Mikill gleðidagur í Mosfellsbæ

undirskrift

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum, var í dag skrifað undir samning um byggingu framhaldsskóla í Mosfellsbæ. Þetta var mikill gleðidagur fyrir okkur Mosfellinga.

Á myndinni má sjá í aftari röð frá vinstri, Hafstein Pálsson, formann íþrótta- og tómstundarnefndar, Hönnu Bjartmars, bæjarfulltrúa Samfylkingar, Herdísi Sigurjónsdóttur, formann bæjarráðs og fræðslunefndar,  og Martein Magnússon bæjarfulltrúa Framsóknar. Í þeirri fremri, Harald Sverrisson bæjarstjóra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra og Karl Tómasson forseta bæjarstjórnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlynur Hallsson

Til lukku með samninginn. Og til lukku Jón Bjarna! Bestu kveðjur,

Hlynur Hallsson, 19.2.2008 kl. 22:20

2 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

til hamingju með þetta !

Fallegan Miðvikudag til þín og Bless í bili

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 20.2.2008 kl. 07:27

3 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Til hamingju með þennan áfanga að nýjum framhaldsskóla.

Verður hann ekki kallaður FM (EFF EMM)

Kjartan Pálmarsson, 20.2.2008 kl. 09:08

4 identicon

Til hamingju með þetta.

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 09:24

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Til hamingju með þetta

Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.2.2008 kl. 10:30

6 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Við Mosfellingar stöndum í þakkarskuld við Jón Bjarnason þingmann Vinstri grænna fyrir að leggja fram fyrirspurnir og þingsályktanir á þingi árum saman um framhaldsskóla í Mosfellsbæ.

Þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks ákvað á sínum tíma að leggja 25% af stofnkostnaði í Borgarholtsskóla hefði því mikla fé betur verið varið í framhaldsskóla í okkar eigin sveitarfélagi. En svona var pólitíkin í þá daga. Það voru mikil og afdrifarík mistök sem seinkaði verulega stofnun framhaldsskóla í Mosfellsbæ. En þarna má sjá að þingmenn VG hafa ætíð fylgst vel með hvar þarf að taka til hendinni. Hafi Jón Bjarnason mikla þökk fyrir það góða starf sem varð tilefni að við Mosfellingar fáum loksins okkar eigin framhaldsskóla og unglingarnir okkar þurfi ekki að fara í önnur sveitarfélög í framhaldsnám.

Til hamingju allir sveitungar fjær og nær!

Mosi - alias

Guðjón Sigþór Jensson, 20.2.2008 kl. 11:37

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Til lukku með þennan áfanga.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2008 kl. 19:26

8 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Til hamingju Mosó  

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 20.2.2008 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband