Síðan eru liðin 20 ár

Huldum 10 ++ copy

Hugarfóstur

Um þessar mundir eru liðin 20 ár frá því að við félagarnir og vinirnir í Gildrunni gáfum út okkar fyrstu plötur. Systurplöturnar tvær, Huldumenn og Hugarfóstur. Þær eru báðar ófáanlegar í dag. Huldumenn kom einungis út á vínil en Hugarfóstur einnig á CD.

Mikið voru þetta skemmtilegir tímar og góður félagsskapur. Vinátta sem risti djúpt og aldrei gleymist á meðal okkar allra sem að Gildrunni komu. 

Vinkona mín Hjördís Kvaran skrifaði ritgerð í HÍ um texta Gildrunnar (Þóris Kristinssonar) og tek ég mér það bersaleifi að birta brot úr henni hér. Textar við lög hljómsveitarinnar vöktu mikla athygli og var talsvert um þá skrifað í fjölmiðlum.

Rjóður og heiðin

Haft eftir Þóri í ritgerð Hjördísar. “Báðar þessar plötur voru algjörlega unnar í Rjóðri og allnokkrir textar Þóris eru samdir um heiðina þeirra og Rjóður. Rjóður var sumarbústaður sem var æfingahúsnæði Gildrunnar á Kjalarnesi uppvið Mosfellsrætur. Þangað var iðulega lagt í miklar svaðilfarir, nánast upp á líf og dauða á hálfaflóga Benz-kálfi sem þeir áttu:

„Þetta var heiði sem við þurftum að fara yfir og þetta var æði skuggalegt að fara á veturna í miklum snjó, kolniðamyrkri og Vimmi1 og Benzinn að þræða veginn eftir minni þegar hafði snjóað. Fyrst þegar menn komu inn í Rjóður þá var svo kalt að við þurftum að kveikja á svona 200 kertum inni til þess að fá hita í kroppinn. Þessi staður er alveg óskaplega fallegur. Þarna vorum við, komnir út úr öllu og ekkert heyrðist og nóttin er svo stjörnubjört og það var svo fallegt þarna. Ég var undir miklum áhrifum frá þessum stað í textagerðinni“(Þórir Kristinsson 2007).

Myndin framan á Huldumönnum, ramminn utan um myndina af Gildrunni, er af hjólförunum á veginum upp eftir og er því bein tilvísun í Rjóður. Þegar í Rjóður var komið tóku við stífar æfingar en stundum var slegið á léttari strengi og fengið sér í glas og haft gaman af lífinu:

„Talandi um góðan anda í Rjóðri. Þegar við komum þarna og vorum að fóðra hagamýsnar á Pripps og sykurmolum, þetta voru drykkfelldustu mýs Íslandssögunnar og þær voru ekki fáar, það var stundum mjög ört á bænum, en það var bara allt í lagi“.(Þórir Kristinsson 2007)

Þarna uppfrá urðu mörg ljóðanna til og fjalla flest um Rjóðrið eða það ævintýri sem það var að komast þarna upp eftir. Villtur og Förumaður af Huldumönnum og Heiðin og að ekki sé talað um Værð af Hugarfóstri eru öll ljóð sem eru samin um þennan stað. Villtur er lýsandi fyrir það sem áður var nefnt, tilfinningin um heiðina á leiðinni upp í Rjóður í alls konar veðri og einstaklega miklum snjó. Heiðin er um það sama – að vera einn og villtur á heiðinni. Það er öllu léttari tónn í ljóðunum Förumaður og Værð. Förumaður er enn og aftur um einhvern á leiðinni yfir heiðina en að þessu sinni er sumar og bjart yfir öllu, lóan er komin.

Sú túlkun sem fólk hefur lagt í lagið Værð, sem er eitt þekktasta lagið af þessum plötum, einkennist af einskonar bricolage, fólk hefur hent það á lofti og gert að sínu enda er það sívinsælt jafnt í brúðkaupum sem jarðarförum. Í textanum segir: Þú söngst í Rjóðri við sólarlag en fólk hefur oftar en ekki álitið stóra r-ið vera prentvillu í textanum. Almennt er álitið að ljóðið sé ástarljóð af klassísku gerðinni en textinn er enn ein persónuleg tilvísun Þóris. Ljóðið er alls ekki klassískt ástarljóð heldur er það samið til Birgis söngvara hljómsveitarinnar og Rjóðurs. Lagið við Værð er eitt elsta lagið sem
1. Vimmi er Vígmundur Pálmarsson rótari og bílstjóri Gildrunnar á þessum árum.

Birgir hefur samið og hann hafði samið við það texta þar sem hin fallega lína: um ástir og eilífan dans kemur fyrir. Þórir hélt þessari línu inni þegar hann samdi nýjan texta og úr varð þessi fallega ballaða. Í ljóðinu er annað persónulegt djók Þóris þar sem kemur hendingin í húminu // værðist vindurinn og margir hafa álitið vera prentvillu í textabókinni en er það ekki, þetta á að vera svona og Birgir syngur alltaf værðist.

Lokaorð

Þegar litið er til baka yfir farinn veg er augljóst að lögin á Huldumönnum og Hugarfóstri hafa elst mjög vel. Þegar platan Huldumenn kemur út er hún á skjön við vel flest það sem var að gerast, og það er kannski þess vegna sem að hún lifir svona góðu lífi í dag, hún var eitthvað nýtt, ósvikið. Enn í dag er hún sívinsæl og hefur ekki misst þann ósvikna tón sem hún vakti svo mikla athygli fyrir í upphafi.

Það vita allir hver Gildran er þó ekki hafi farið mikið fyrir henni í gegnum tíðina á vinsældarlistum. Í dag er hljómsveitin orðin hálfgert költ og nýtur t.d. mikillar virðingar hjá ungum bílskúrsböndum sem eru að reyna fyrir sér í dag. Hún er virt sem einn af hornsteinum íslenskrar alþýðumenningar og -tónlistar. Gildran þykir töff hljómsveit í dag.
Huldumenn var mikil tímamótaplata og henni var vel fylgt eftir af Hugarfóstri. Plöturnar eru systur þar sem þær eru unnar mjög náið og á mjög skömmum tíma. Saman mynda þær því sterka heild.

Mærin

Meyjan hrein
Sér þú til mín
Alltaf ein
Bænin ein
Ber mig til þín
Meyjan hrein

Faðir vor
Sér þú til mín
Engin orð
Himna storð
Tak mig til þín
Faðir vor

Bregður birtu
Mærin sofnar
Dofnar dagur burtu
Daufri varpar glóð

Kristur kær
Kom þú til mín
Himni nær
Hatri fjær
Tak mig til þín
Kristur kær.

Vorbragur

Vaknar allt á vorin
Vermir sólin landið
Grænu laufin borin
Brotið verður bandið

Blíður syngur blærinn
Brosir gulli sólin
Vaknar aftur bærinn
Börnin vantar í bólin

Opin Laugarvegur
Iðar Austurstræti
Digur andann dregur
Dúfa í heiðursæti

Fuglum iðar tjörnin
Fegra loftið sönginn
Brauði kasta börnin
Dapur er nú enginn

Situr bakvið sundin
Esjan undur fríða
Léttist aftur lundin
Dýrðar dagar líða.

Værð

Þú komst með vorið
um vetrarnótt
og vaktir huga minn
í húminu
værðist vindurinn
hann himneskan
heyrði sönginn þinn

Um ástir og eilífan dans

Þú söngst í Rjóðri
um sólarlag
og fluttir sálminn þinn
í kyrrðinni
kvaddi helkuldinn
hann heilagan
kveikti neistann minn

Um ástir og eilífan dans

Þú varst með völdin
um vetrarnótt
og sýndir styrkinn þinn
á heiðinni
heyrðist hljómurinn
hann háfleygan
hreyfði drauminn minn

Um ástir og eilífan dans.

Svarta blómið

Þekkirðu myrkrið þunga
Þagnarinnar sjávarnið
Næturskugga dauðans drunga
Drottins djúpu harmamið

Sorgin ein
Ég sit og bíð
Komir þú
Og gef mér frið
Vonin ein
Gefur grið

Sárt það er að syrgja
Þá sálin vætist blóði
Sorgina inni að byrgja
Brotna tára flóði

Hugann fyllir haustið
Horfin út í tómið
Birtan bak við brjóstið
Blómstrar svarta blómið. 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: gudni.is

Þetta er algjör snilld Kalli. Tíminn flýgur. Ég man svo vel eftir ykkur í Gildrunni á byrjunarárunum. Þá var ég náttúrulega bara krakki og unglingur í Mosó, en stóra systir mín stóð ennþá nær þessu hjá ykkur þar sem hún er nær ykkur í aldri (1968 árgerð).

gudni.is, 13.7.2008 kl. 22:27

2 Smámynd: Karl Tómasson

Heill og sæll Guðni og enn og aftur takk fyrir síðast og sérstaklega góð viðkynni. Það er skondið og gaman að fá þig hér núna, ég var rétt í þessu að skoða síðuna þína og lesa um ferðalag þitt og Jóns Sverris.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 13.7.2008 kl. 22:41

3 Smámynd: gudni.is

Já takk sömuleiðis Kalli fyrir síðast. Hehe, já svona er þetta stundum. Við Jón Sverrir erum duglegir að fljúga á skemmtilega og afskekta staði okkur til gamans

Enn og aftur,, ekki hika við það Kalli láta heyra frá þér ef þig langar í fleiri flugferðir. Það er ekkert nema sjálfsagt.

Mosókveðja - Guðni

gudni.is, 13.7.2008 kl. 22:49

4 Smámynd: HP Foss

Ég var nú alltaf meira fyrir Síðan Skein Sól.

HP Foss, 13.7.2008 kl. 23:24

5 identicon

Langflottastir, er ekki komið að því að fylla Höllina?

kveðja

Guðbjörg Erlingsdóttir (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 23:30

6 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Ég átti einhverntíman Hugarfóstur en hún er týnd í dag því miður. Það væri þjóðráð að gefa þessar plötur aftur út saman. Ég mundi kaupa hana

Kristján Kristjánsson, 13.7.2008 kl. 23:31

7 Smámynd: Karl Tómasson

Helgi, maður segir að manni líki sólin betur.

Alltaf jafn gaman að sjá og fá gömlu bekkjarsystur mína í heimsókn. Guðbjörg þótti nú alltaf frekar spennandi kvenkostur hjá okkur strákunum í Varmárskóla.

Ágæti Kristján ég leit við þér áðan og sá að þú fórst á tónleika með Iron Maden. Sú hugmynd hefur komið upp hjá okkur Gildrufélögum að gefa út saman Huldumenn og Hugarfóstur á CD.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.

Karl Tómasson, 14.7.2008 kl. 00:21

8 Smámynd: Kristján Kristjánsson

Vonandi verður úr þeirri útgáfu.

Ég var í góðum félagsskap frænda þíns Þráins Árna og Aðalsteins sveitastjórnarmanni úr Norðurþingi á Iron Maiden í London.

Sá í sömu ferð hörkutónleika með Brian Wilson og tónleikahátíð með Morrissey, Beck, New York Dolls o.fl. 

Mjög gaman.

Kristján Kristjánsson, 14.7.2008 kl. 00:58

9 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Mærin er eitt flottasta lag sem hérlend hljómsveir hefur sent frá sér. Fer ekki ofan af því. Ef ég ætti góðar græjur, spilaði ég þetta á hættulegu desibeli, en þar sem engar eru græjurnar sem stendur, reyni ég bara að muna hvað þetta er flott lag og texti. Það virkar furðuvel.

Halldór Egill Guðnason, 14.7.2008 kl. 00:59

10 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Það var eins og gerst hefði í gær

Til lukku með þetta

Reyndar safnar rafvirkinn minn vinylplötum og enn því miður hefur honum ekki áskotnast Gildran í safnið sitt, en ég veit af þeim hjá Bóbó bróðir fyrir norðan, hann er sennilega aðdáandi #1

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 14.7.2008 kl. 09:45

11 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég kaupi 3 eintök :)  eitt fyrir mig og hin tvö fyrir strákana mína.  

Óskar Þorkelsson, 14.7.2008 kl. 12:25

12 Smámynd: Þráinn Árni Baldvinsson

Þessar plötur eru báðar alveg frábærar.

Ég styð cd-útgáfu á Huldumönnum, á Hugarfóstur á cd!

...reyndar á ég ,,Huldumenn´´ á vinyl, áritaða að auki!!!

Þráinn Árni Baldvinsson, 14.7.2008 kl. 15:04

13 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Snilld

Jónína Dúadóttir, 14.7.2008 kl. 22:23

14 Smámynd: HP Foss

 Ertu ein á báti beib
þú brosir frekar dauf
glasið tómar tóftir
og glóðin löngu dauð

Hreyfðu þig í takt við bítið
sem sveitin töfrar fram
endalausir langir leggir
elskan þú ert namm

Komdu aðeins nær mér
saman tökum djamm
Þú bragðast eins og konfekt
elskan þú ert namm

Langar þig í gelluglingur
ég redda því með stæl
og runna af rauðum rósum
ég sendi þér um hæl

Ég var fæddur svalur gaur
og píur eins og þú
vef ég létt um fingur mér
mmm hana nú

Komdu aðeins nær mér
saman tökum djamm
Þú bragðast eins og konfekt
elskan þú ert namm

Já, Greifarnir voru með góða texta og hefðu kannski Gildrumenn átt að leita í þeirra smiðju, og öðlast með því lágmarks virðingu.
Fyrir framan mig
Fyrir aftan mig
Fyrir ofan mig
og allt í kringum mig

Svalur er ekki svalur nema svallt sé cool
Beib verður alltaf beib nema hún sé megabeib
Þú ert ekki ég nema ég sé þú
Hættu nú þessu kjaftæði og komdu nú

Komdu aðeins nær mér
saman tökum djamm
Þú bragðast eins og konfekt
elskan þú ert namm
elskan þú ert namm

Ég set það sem mitt skilyrði
að þú gefir mér þitt vilyrði
um að eyða með mér ævinni
svo sjáum við til, svo sjáum við til

Komdu aðeins nær mér
saman tökum djamm
Þú bragðast eins og konfekt
elskan þú ert namm
elskan þú ert namm

 

HP Foss, 15.7.2008 kl. 10:33

15 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að þessari upprifjun.  Ég man einna best eftir "Svífur yfir Esjuna í boði Gildrunnar, er það ekki rétt hjá mér.  Útsetningin var glannaleg fannst manni fyrst, en maður gleymir þessu ekki, það er málið.  Get ennþá heyrt sönginn  fyrir mér

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.7.2008 kl. 12:08

16 Smámynd: steinimagg

Lögin, textarnir, Rjóður og allt er bara ein snilli og gleymist ekki 

steinimagg, 15.7.2008 kl. 12:57

17 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Fyrir hvern er best að leggja gildru til að ná sér í eintak?

Gildran hljómaði mikið vel og lengi í denn á Hljóðbylgjunni FM 101,8 á Akureyri, sem einmitt var upp á sitt besta fyrir tuttugu árum, hvort það hafi verið Gildrunni að þakka skal ósagt látið.  En undirritaður hafði mjög gaman að.

Kjartan Pálmarsson, 15.7.2008 kl. 18:07

18 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ósköp er þetta huggulegt, bæði texstinn og kommentinn.

til hamingju kæri kalli minn með 20 árin. hann guðni minn már hefur alveg gleymt að kynna mig fyrir þessari músík, en hann hefur matað mig alla tíð á því hvað sé best fyrir mig, og ég trúi honum oftast !!! 

kærleikur

steina 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 15.7.2008 kl. 20:48

19 Smámynd: steinimagg

http://aogo.blogcentral.is/sida/2312465/

steinimagg, 15.7.2008 kl. 23:32

20 Smámynd: Guðmundur St. Valdimarsson

Eitthvað kannast maður nú við Rjóðrið og heiðina. Var einn af þeim sem var svo heppinn að fá að kinnast staðnum persónulega. Indislegur staður. Eru komin 20 ár síðan ? Ekki finnst manni nú svo langt síðan þetta var, eða kannski. Þessi tónlist hefur lifað með mér öll þessi ár, og gerir það enn. Ég væri alveg til í endurkomu í tilefni af þessum 20 árum. Sagt er að hörðustu rokkarar hafi fellt tár í kvosini á afmælinu þínu, (snemma á þessari öld) þegar þið tókuð þar nokkur lög saman, bara þið þrír. Ég hinns vegar fékk sandkorn í augað. Minningarnar lifa með manni um ókomna tíð. Tíðarandinn, félagskapurinn, Íbrið, (Á ekki að Íbra), Jón fúli, Lúftgitar austan heiða ofl. Kvöldin á Dus, Fógetanum, Fimmuni ofl stöðum, vá maður hafði tíma fyrir þetta allt. Akureyrarferðirnar, næturnar á eftir í Dalakofanum. Einnig er vert að minnast á alla sem að þessu komu á einn eða annan hátt, rótarar, hljóðmenn, samheldnum fjölskyldum, aðstandendum og öðrum velunnurum. Gildran til hamingju með árin 20, Einnig með það að vera orðnir verkefni nemanda Háskóla Íslands. Má kannski sega að Gildran sé orðið Akademíst band ? Þá fer nú að styttast í Fálkaorður.

Guðmundur St. Valdimarsson, 15.7.2008 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband