.
Álafosskvosin er í huga okkar einstakur staður þar sem við bæði áttum margar góðar leikstundir í bernsku okkar en einnig var hún oft ógnvekjandi og draugaleg á dimmum kvöldum en þá möluðu ennþá vélarnar í húsum brekkunnar allan sólarhringinn
Það er ánægjulegt og ómetanlegt að hafa átt stóran þátt í uppbyggingu gömlu húsanna í Álafosskvos.
Líney Ólafsdóttir og Karl Tómasson.
Athugasemdir
Tíminn við endurbætur 22 var mjög góður, endalaus eldmóður ykkar bræðra og kvenna ykkar var aðdáunarverður. Og að taka næsta hús sömu tökum lýsir ykkur hjónum vel. Átthagatryggð er dyggð hjá þeim sem hafa dugnaðinn og kjarkinn að auki, þó þau geti verið þeim fjötur um fót sem ólund bera í sál sinni.
Jón úr Vör segir í ljóðabók sinni, Þorpinu, "enginn slítur þau bönd sem hann er bundinn heimahögum sínum."
Láttu ekki aðflutta öfundarmenn slá þig út að laginu, með rógburði og lygum, félagi kær.
kvðja - Helgi
HP Foss, 7.11.2008 kl. 13:14
Álafossúlpurnur voru allavega betri aðrar úlpur á sínum tíma. Á því er engin vafi.
Dunni, 7.11.2008 kl. 13:16
Já Kalli: Álafoss föt best var snilld á sínum tíma og synd að staðurinn skuli ekki enn þjóna sínum tilgangi. Bæjarrónar Mosfellsbæjar sem og aðrir Mosfellingar eiga margt í minningunni á þessum stað. Þú Kalli, ásamt bróður þínum, hafið skrifað nafn ykkar í sögubækur Mosó með þessum gjörðum í kvosinni.
Þorsteinn Sigvaldason (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 23:43
Kæri Helgi. Kraftur þinn í að gera húsið upp með okkur var ómetanlegur og endalaust skemmtilegur.
Já Duni þær voru engu líkar.
Þakka þér hólið kæri Þorsteinn Við hjónin lögðum alla okkar krafta í að gera staðinn sem bestan, fallegastan og að þjónusta alla okkar viðskiptavini af alúð. Við söknum oft Álafoss föt bezt.
Bestu kveðjur frá K. Tomm og Línu.
Karl Tómasson, 8.11.2008 kl. 20:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.