Kjuðinn

Ég hafði svolítið gaman að því að lesa pistil Ásgeirs Jónssonar í Mosfellingi í gær. Hann fór um víðan völl eins og vanalega í skemmtilegum pistlum sínum. Þar nefndi hann m.a. gamla Kjuðann og sagði hann hafi verið miðstöð bæjarins. Kjuðinn var knattborðsstofa sem ég stofnsetti og rak á árunum 1995 - 1998 eða allt þar til við bræður og konur okkar stofnuðum og opnuðum Álafoss föt bezt.

Kjuðinn var sérlega vinsæll staður og þar blómstraði öflugt félagslíf fólks á öllum aldri. Þetta er mér algerlega ógleymanlegur tími, það ríkti einhver óútskýranleg stemning á Kjuðanum og jákvætt andrúmsloft. Margir gamlir Kjuðamenn hafa oft haft þetta á orði við mig. 

Kjuðinn

Steini bróðir tekur fyrsta stuðið á Kjuðanum

Það sem meira er og komst í sögubækurnar frá þessum árum er að frá Kjuðanum komu tveir Íslandsmeistarar unglinga í snóker. Það voru þeir, Loftur Þór Þórunnarson og Hilmar Gunnarsson. Það var mikið taugastríð hjá mér þegar þeir félagar léku úrslitaleikina sína á Íslandsmótinu sem haldið var í Reykjavík í bæði skiptin. Mikið var ég stoltur af þeim þegar þeir lönduðu Íslandsmeistaratitlinum. Þetta afrek þeirra vakti einnig talsverða athygli að tvö ár í röð kæmu svo öflugir snókerspilarar úr Mosfellsbænum.

Eins var gaman þegar þeir Kristján Helgason og Jóhannes kepptu á Álftarósmótinu sem sjónvarpað var beint frá á Kjuðanum. Síðar kom Kristján í opinbera heimsókn á Kjuðann sem auglýst var vandlega þar sem hann sýndi áhugasömum snókerspilurum í Mosfellsbæ snilli sína. Þá gerði Kristján sér lítið fyrir og breikaði 147 á troðfullum Kjuðanum en 147 er hæsta skor sem mögulegt er að ná í Snóker. Hver sá sem varð vitni af þessu afreki Kristjáns held ég að gleymi því aldrei. 

 

Kjuðinn 1

Pabbi og Óli tengdó á opnunarkvöldinu

Kjuðinn 2 +

 

Kjuðinn 3

Kjuðinn 4

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Kúl..

Gulli litli, 13.9.2008 kl. 23:34

2 Smámynd: Guðmundur St. Valdimarsson

Ég spilaði snóker á árum áður, átti meira að segja minn kjuða sjálfur. Þetta er íþrótt fyrir herramenn, eins og t.d. skák og skotfimi eru líka. Samhæfir huga og hönd, heilmikil pæling í líkamsstöðu, öndun o.f.l.. Maður þarf ekki að vera p---sveittur með bolta í hönd eða á fæti til að teljast vera íþróttamaður. Minn draumur er að leika kurling í framtíðinni. Skemmtilegur tími.

Guðmundur St. Valdimarsson, 14.9.2008 kl. 04:30

3 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Ég fer stundum í snóker með manninum mínum og er bara að verða fjandi góð.  Tapaði lengi vel ógurlega !!

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 14.9.2008 kl. 10:49

4 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Þetta var skemmtilegur staður í Mósó, mikið og fjörugt félagslíf. Það er spurning hvort hægt er að búa til svona stað aftur. Þarna fer fram tómstundargaman sem er miklu skemmtilegra en að húka fyrir framan kassann eða tölvunni.

Úrsúla Jünemann, 14.9.2008 kl. 17:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband