fös. 30.5.2008
Sveitin og heita vatnið
Á laugardaginn fer fram vígsla á nýgerðu torgi við Þverholt, auk vígslu á útilistaverki eftir Kristin E. Hrafnsson og fræðsluskiltum við hitaveitustokk.
Dagskrá Vígsluhátíðar:
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur.
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar Haraldur Sverrisson vígir hið nýja torg við Þverholt.
Karlakórinn Stefnir undir stjórn Gunnars Ben.
Formaður afmælisnefndar Samorku, Guðmundur Davíðsson og forseti bæjarstjórnar, Karl Tómasson vígja hið nýja útilistaverk, sem ber heitið HUNDRAÐÞÚSUNDMILJÓN TONN AF SJÓÐHEITU VATNI. og er eftir Kristin E Hrafnsson.
Fulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur, Kjartan Magnússon, vígir nýtt fræðsluskilti við hitaveitustokk sem enn stendur við enda torgsins.
Að lokum leikur Orkusveitin kvintett Reynis Sigurðssonar.
Kynnir er Helgi Pétursson, fulltrúi OR.
Að vígslu lokinni verður boðið upp á gönguferð fyrir þá sem það vilja á vegum Sögufélags Kjalarnesþings og Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar (UNM) í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur. Um er að ræða fræðslugöngu með leiðsögn sem ber heitið Sveitin og heita vatnið. Gengið verður frá Kjarna, upp með Varmá og að Reykjum og meðal annars áð í Dælustöðinni á Reykjum. Bjarki Bjarnason er leiðsögumaður í ferðinni.
Tilefni hátíðarhaldanna er 100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi árið 2008, en þar er miðað við frumkvöðulsstarf Stefáns B. Jónssonar á Suður-Reykjum í Mosfellssveit árið 1908. Ennfremur fagnaði Mosfellsbær 20 ára afmæli árið 2007 og ákvað bæjarstjórn af því tilefni að standa að gerð útilistaverks í bænum.
Útilistaverkið er hringur, sex metrar að þvermáli. Undir verkinu er rennandi heitt vatn sem myndar gufu upp úr 22 áletruðum grindum úr sögu hitaveitu og Mosfellsbæjar. Í miðju verksins er ljósastaur sem lýsir upp hringinn, gufuna og gróðurinn í kring. Í ályktun dómnefndar segir m.a.: Hugmyndafræðilegur bakgrunnur nær á skemmtilegan hátt að samtvinna sögu Mosfellsbæjar og sögu hitaveitunnar. Góð tenging er því bæði við söguna, umhverfið og heita vatnið. Gerð verksins varð samstarfsverkefni SAMORKU og Mosfellsbæjar.
Athugasemdir
til hamingju með þetta kæri kalli..
knús s
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 31.5.2008 kl. 15:37
Til hamingju mosfellingar alltaf að fegra bæinn. Það sem mér finnst nú fyndnast er að þegar gömlu skólafélagarnir eru komnir í bæjarstjórn,ætli það sé ekki best að viðurkenna að maður er ekki lengur skólakrakki og fara að fullorðnast.hihi . En þetta er flott hjá ykkur kær kveðja að norðan
Laugheiður Gunnarsdóttir, 1.6.2008 kl. 11:47
Til hamingju með þetta.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.6.2008 kl. 21:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.