mið. 10.9.2008
Rotsjúkdómar
Ég geri frekar lítið af því að tengja blogg mín við fréttir en gerði á því undantekningu í gær eins og sjá má hér fyrir neðan. Þá bloggaði ég við frétt um afreksmanninn og hjólreiðamanninn, Lance Amstrong. Eins og fram kemur í færslu minni höfum við báðir glímt við krabbamein og unnið bug á því.
Á heimasíðu nokkurri sem haldið hefur verið úti af manni sem kallaði sig um tíma Varmársamtaka Valdi og er til þess eins að rægja og niðurlægja fólk, allt undir leyninöfnum var í morgun skrifuð færsla sem mér var bent sérstaklega á.
Þar ritaði Alvin nokkur athugasemd þar sem hann hvatti persónulegan vin minn að forðast fólk með rotsjúkdóma. Alvin þessi ruglaðist í þessari sömu færslu um kynferði sitt, því hann varð um tíma kvenkyns í henni. Þessari færslu var eitt út nú síðdegis en eftir stendur sorgleg staðreynd þess hversu fólk getur lagst lágt.
Ég bið þess og vona að stjórnarmenn Varmársamtakanna sem þarna skrifa láti af því.
Gunnlaugur B. Ólafsson, formaður. Ólafur Ragnarsson, gjaldkeri og Kristín Pálsdóttir, stjórnarfólk í Varmársamtökunum, ég skora nú á ykkur í síðasta skipti að reyna að hefja umræðuna á málefnalegra plan. Á vettvangi heimasíðu samtaka ykkar en ekki á helsjúkri heimasíðu sem engin þorir að gangast við og af hverju skildi engin þora það?.
Ef það er til vottur af greind sem kennd er við tilfinningar í manneskju, er enn möguleiki að fá uppreisn æru.
Athugasemdir
Allir eru nú að reyna að gera sitt besta og einhversstaðar þurfa þeir sem eru minnimáttar að vera, leyfum þeim að vera í friði á síðu Valda.
steinimagg, 10.9.2008 kl. 22:09
Hallsteinn, takk fyrir sendinguna í gær. Ég skoða þetta.
Anna, ég frétti að þú hefðir gripið í tómt síðast, bara að hringja á undan og ég skelli vöfflujárninu í samband. Annars eru pönnsurnar ágætar hjá mér líka.
Bestu kveðjur. Kalli Tomm.
Karl Tómasson, 11.9.2008 kl. 06:30
Ég var að hugsa um það þegar ég sötraði morgunkaffið áðan, hvað það er sem fær fólk til að leggja annað fólk í einelti. Auðvitað er það sjúkleiki og í raun mikið lasið fólk sem gerir slíkt og á í raun að vorkenna.
Bakvið slíka þörf hjá fullorðnu fólki liggur oftast vissulega öfund, svekkelsi, afbrýðisemi, vonbryggði, heift, minnimáttarkennd og lítilsvirðing gagnvart sjálfum sér og það er ekki góður pakki að bera í sálu sinni alla daga. Guð minn góður hvað það hlýtur að vera erfitt.
Mikið ósköp hlýtur einnig að vera erfitt að vera alltaf neikvæður og með bókstaflega allt á hornum sér alla tíð, alltaf. Aldrei sól í sinni, einungis svekkelsi og aftur svekkelsi.
Dettur nokkrum manni í hug að hann nái nokkru sinni árangri með því móti? Nei, slíkt fólk getur ekki einu sinni haldið úti bloggsíðu undir eigin nafni. Það treystir sér ekki einu sinni til þess.
Eigið góðan dag kæru vinir. Kalli Tomm.
Karl Tómasson, 11.9.2008 kl. 07:01
Það er athyglisvert að fylgjast með viðbrögðum þessa fólks á síðu sinni. Sérstaklega er ræðan um meintar rangfærslur þínar sem í raun eru rangfærslur þeirra sjálfra (þar sem fólkið er orðið svo ruglað í fjölbreytileika sínum að það man ekki neitt lengur í samhengi), athyglisverð. Það rifjast upp þetta með að það sé best að ljúga engu þá er ekkert sem þarf að muna. Eymingjas fólkið þarf orðið að muna svo margt!!!
Sérkennilegast þykir mér hin yfirlætislega krafa um að þú biðjir mann og annan afsökunar skondin á að líta! Þeim væri nær að skammast sín og byrja á því að biðja þig og aðra afsökunar.
Eins og indæl kona þér tengd (en ekki sú sem þau halda) sagði svo réttilega, enda þar afar réttsýn kona á ferð: Umhverfi er líka fólk. Þegar þessu fólki fer að skiljast það hættir það vonandi að hafa þau mengandi áhrif á umhverfi sitt sem þú nefnir hér í athugasemdinni yfir kaffibollanum. Spurning er hvenær og hvort fólkið sé fært um að sýna þennan skilning - nú ef ekki, þá verður bara að afgreiða það eins og hverja aðra meinsemd, því þar er hinn eini sanni rotsjúkdómur þessa samfélags á ferð. Ómeðhöndlaður andlegur veikleiki sem bitnar á öðrum og allt falið á bak við umhyggju fyrir umhverfinu. Óábyrg hegðun réttlætt með 12 spora kerfinu.
Varmársamtaka-Valda og kauna hans (það var reyndar ekki á þinni síðu sem það nafn birtist fyrst, það er nafngift annarrar konu sem tengist þér, og um tíma gekkst VV við nafninu þar til hann fattaði hvað GunnValdi þýddi) verður að meðhöndla sem umhverfisspillandi afl í umhverfinu, fólk sem aðeins vill meiða og særa og segist vera að skemmta sér við þá iðju eins og Valdi sjálfur sagði í svari sínu á síðu sinni í gær í til HPFoss:
Þetta voru orð hans eftir að Helgi undraðist kynskiptaaðgerð bloggdólgsins og þá staðreynd að athugasemdin var fjarlægð. Þá vitum við af hvaða hvötum þetta fólk leggur samborgara sína í einelti. Það skemmtir sér við að níðast á öðrum!!!
Í skammarræðu sinni þér til handa segir hann hinsvegar:
Það er greinilegt að það hefur eitthvað verið farið að skekkjast brosið á þeim sem áttu að skemmta sér og hlæja hvað mest og best á hinum vinsæla skemmtistað fíflsins.
Já, það er vandlifað í henni veröld, einkum þegar viðkomandi er ekki til en vill samt vera marktækur. Það er sorglegt að sjá hvernig mislukkaðir draumar og þrár eftir valdi og yfirráðum í samfélaginu getur farið með fólk, það sést best á því að þessi aumingjasíða er öll tileinkuð valdi á einn eða annan hátt.
Hjördís Kvaran Einarsdóttir (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 08:14
Sumt er hryggilegra en tárum taki.
Guðmundur St. Valdimarsson, 11.9.2008 kl. 09:16
Það er list að vera jákvæður og sú list ekki öllum gefin.
En það er hægt að rækta þessa list og jákvætt hugarfar, ég þarf að minna mig á það reglulega, eftir tilvikum og /eða aðstæðum.
Stundum er eina úrræðið til að losa sig frá neikvæðu áhrifum! Að kveðja viðkomandi áhrifavalda og það kann að vera snúið.
Fjarki , 11.9.2008 kl. 11:08
Takk fyrir komuna kæru vinir.
Gummi minn, það var gaman að lesa pistil þinn, eins og vanalega þegar þú tekur þér penna í hönd eða mælir orð af munni býða allir spenntir eftir því sem koma skal. Það þekki ég frá því í gamla daga þegar þú þvældist með okkur Gildrufélögum um land allt og einnig í dag.
Skrambi voru þetta annars skemmtilegir tímar hjá okkur í gamladaga. Manstu þegar Hallsteinn vinur okkar fékk dráttinn svæsna í svefnpokanum á Akureyri, þá meina ég sinadráttinn fræga. Sem auðvitað gekk bara undir nafninu drátturinn alla nóttina góðu.
Ópin og öskrin voru slík að við vöknuðum allir upp með andfælum og sofnuðum seint og illa eftir það. Ég held að við höfum samt um síðir hlegið okkur í svefn.
Takk, takk minn kæri.
Finnur Bjarki, takk fyrir komuna, ég mun standa við það sem við töluðum um varðandi verkefnið góða sem þú leggur nú þitt að mörkum að allt gangi vel.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Karl Tómasson, 11.9.2008 kl. 23:35
Sérkennileg þessi samtök, þar sem enginn þorir að koma fram undir nafni og einnig það að þeir kenni sig við íbúa mosfellsbæjar. Vissulega rétt, en afar fáir þeirra og líkegast bara íbúar við lækinn.
Þetta eru samtök, sem eru jákvæð á þann hátt að hrista þessa síðhippísku íbúa saman og veita tilefni til að halda flóamarkaði og selja Lífrænt kakó og ökológískar pönsur með soyarjóma. Soldið krúttlegt, en þeir ættu að finna sér annað og nærtækara tilefni. Markmiðið er ekki nógu ljóst né í takti við starfsemina.
Það samræmist ekki heldur huggulegheitunum að hafa það sem hliðarbúgrein að níða skóinn af einstaklingu í ræðu og riti og án tengsla við málefnið (sem ekki er ljóst) Hvernig væri að kalla þetta biologiska kósíklúbbinn og halda sig við markmiðið, sem felst í nafninu.
Þessi sem nefnir sig Valdi gæti verið einn íbúinn við lækinn, sem vinnur við að hengja upp plaköt á alla lausa veggi í borginni, umhverfinu til lítillar sæmdar. Það getur þó verið rangt hjá mér. Ég þekki þann dreg, og er hann öðlingur hinn mesti. Ef hann er í þessum samtökum hinsvegar, þá er hann ekki beint samkvæmur sjálfum sér í umhverfisfasismanum.
Mér finnst allavega að það samasemmerki, sem þetta fólk setur á milli anarkisma og umhverfisverndar, sé æði vafasamt.
Þeir meiga svo senda mér skítkast í pósti. Netfangið mitt er á bloggsíðunni minni.
Jón Steinar Ragnarsson, 12.9.2008 kl. 04:30
Það er svo orðið tímabært að þeir birti myndir að famkvæmdum loknum en ekki þessar gömlu myndir af því þegar þær voru á fullu og allt sundurgrafið. Bara svona til að vera up to speed.
Jón Steinar Ragnarsson, 12.9.2008 kl. 04:34
Heil og sæl
Þetta eru orðnar nokkuð langdregnar dylgjur hjá Karli Tómassyni um að ég tengist einhverjum skrifum á öðrum síðum undir nafnleynd. Það hef ég aldrei gert og það er ekki sæmandi embættismanni, sem þiggur laun fyrir það að vinna fyrir bæjarbúa að ganga fram með þessum hætti. Honum ber að biðjast afsökunar á þessum röngu fullyrðingum í minn garð.
Nú er í farvatninu borgarafundur um Tunguveg, þar sem fulltrúar náttúruverndar, hestamanna og fleiri munu hafa framsögu. Þarna gefst Karli Tómassyni annað tækifæri til að vera málefnalegur þáttakendi í umræðu um það sem margir bæjarbúar upplifa sem stór mistök í skipulagsmálum. Því miður mistókst honum slík þátttaka varðandi Helgafellsveg.
Ég skora á hann að hlusta eftir viðvörunum Ólafs Arnalds eins fremsta vist- pg umhverfissérfræðings þjóðarinnar. Eða að ræða við gamla vistfræðiprófessorinn minn í líffræðinni Agnar Ingólfsson sem vann að rannsóknum á Varmárósum og leiddi til þess að þeir voru friðlýstir.
Athugasemdir Jóns Steinars hér um Varmársamtökin er bara lélegt drullumall sem að hæfir þroskastiginu sem að hann sýnir sig á bloggmyndinni.
Með kærleika og flæði, G
Gunnlaugur B Ólafsson, 12.9.2008 kl. 11:13
Sæll Jón Steinar og þakka þér fyrir komuna.
Ég kíki reglulega á síðu þína og hef gert lengi. Þar má oft sjá og lesa í athugasemdum fjölda fólks hversu skemmtilegur penni þú ert.
Ég vil nú endilega benda þér á fyrst þú hér fyrir ofan nefnir Valda Gunnlaugs eða Gunnvalda eins og hann kallaði sig lengi að hann var lengst af aðallinkur á heimasíðu Varmársamtakanna.
Þau tóku hann þaðan eftir að kvörtunum rigndi yfir þau frá mætu fólki héðan og þaðan sem var gersamlega misboðið það sem þar fer fram.
Umræðan er ekki á háu plani hjá Varmársamtökunum þar sem skrif þeirra og stjórnarmanna fara fyrst og síðast fram á slíkri nafnleyndar aumingja og sorasíðu.
Ég bið þig Jón Steinar að taka það ekki nærri þér þótt Gunnlaugur nefni þroskastig þitt. Ef einhver leifir sér að vera á annarri skoðun en hann, þá er sá hinn sami samstundis ataður aur og háði.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 12.9.2008 kl. 12:48
KÆRLEIKUR, alveg bráðfyndið.
steinimagg, 12.9.2008 kl. 12:50
Gunnlaugur: Þessi framkvæmd virðist vera ljómandi snyrtileg og allt umhverfið í stakasta lagi. Ég man þá tíð að þarna var iðnaðarhverfi og þverhandaþykk mengunarfroðan flaut niður þessa á. Það var engum samtökum að þakka að það breyttist.
Það hefur hinsvegar verið markmið manna þarna að halda sem mest í þessa hjalla og hefja minningu þessa umhverfisslyss upp í hæðir. Það tjasl, sem er þarna í eigu margra meðlima stensst varla bygginasamþykktir og þessi drulluræma, sem þetta svæði var hefur þó tekið stórkostlegum stakkaskiptum til hins betra og það fyrir stofnun þessara samtaka ykkar.
Þetta Ad hominem þitt var svosem viðbúið eftir lestur á skrifum ykkar. Það er eins og hver önnur öfugmælavísa að heimta afsakanir frá Karli hér. Hann hefur ekkert gert annað en að benda á málflutning ykkar og óska þess að þessum persónuárásum linni. Þar eruð þið í stórri skuld.
Yfirlæti þitt, þessa andans gúru og hjátrúarprangara klæðir heldur ekki þeirri ímynd, sem þú reynir annars að gefa af þér. Talandi um þroskaleysi, þá lestu aftur athugasemdir þínar og blaðaðu í títtnefndri síðu. Þið vinnið hugsjón ykkar, ef einhver er, ekki samúð með slíkum framgangi og ég bið þig að verða maður meiri og biðja Karl afsökunnar. Hann hefur akkúrat ekkert gert þér né nokkrum manni í ykkar röðum.
Ástæðan fyrir að kröfur ykkar hafa ekki náð fram að ganga er sú að þið eruð móúrsýkislegur minnihluti, sem með orðum og gjörðum í gegnum tíðina hafið gert ykkur gersamlega ómarktæka. Sér grefur gröf...
Jón Steinar Ragnarsson, 12.9.2008 kl. 19:34
Vil undirstrika að ég er ekki að segja að bragarbót hafi orðið fyrir tilstilli varmársamtakanna, heldur varð hún fyrir daga þeirra. Bara svo menn fari nú ekki að berja sér á brjóst.
Jón Steinar Ragnarsson, 12.9.2008 kl. 19:37
******************************************
Leynivinur ritaði
“slýkkt” er ekki til í máli okkar Íslendinga. Ertu aðfluttur?
Sýkta liðið í kvosinni
gengur ekki heilt til skógar
heldur grímunni helfrosinni
meðan valdi tónar
sér í omm og jafnframt frúnni
og rottuhundarnir valsa frjálsir
skítandi um undir brúnni
Maður líttu þér nær! Helst af öllu bakvið hús
Leynivinur (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 20:26
Afsakaðu en það vantaði framan á færsluna. Ofangreint var sett inn á bloggsíðu Valda Sturl og bíður og bíður eftir því hvort hann hafi manndóminn til að láta skoðanir annarra en já manna standa.
Leynivinur (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 20:36
Fólk sem vorkennir sjálfu sér endrum og sinnum er fólk sem ber virðingu fyrir sjálfu sér, hefur sterka sjálfsmynd og er þ.a.l. öruggt um sitt eigið ágæti. Þetta hefur ekkert með útlit að gera, ekki menntun, ekki þjóðfélagsstöðu heldur þá staðreynd að vera sáttur við sjálfan sig eins og maður er og það að þykja vænt um sig. Fólk sem þarf ekki að vera í samkeppni við einn eða neinn á neinum forsendum nema sínum eigin og telur sig hvorki vera betra né verra en aðrir. Heldur einmitt er gætt þeim eiginleika að geta dáðst að öðrum ekki síður en sjálfum sér og fagnað því að geta lært af öðrum og tileinkað sér annarra færni og miðlað af sínum eigin.
Ef þú getur vorkennt öðrum er það af hvötum sem hverjum manni hljóta að vera eðlilegar og því skyldirðu þá ekki vorkenna sjálfum þér þar sem þú ert sú manneskja sem þér þykir vænst um og berð allan hag fyrir brjósti. Það er gott að geta verið góður við sjálfan sig, ánægður með sig og einnig gott að geta vorkennt sjálfum sér, fundið til með sjálfum sér og að geta huggað sjálfan sig. Staðreyndin er hinsvegar sú að hver og einn veit það að hann kemst aldrei upp með það að vorkenna sjálfum sér endalaust. Það er tímabundið ástand.
Allir sem ganga í gegnum áföll, af hvaða toga sem þau eru, þurfa að fara í gegnum ákveðið ferli. Áfalli fylgir alltaf sorg sem er misþung eftir eðli áfallsins. Það að ganga í gegnum sorgina og leyfa öllum tilfinningum að fá útrás er afar mikilvægt en loka hana ekki inni þar sem hún getur kraumað og brotist út í reiði, heift eða neikvæðum öflum. Það að sigrast á sorginni og óttanum er að ganga í gegnum það hvort tveggja, að tala umog deila með öðrum.
Ástæða þessara skrifa minna er þau gengdarlausu og niðrandi skrif á síðu einhvers Valda sem hefur tengst Varmársamtökunum undanfarin misseri og beinst að eiginmanni mínum.
Steininn tók úr þegar hæðst var af alvarlegum veikindum hans nú nýlega og látið í það skína að hann sé að sækjast eftir vorkunn. Hann hefur sem betur fer náð fullum bata og þarf því ekki að sækjast eftir vorkunn. Mér hefur alltaf fundist gott að hann geti tjáð sig um sín veikindi, vonandi öðrum til hjálpar. Líney Ólafsdóttir.
Líney Ólafsdóttir. (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 21:37
Já, ég varð nú eiginlega hvummsa við, eins og margir aðrir, að sjá hve langt er hægt að ganga til að níða skóinn af náunganum. Sorglegt er að horfa upp á slíkt og með ólíkindum að um fullorðið fólk sé að ræða.
Kveðja úr smalamennskunum á Síðunni, Þar sem lífið leikur við hvurn sinn fingur.
Helgi Páls
HP Foss, 12.9.2008 kl. 23:52
Siðblindan ríður ekki við einteyming á þessari Valda-síðu. Nú er allt í einu illa séð að fólk skrifi undir leyninöfnum, ip-tölur birtar eins og þær skipti einhverju höfuðmáli í raun. Það gera þær ekki nema þær séu raktar og það þarf dómsúrskurð til þess. Annað er lögbrot. Ip-tölur eru reyndar trúarbrögð (þrælfyndin) hjá þessum samtökum og þetta minnir mig reyndar á að ákveðinn manneskja í Varmársamtökunum sagðist einu sinni vera að rekja ip-tölur í vinnunni sinni með hjálp tölvumanns þar. Spurning að athuga hvort viðkomandi hafi gerst brotlegur við lög þar?
Ekki nóg með það heldur leyfir þetta fólk sér að fara inn í athugsemdir frá öðrum og breyta þeim eins og um athugasemdir þess sjálfs sé að ræða. Það er furðulegur fídus hjá Vísi að leyfa þetta og gerir alla umfjöllun þar lélega því enginn veit í raun hver skrifaði hvað.
Nóg um það, það sem ég vildi sagt hafa var að þessi samtök hafa ekkert að færa Mosfellingum. Þau hafa orsakað álitshnekki fólks gagnvart bæjarfélaginu og unnið bæjarfélaginu ómetanlegan skaða sem það þó verður vonandi ekki lengi að jafna sig á þar sem samtökin hafa misst allan trúverðugleika.
Það veit ég hinsvegar að þú, Karl, hefur ólíkt samtökunum alltaf unnað bæjarfélaginu þínu og sýnt það í orði og á borði hvers virði það er þér og það efast enginn um að þú vilt hag þess sem mestan. Það sýna t.d. störf þín í pólitíkinni undanfarin ár, í foreldrafélaginu Þrumum og eldingum og það þrekvirki sem það var að stofna bæjarblaðið Mosfelling og reka það og vera eini starfandi blaðamaðurinn á því fyrstu árin.
Samtökin hafa vælt um misskipt völd og vilja helst fá að ráða öllu og fela það á bak við eitthvað sem þau kalla íbúalýðræði. Þeim hefur jafnvel tekist að eyðileggja það jákvæða og skemmtilega fyrirbæri með túlkun sinni á því.
Meðlimir samtakanna verða að fara pólitísku leiðina vilji þeir öðlast völd í bæjarfélaginu en heyrst hefur að það hafi sumir einmitt reynt en verið úthýst úr sínum eigin flokki og ekki þótt fýsilegur kostur á lista. Kannski þar liggi rót hegðunarvandans hjá sumum þarna?
SÞ (IP-tala skráð) 13.9.2008 kl. 12:07
maður fær bara sting i magann að heyra um svona reiði til þín kalli minn og þær lákúrulegu leiðir sem farnar eru til að meiða þig.
en þú ert senilega maður sem getur tekið þessu og gefið það áfram til okkar hinna og þeirra sem láta reiði sína bitna á þér. það myndu sennilega margir pakka saman og fara inn í klel sína.
en það gerir þú ekki.
þín leið er aðdáunarverð og sýnir í raun að það er ekkert marktækt í því sem illar tungur segja.
ég hef alltaf í huga þegar erfitt er hjá mér: þetta tímabil gefur mér möguleika á að vinna með það sem þörf er á og gera mig að sterkari manneskju með dýpri skilning á mannlegu eðli.
það sem er mikilvægast fyrir mig og alla sem lesa um þessi mál er að skoða okkur sjálf út frá þessum samskiptum. hvað kemur upp í mér, hvernig get ég sem áhorfandi nýtt mér til góðs, þessi átök frá þeim til þín,
hvernig getur þú nýtt þér þessi samskipti til góðs ?
hvernig geta þau nýtt sér þessi samskipti til góðs.
ég held ekki að lausnin sé að dæma þau, því þá dæmi ég í raun sjálfa mig. ég er einhvernveginn viss um að þau eru sannfærð um að allt sem þau segja og gera er sannleikur og þess vegna er reiðin svona mikil í þinn garð.. en það er mikilvægt að gera sér grein fyrir að við höfum hver okkar sanleika og ef maður getur ekki séð og viðurkennt það, þá er engin leið að finna sættir.
kannski er það ekki það sem öflin vilja.
fyrir mér er þessi reiði sem send er til þín, ekki góð öfl, þetta eru öfl sem tæta í sundur í staðin fyrir að sameina og finnst mér skrítið að það séu þau öfl sem vinna með þessu fólki. það er í raun áhyggjuefni því hvað er þá það sem liggur á bak við allt það sem þau gera, sem ég get lesið að á að vera ýmilegt mannbætandi ?
það sem ég líka hugsa er að í raun setur þetta í gang fullt af reiðiorku sem hefur áhrif á líðan margra og það er ábyggilega ætlunin hjá þeim öflum sem er verið að vinna með.
þetta hefur ekki bara áhrif á þig og fjölskylduna þína, en alla sem koma við í þessu samhengi.
get ég augljóslega séð það á þessum kommentum sem þú færð hérna á blogginu þínu.
ég vil því loka þessum skrifpælingum mínum með að senda ykkur öllum Kærleika með von um að hann vinni hjörtu ykkar og um leið óska ég
Hallsteini
Önnu
Hjördísi
Guðmundi
Fjarka
Jóni Steinari
Gunnlaugi
Liney
HP Foss
og þér elsku Kalli minn dásamlegar helgi
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.9.2008 kl. 12:09
Leiðinlegt að heyra þegar fólk er að níða skóinn og særa aðra á netinu. Ég skil ekki hvaða tilgangi það á að þjóna.
Þú rokkar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 14.9.2008 kl. 09:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.