Hestadella

Bleikur frá Torfunesi.

Bleikur frá Torfunesi

Ekki fæ ég með nokkru móti skilið hvaðan dóttir mín hefur óstöðvandi hestadellu. Ekki það að hestar eins og önnur dýr eru mér alltaf hugleikin. Sú stutta fékk það í gegn að fara á reiðnámskeið og ég veit nákvæmlega hvernig það endar. Auðvitað á því að nú sé ráð að fá sér hest.

Satt að segja hef ég lúmskt gaman af þessu öllu saman, verst er að ég veit að þetta endar með hrossarækt áður en langt um líður.

Allar athugasemdir og ráð eru vel þegin. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Við hjónin vorum mörg á í hestamennsku, fórum meira að segja tveggja vikna hestaferð um hornstrandir, yndislega ferð.  Dóttir okkar fékk þar hrossabakteríuna, hún er núna í dýralæknanámi með hross sem sérgrein, og á ræktunarstöð, þar sem hún er að rækta upp vænleg hross, mest undan Tígli held ég.  Þau áttu held ég hlut í honum.  Hún var líka í fleiri ár á hestabúgarði í Þýskalandi, þegar hún var táningur.  Hún er líka heilbrigður einstaklingur á sál og líkama.  Hross gefa manni mikið.  Yndisleg dýr. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.8.2008 kl. 10:46

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ég hef nú sagt það af og til undanfarð að þegar ég fer að hafa minna að gera ætla ég að fá mér hest !

hestar eru dásamleg dýr, eins og öll önnur dýr. en ég á flest nema hest heheh

knús á þig kæri kalli og gefðu telpunni bara hest !

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 15:40

3 Smámynd: steinimagg

Hross eru ágæt (á bragðið), hvað með gullfiska þeir eru meðfærilegri.

steinimagg, 12.8.2008 kl. 21:49

4 Smámynd: Laugheiður Gunnarsdóttir

hestar eru frábærir en eins og Hallsteinn segir gullfiskar eru meðfærilegri

Laugheiður Gunnarsdóttir, 12.8.2008 kl. 23:03

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

úff. Ég held að ég muni frekar leita ráða hjá þér áður en langt um líður. Dóttir mín er með hestabakteríuna, eða byrjun á henni eftir reiðnámskeið síðustu 3 sumur. Hún er búin að gera plan fram að fermingu varðandi það að leggja fyrir og safna sér fyrir einu stykki hesti.

Ekki það.. ég er afar stolt af henni, ég tala nú ekki um ef henni tekst ætlunarverk sitt. En ég hef mínar efasemdir. þ.e. að hún geri sér grein fyrir vinnunni sem liggur að baki reiðhestaeign.

Kannski endar með því að ég sem við hana um að fresta hestakaupum og nýta frekar hestaræktina ykkar og koma í Mosó til að skella sér á bak

En hún ætlar að verða rithöfundur, dýralæknir og forseti Íslands.

Jóna Á. Gísladóttir, 17.8.2008 kl. 19:05

6 Smámynd: Karl Tómasson

Kæra Jóna, markmið dóttur þinnar eru há og það er gott.

Sjáum hvað setur en þið mæðgur eruð alltaf velkomnar í Mosó og hver veit nema að ég og Birna eigum einhvertíman eftir að bjóða ykkur í reyðtúr.

Eigum við kanski að kaupa hesthús saman?.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 18.8.2008 kl. 00:06

7 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

kæri Karl minn Tómasson

ég er ansi hrædd um að staðsetning hesthússins yrði ágreiningsefni hjá okkur hahaha

Jóna Á. Gísladóttir, 18.8.2008 kl. 01:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband