Jenný Anna, besti bloggari Íslands

Jenný

Nú þegar hvorki fleiri né færri en 2506 hafa greitt atkvæði í kosningu um besta bloggara Íslands eru úrslit kunn.

Það var engin önnur en bloggarinn duglegi og bráðskemmtilegi, Jenný Anna sem bar sigur úr bítum með 545 atkvæði á bak við sig.

Keppnin var lengi vel í járnum þar sem Lára Hanna, Jens Guð, Ómar Ragnars og Jóna Gísla voru allan tímann í baráttunni. Endaspretturinn var Jennýjar og er hún því verðskuldaður sigurvegari.

Til hamingju með það ágæta Jenný Anna.

Vonandi fæst sigurvegarinn í viðtal þar sem við fáum að kynnast þessari kjarnakonu á bakvið bloggarann. Það verður þá birt á næstu dögum á síðu minni.

Ég þakka öllum sem tóku þátt, bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært   til hamingju Jenný Anna og takk Karl fyrir að standa fyrir könnunninni, frábært framtak   Ég hélt með þeim öllum, en varð auðvitað að velja einn úr....  eins og við öll, en það var mjög erfitt 

Edda (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 21:33

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er mjög ánægð með þessa niðurstöðu, Jenný er vel að því komin. 

Ásdís Sigurðardóttir, 31.8.2008 kl. 21:45

3 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Hún er frábær bloggari konan 

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 31.8.2008 kl. 22:24

4 Smámynd: halkatla

en gaman að það vinni alltaf þeir sem ég kýs - ég gleymdi reyndar að kjósa annarsstaðar en í huganum, en lýsti yfir í fyrra að Jens eða Jenný ættu sigurinn bæði jafn mikið skilið, og fólkið hlustar

halkatla, 31.8.2008 kl. 23:07

5 Smámynd: Jens Guð

  Ég óska Jenný hjartanlega til hamingju með titilinn.  Hún er vel að honum komin.  Minn daglegi bloggrúntur byrjar iðulega á hennar skemmtilega og fjölbreytta bloggi.  Hún hefur sterka réttlætiskennd.  Er óvenju opinská um bæði það sem að henni sjálfri snýr og þjóðfélaginu.  En fyrst og síðast eru færslur hennar bráðskemmtileg lesning.   

Jens Guð, 31.8.2008 kl. 23:58

6 identicon

Heill og sæll; Karl og aðrir skrifarar !

Hygg; að Jenný Anna sé fyllilega vel, að þessum heiðri komin. Hvar hún; af kjarki og þor, margvíslegum, stingur á ýmsum meinsemdarkýlum okkar samfélags, og brýt ég þar í blað, skrif hennar, gagnvart sóðastarfsemi Ásgeirs Davíðssonar, og hans líka, ekki síður en þeim óþverra öllum, sem upp á yfirborð kemst, eða þá grillir í, eftir íslenzk stjórnmála sóðamenni, hverra tala er legionem (óþekkjanleg) skársta og skikkanlegasta fólki.

Ítreka; hamingjuóskir mínar, þessarri heiðurskonu til handa !

Með beztu kveðjum, sem jafnan / úr Árnesþingi

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 01:07

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

"Afsakið meðan ég æli" - "ég kasta mér í vegg" - "súmí"- "kræmíariver" ... Þetta eru ódauðlegir Jennýjarfrasar .. og fleira til. Ekker bíp á hennar slóðum.   Jenný er bæði fyndin og beitt.

"Úje" ...

Til hamingju Jenný Anna

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 1.9.2008 kl. 08:07

8 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jájá, þið segið það.

Verður maður ekki að þakka pent fyrir heiðurinn?

Best ég geri það og það kærlega.

Annars er ég á því að það sé ekki hægt að kjósa um skemmtileg- og leiðinlegheit.  Svo afskaplega persónubundið hugtak.

En ég þakka fyrir mig en ef ég á að vera alveg hreinskilin þá fer ég í rusli yfir svona.

Njótið dagsins og takk Kalli minn.

Úje, súmítúðebón.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.9.2008 kl. 08:15

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hún er ekki minna skemmtileg í eigin persónu þessi kerling, skal ég segja ykkur.

Til hamingju brjálæðingurinn þinn.

Jóna Á. Gísladóttir, 1.9.2008 kl. 09:04

10 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Til hamingju Jenný !

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 1.9.2008 kl. 09:04

11 Smámynd: Karl Tómasson

Já, hún Jenný Anna er sannarlega vel að þessu komin og áttið ykkur á fjölda atkvæða sem hún fékk. Nýlega var gert 600 manna úrtak í einhverri skoðanakönnuninni og vitnað stanslaust í.  Þetta var 2600.

Auðvitað, auðvitað, auðvitað, auðvitað er þetta persónulegt mat hvers og eins sem kýs og eins og Jenný Anna segir á ekki að vera hægt að kjósa um skemmtilegheit og leiðinlegheit.

Þetta er bara gert, það er kosið um besta leikara í aðalhlutverki, bestu skáldsöguna, besta söngvarann, besta lagið, bestu kvikmyndina og svo framvegis. Auðvitað er þetta persónulegt mat, það vita allir.

Í alla staði kusu 545 Jenný Önnu sinn uppáhalds, sinn besta, sinn skemmtilegasta bloggara.

Til hamingju aftur Jenný Anna, þú ert engri lík og ekki efast ég um það sem Jóna Gísla segir hér að ofan.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó. 

Karl Tómasson, 1.9.2008 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband