Leynihátíð

Leyni 1

Leyni 2

Leyni 3

Leyni 5

Leyni 6

Leyni 7

Leyni 8

Leynir 10

Leynir 11

Leynir 12

Leynir 14

Leynir 15

Leynir 16

Leynir 17

Leynir 18

Fátt er skemmtilegra en alvöru útihátíð með brennu, söng og flugeldum í hópi góðra vina. Leynihátíðin stóð undir öllum væntingum og lukkaðist í alla staði frábærlega.

Ég og Hilmari vinur minn ákváðum að bjóða nokkrum vinum og kunningjum á eina slíka á landareign okkar og í bústaðinn okkar Leyni, nærri Laugarvatni.

Rúmlega 40 manns heimsóttu okkur þessa helgi og var trallað og sungið, spjallað og spekúlerað fram á rauða nótt.

Við þökkum öllum sem lögðu leið sína til okkar fyrir stórkostlega skemmtun og munum vafalítið gera þetta aftur að ári.

Myndir: Ruth Örnólfsdóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þarna hefur verið stuð sýnist mér. Frábært. kveðja í Mosó og góða helgi.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.8.2008 kl. 23:33

2 identicon

Það var í alla staði yndislegt að fá að vera Leynigestur hjá ykkur um helgina, þrátt fyrir rigningardemburnar framan af. Þær krydduðu þessa uppákomu skemmtilega - sérstaklega eltingarleikurinn við regnvatnið á plastþakinu sem var svo listilega byggt yfir pallinn, í réttum halla og alles ;o) Það rættist nú heldur betur úr veðrinu þegar leið á kvöldið.

Yndisleg jörð sem þið eigið þarna og það verður gaman að fylgjast með hvernig til tekst með framhaldið, skógrækt og svona.

Takk fyrir mig og mína Kalli og Hilmar okkar, stelpurnar biðja að heilsa,  :o)

Hjördís (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 01:20

3 Smámynd: HP Foss

puff....

HP Foss, 28.8.2008 kl. 10:51

4 Smámynd: HP Foss

Óhugnanlega er sonur þinn orðinn líkur þér! Það sést svo vel á neðstu myndinnim, þar sem Hilmar heldur á honum.

HP Foss, 28.8.2008 kl. 11:06

5 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Í Leyni á ég gamaln vin ?

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 29.8.2008 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband