mið. 20.2.2008
Eftir höfðinu dansa limirnir
Hinn bráðskemmtilegi og góðlegi ráðherra, Össur Skarphéðinsson hefur sætt talsverðri gagnrýni í dag vegna bloggfærslu sem hann setti inn hjá sér síðustu nótt. Össur er eins og margir aðrir ágætir bloggarar, næturbloggari. Ekki ætla ég að leggja mat mitt á hvort karlinn sötri á einhverju á meðan skrifin eiga sér stað eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum, enda nokk sama um.
Vegna umræddrar bloggfærslu hefur hann verið gagnrýndur fyrir að hafa veist harkalega að borgarfulltrúanum Gísla Marteini Baldurssyni. Ég get tekið undir það að uppskrúfaður texti ráðherrans að þessu sinni og orðaflaumur í garð Gísla í bloggfærslunni var á köflum hálf ómögulegur og hjákátlegur.
Nú velti ég því fyrir mér, þar sem ég hef fengið minn skammt frá ráðherranum á bloggsíðu hans og samflokks fólki hans, hvort innan raða Samfylkingarinnar þyki það bara gott og flott að bitrir og hálf skúffaðir flokksmenn og pennar reyni að láta ljós sitt skína á aumkunnarverðan hátt gagnvart mönnum og málefnum. Pennar þar sem blekinu er leyft að flæða út án nokkurs tillits til hvort skrifað er um manneskjur eða máva á tjörninni í Reykjavík?
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó.
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:45 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur

Efni
Tenglar
Mínar síður
- Mosfellsbær Heimasíða Mosfellsbæjar
- Mosfellingur Bæjarblaðið Mosfellingur
- Vinstri Græn Vinstri hreyfingin - grænt framboð
Bloggvinir
-
Hulda Bergrós Stefánsdóttir
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Áslaug Helga Hálfdánardóttir
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Bjarni Bragi Kjartansson
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Benedikt Halldórsson
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Brynjólfur Þorvarðsson
-
Hrannar Baldursson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Viðar Eggertsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Elín Katrín Rúnarsdóttir.
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eyþór Árnason
-
Fjarki
-
Baldur Fjölnisson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
gudni.is
-
Guðmundur H. Bragason
-
Guðmundur Rafnkell Gíslason
-
Gústav J. Daníelsson
-
Haukur Nikulásson
-
Heimskyr
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Kaleb Joshua
-
Sigga Hjólína
-
Hlynur Hallsson
-
HP Foss
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakob Smári Magnússon
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
JEA
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Jóhann Kristjánsson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Bergur Thorberg
-
Þorkell L. Þorkelsson
-
Pétur Björgvin
-
Kristján Kristjánsson
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Valdemarsson
-
Guðjón H Finnbogason
-
Laugheiður Gunnarsdóttir
-
Linda Samsonar Gísladóttir
-
Helga Sveinsdóttir
-
Magnús Már Byron Haraldsson
-
Alfreð Símonarson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Markús frá Djúpalæk
-
Þráinn Árni Baldvinsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Mummi Guð
-
Myndlistarfélagið
-
Jón Svavarsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Paul Nikolov
-
Vilborg
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Huld S. Ringsted
-
Rósa Harðardóttir
-
Rúnar Birgir Gíslason
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Gammur drils
-
Matti sax
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Óskar V Kristjánsson
-
Guðmundur St. Valdimarsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Gunnar Ólafur Kristleifsson
-
Sóley Valdimarsdóttir
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Sverrir Stormsker
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sverrir Þorleifsson
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Þrúður Finnbogadóttir
-
TómasHa
-
Halldór Egill Guðnason
-
Úrsúla Jünemann
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Guðfríður Lilja
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Aðalheiður Haraldsdóttir
-
Auðunn Hilmarsson
-
Ásbjörg Ísabella Magnúsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Haraldsdóttir
-
Bwahahaha...
-
Dunni
-
Elísabet Sigmarsdóttir
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Gulli litli
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Halldór Baldursson
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
hilmar jónsson
-
Högni Snær Hauksson
-
Jack Daniel's
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhann Pétur
-
kreppukallinn
-
Leikhópurinn Lotta
-
Linda litla
-
Ólafur Th Skúlason
-
Páll Rúnar Elíson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
steinimagg
-
Sveinn Arnar Sæmundsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Þórður Björn Sigurðsson
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
puhaa, ekki gaman, vonandi hefur hann ekki verið í glasi, því þá er bömmerinn meiri, en ef hann hefur verið allsgáður.
Bless inn í kvöldið !
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 21:34
HVAÐ???!!!! Eru ráðherrar manneskjur???
+
= 
Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.2.2008 kl. 21:54
Jamm Össur og blekið...þú varst líka annars staðar á blogginu kæri vin.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 22:24
Ég ráðlegg þér að meta það hvort vinir þínir "flokksmenn og pennar reyni að láta ljós sitt skína á aumkunnarverðan hátt gagnvart mönnum og málefnum". Nú á að bæta Ólafi Ragnarssyni frá Hvarfi á aftökulistann. Hann studdi þín viðhorf um tengibraut allan síðasta vetur en vill ekki láta þriggja metra malbik flæða út á bakka Varmár. Þá er hann um leið orðinn ómerkilegur og með persónulegar árásir í þinn garð.
Varðkona þín og flokksfélagi Hjördís Kvaran fer mikinn á síðu sinni gagnvart mér og stjórnarkonum í Varmársamtökunum. Í raun ætti að fara í meiðyrðamál gagnvart svona rætni, en skrifin eru það aumkunarverð að það er ekki þess virði. En þú hefur alltaf lagt blessun þína yfir það rugl og ósóma sem hún lætur frá sér. Eftir höfðinu dansa limirnir. Enn og aftur auðveldara að kenna heilræðin en halda þau.
Gunnlaugur B Ólafsson, 21.2.2008 kl. 09:29
Satt er það Gunnlaugur, hún fer mikinn, en hún gerir það undir eigin nafni. Það er ekki hægt að segja það um alla, undarlegt er það hve "Valdi Sturlaugs" er fljótur til svars fyrir þig og þína, hann hefur farið offari í ótrúlegu skítkasti, hæðni og niðurlægingu, svo mánuðum skiptir,í garð Hjördísar og okkar hinna sem höfum vogað okkur að standa við bakið á forseta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, Karls tómassona.
Ég ráðlegg þér að setja þig í samband við þessa sorapenna og aula sem að þeirri síðu standa, viljir þú standa vörð um réttlæti í bloggheimum og fáðu "hann" til að loka síðu sinni.
Ég hef hinsvegar tekið eftir því að þér verður ekki ráðlagt.
Kveðja- Helgi
HP Foss, 21.2.2008 kl. 13:01
Hjödda mín, nú er kominn tími til að róa sig aðeins.... halda húmornum gangandi. Mér er alveg slétt sama hvar og við hvern þú vilt kenna mig... mér er ekki illa við menn, bara vond málefni.
Þú sérð eflaust einhverskonar samsæri í gangi gagnvart þér og Kalla en ég get fullvissað þig um að svo er ekki.... við Gunnlaugur höfum ekki talast við utan rökræðna á blogginu í fyrra síðan í lónsöræfum fyrir mörgum árum síðan þegar Hansý frænka mín var landvörður þar og Gunnlaugur kom með hóp sem hann var að með í leiðsögn.... þá var hann bara hress og skemmtilegur.... við Gunnlaugur höfum tekist á um málefni og ekkert nema gott um það að segja, voru vingjarnleg en beitt og á öndverðum meiði.
Þá vorum við ósammála ég og Gunnlaugur, en núna vill svo til að við erum sammála... engin trúarbrögð í því bara skoðun á hvernig maður upplifir umhverfismál.
Þú mátt nú til með að viðurkenna að með blogginu á síðunni þinni gefur þú slíkt færi á þér að maður bara stenst ekki mátið að rugla soldið í þér... bara svo skelfilega fyndið :)
En aftur að umhverfismálum..... ég gat persónulega ekki fundið önnur rök í tengibrautarmálinu önnur en að sú lausn sem farin er er sú illskásta í stöðunni... en ekki endilega umhverfislega aðlaðandi. Hvað varðar hinsvegar bakka Varmár þá hef ég þá skoðun að eftirsóknarvert sé að vernda þá eftir fremsta megni og að halda þeim eins óhreyfðum og völ er á.... það er allt í lagi að malbika stíga en ekki hvar sem er. Það er ekki að ástæðulausu sem að bakkar Varmár hafa verið skilgreindir sem verndarsvæði... og það er að mínu mati eftirsóknarvert að halda göngustígum meðfram ánni sem náttúrulegustum ef völ er á.. og við höfum val... eða hvað ?
Jú og Össur... frábær penni og skemmtikraftur... lífið væri litlausara án hans.
Óli í Hvarfi
Ólafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 16:50
Helgi, ég hef nú kennt þér, held ég, að tempra þig aðeins í skrifum beint til mín, en ég hef aldrei verið ódrengilegur í þinn garð. Eftir að þú nefndir síðu Valda þá fór ég þar inn og sé að þú telur þig hafa þar frjálsar heimildir til að hrauna eitthvað í minn garð. Það er vonandi að þér líði eitthvað betur eða finnist þú hafa orðið að gagni eftir slíkt. Veit ekki hvort þú trúir því, en það er þó staðreynd, að ég hef ekki hugmynd um hver Valdi Sturlaugz er.
Gunnlaugur B Ólafsson, 21.2.2008 kl. 17:11
Ég fór og kíkti á þessa margumtöluðu Valda síðu og fann þar fulla kistu af kímni... allavega hló ég dátt af kommentum frá hinum og þessum (fabrikeruðu) týpum....´ mér sýnist þetta vera einskonar spéspegill af þeim umræðum sem hér fara fram.... allavega ekki neitt til að taka nærri sér miðað við það sem ég hef séð.
Ólafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 18:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.