Hinni miklu leiksýningu er lokið, það eru orð að sönnu

Þann 13. október næstkomandi er liðin öld frá fæðingu ljóðskáldsins Steins Steinarr.

Steinn Steinarr

Leiksýning

Hin mikla leiksýning


var loks á enda.


Eins og logandi blys


hafði leikur minn risið


í hamslausri gleði


og friðlausri kvöl,


uns hann féll á ný


í skoplegri auðmýkt


til upphafs síns.


Það var lífið sjálft,


það var leikur minn.


Og ég leit fram í salinn


og bjóst við stjórnlausum fögnuði


fólksins.


En þar var enginn.


Og annarleg kyrrð hvíldi yfir


auðum bekkjunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þetta er sorglegt. Einhver sem deyr afar einmana.

Jóna Á. Gísladóttir, 12.10.2008 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband