Glímugen

GlímaSmá upprifjun um glímuna, ţví nú er litli frćndi og nafni Péturs glímukóngs Eyţórssonar búinn ađ ná af frćnda Grettisbeltinu. Glímukóngur Íslands ţetta áriđ er Pétur Ţórir Gunnarsson. Ţeir frćndur og nafnar eru systkinabörn. Ţau eru skemmtileg ţessi glímugen.

Glíman er mögnuđ íţrótt og í raun ótrúlega flott ţegar mađur setur sig inn í hana. Einu sinni fór ég á glímućfingar í kjallaranum í Brúarlandi en ţrátt fyrir fjöldann allan af áhugasömum glímumönnum í Mosfellsbć í ţá daga var aldrei stofnuđ glímudeild hjá Aftureldingu, ekki frekar en hjá svo mörgum öđrum íţróttafélögum. Mikiđ vćri gaman ef ţessi ţjóđaríţrótt fengi veglegri sess.

Grettisbeltiđ er merkasti og sögufrćgasti gripur í gjörvallri íţróttasögu Íslands og einnig sá elsti. Hefur ţađ veriđ farandgripur allt frá upphafi og vinnst aldrei til eignar. Sama ólin fylgir beltinu og var á ţví upphaflega. Grettisbeltiđ var smíđađ í Reykjavík af Erlendi gullsmiđ Magnússyni. Ţađ er úr silfri og er mynstur ţess mjög skrautlegt. Ađ framan er á ţví kringlóttur skjöldur međ andlitsmynd er á ađ tákna Gretti fornkappa Ásmundarson er var fangbragđakappi mikill eftir ţví sem saga hans segir. Umhverfis skjöldinn er letrađ höfđaletri: "Glímuverđlaun Íslands, Grettir." (tilvitnun: Glímusamband Íslands)

Úr Mývatnssveitinni hafa margir frćknustu glímukappar landsins komiđ. Hver man ekki eftir tvíburabrćđrunum Pétri og Inga Ţór Yngvasonum frá Skútustöđum? Ingi Ţór hlaut Grettisbeltiđ fjórum sinnum og Pétur fimm sinnum. Minn mađur í glímunni var Eyţór Pétursson frá Baldursheimi, ţađ er augljós ástćđa fyrir ţví hjá mér. Ég var í sveit hjá honum í nokkur sumur, ţađ var skemmtilegur tími. Eyţór var af mörgum talinn hafa óhemju fallegan líkamsburđ í glímunni. Eyţór hlaut Grettisbeltiđ tvisvar sinnum. Nú er strákurinn hans, Pétur, búinn ađ slá pabba gamla út ţví hann varđ Grettisbeltishafi í ţríđja sinn nú á dögunum. Hvađ ćtli pabbi gamli segi viđ ţví?

Međal frćknustu glímukappa á árum áđur má nefna Sigurjón Pétursson frá Álafossi. Hann varđ Grettisbeltishafi fjórum sinnum á árunum 1910-1913. Ömmubróđir Hjalta Úrsusar Árnasonar, Sigurđur Greipsson frá Biskupstungum í Haukadal, hlaut beltiđ fimm sinnum á árunum 1922-1926 en enginn hefur en slegiđ Ármann J Lárusson út, hann hlaut Grettisbeltiđ hvorki meira né minna en fimmtán sinnum á árunum 1952-1967. Ţađ er ótrúlegt afrek.

  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Takk kćrlega fyrir frćđslumolann.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.4.2008 kl. 06:02

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Glíma er glćsileg íţrótt. 

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 1.4.2008 kl. 13:14

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Skemmtileg og ţjóđleg frćđsla. Ţakkir.

Međ kveđju, Baldur F.

Baldur Fjölnisson, 1.4.2008 kl. 21:04

4 Smámynd: Jón Birgir Valsson

Sem glímumađur ţá ţakka ég ţér Karl fyrir ţessa fćrslu og hlý orđ í garđ glímunnar.

Ekki vissi ég ađ glíma hefđi veriđ stunduđ í Mosfellsbć á árum áđur. Nema ţá ef vera skildi ađ Sigurjón sem kenndur er viđ Álafoss hafi stađiđ ađ einhverjum glímućfingum í Álafosskvosinni ţegar hann var upp á sitt besta. En gaman ađ heyra af ţessu. Hver var glímukennari ţinn á ţessum tíma Karl?.

Já Mývetningar hafa aliđ af sér margan góđan glímumanninn. Nú eru ţeir orđnir fimm Glímukóngarnir ţađan. Svo ber ađ nefna ţćr Glímudrottningar frá Mývatni sem hafa unniđ Freyjumeniđ ţćr Inga Gerđa Pétursdóttir Yngvasonar 2000 og 2002 og Hildigunnur Káradóttir í Garđi 2001. Ţarna koma glímugenin aftur viđ sögu a.m.k. hjá Ingu Gerđu sem ekki bara varđ glímudrottning heldur líka fegurđardrottning Norđurlands 2003.

Jón Birgir Valsson, 2.4.2008 kl. 13:17

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband