sun. 17.2.2008
Fatlaðir fá aldrei aðgang að Gullfossi
Stundum hreinlega missir maður málið af undrun. Ég var að lesa bloggfærslu varaformanns Varmársamtakanna þar sem hann gerir athugasemdir við væntanlega göngustíga í kringum hið nýja Helgafellshverfi. Nú er það ekki einungis tengibrautin, heldur einnig göngustígarnir.
Í Helgafellshverfi er verið að að vinna að gatna- og göngustígagerð og að sjálfsögðu er gert ráð fyrir að allir eigi þess kost að njóta umhverfisins með góðu móti, bæði fólk sem getur gengið og er bundið hjólastól. Varaformaður Varmársamtakanna Gunnlaugur B Ólafsson gerir á heimasíðu sinni athugasemdir við að göngustígarnir verði malbikaðir, hann segir að eðlilegra og umhverfisvænna sé að hafa þá stráða trjákurli eða möl.
Við þessa færslu Gunnlaugs hafa komið athugasemdir og einni þeirra svaraði hann orðrétt " Helgi, þetta er góð athugasemd. Ég held að hún haldi samt ekki. Við myndum aldrei gera breiðan malbikaðan stíg meðfram Gullfossi til að tryggja aðgengi fatlaðra"
Nú spyr ég, á ekki umhverfið að vera fyrir alla? Hvað er það að vera umhverfisvænn?
Karl Tómasson.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur

Efni
Tenglar
Mínar síður
- Mosfellsbær Heimasíða Mosfellsbæjar
- Mosfellingur Bæjarblaðið Mosfellingur
- Vinstri Græn Vinstri hreyfingin - grænt framboð
Bloggvinir
-
Hulda Bergrós Stefánsdóttir
-
Alma Guðmundsdóttir og Freyja Haraldsdóttir
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Áslaug Helga Hálfdánardóttir
-
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Bjarni Bragi Kjartansson
-
Bergþóra Jónsdóttir
-
Benedikt Halldórsson
-
Brynjar Hólm Bjarnason
-
Brynjólfur Þorvarðsson
-
Hrannar Baldursson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Viðar Eggertsson
-
Eiríkur Bergmann Einarsson
-
Elín Katrín Rúnarsdóttir.
-
Einar Sveinbjörnsson
-
Eyþór Árnason
-
Fjarki
-
Baldur Fjölnisson
-
Gísli Bergsveinn Ívarsson
-
gudni.is
-
Guðmundur H. Bragason
-
Guðmundur Rafnkell Gíslason
-
Gústav J. Daníelsson
-
Haukur Nikulásson
-
Heimskyr
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Kaleb Joshua
-
Sigga Hjólína
-
Hlynur Hallsson
-
HP Foss
-
Hvíti Riddarinn
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Ingvar Valgeirsson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jakob Smári Magnússon
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
JEA
-
Jenný Anna Baldursdóttir
-
Jens Guð
-
Jóhann Kristjánsson
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Gudrún Hauksdótttir
-
Bergur Thorberg
-
Þorkell L. Þorkelsson
-
Pétur Björgvin
-
Kristján Kristjánsson
-
Kjartan Pálmarsson
-
Kjartan Valdemarsson
-
Guðjón H Finnbogason
-
Laugheiður Gunnarsdóttir
-
Linda Samsonar Gísladóttir
-
Helga Sveinsdóttir
-
Magnús Már Byron Haraldsson
-
Alfreð Símonarson
-
Hlynur Þór Magnússon
-
Markús frá Djúpalæk
-
Þráinn Árni Baldvinsson
-
Guðjón Sigþór Jensson
-
Mummi Guð
-
Myndlistarfélagið
-
Jón Svavarsson
-
Pálmi Gunnarsson
-
Paul Nikolov
-
Vilborg
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Ragnar L Benediktsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Huld S. Ringsted
-
Rósa Harðardóttir
-
Rúnar Birgir Gíslason
-
Sædís Ósk Harðardóttir
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Gammur drils
-
Matti sax
-
Sigurjón Sigurðsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Óskar V Kristjánsson
-
Guðmundur St. Valdimarsson
-
Halldór Sigurðsson
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Gunnar Ólafur Kristleifsson
-
Sóley Valdimarsdóttir
-
Steinunn Helga Sigurðardóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Sverrir Stormsker
-
Sveinn Ingi Lýðsson
-
Sverrir Þorleifsson
-
Þóra Sigurðardóttir
-
Þrúður Finnbogadóttir
-
TómasHa
-
Halldór Egill Guðnason
-
Úrsúla Jünemann
-
Vefritid
-
Vestfirðir
-
Guðfríður Lilja
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Aðalheiður Haraldsdóttir
-
Auðunn Hilmarsson
-
Ásbjörg Ísabella Magnúsdóttir
-
Bjarni Harðarson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Bryndís Haraldsdóttir
-
Bwahahaha...
-
Dunni
-
Elísabet Sigmarsdóttir
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Gulli litli
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Halldór Baldursson
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Hilmar Dúi Björgvinsson
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
hilmar jónsson
-
Högni Snær Hauksson
-
Jack Daniel's
-
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir
-
Jóhann Pétur
-
kreppukallinn
-
Leikhópurinn Lotta
-
Linda litla
-
Ólafur Th Skúlason
-
Páll Rúnar Elíson
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Sigurður Einarsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Sóldís Fjóla Karlsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
steinimagg
-
Sveinn Arnar Sæmundsson
-
Valdimar H Jóhannesson
-
Þórður Björn Sigurðsson
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég skil það að maður malbiki ekki náttúrufegurð okkar.
Ég skil líka vandamálið og óréttlætið... það hlýtur að vera til önnur lausn á þessu máli.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 17.2.2008 kl. 00:26
Ég tek undir með Gunnari. Það er rangt að malbika náttúrufegurð, eitthvað verður að fá að vera í friði. Ég er viss um að ef skoðanakönnun yrði gerð meðal þeirra sem unna náttúrunni en geta illa farið um, þá kæmi í ljós að þeir vildu ekki að náttúruspjöll yrðu unnin í þeirra nafni.
Þetta er ekki spurning um að fólk í hjólastólum komist á þennan eina stíg eða alls ekki neitt.
Kolgrima, 17.2.2008 kl. 00:50
Sæl Kolgríma. Eru það náttúruspjöll að malbika göngustíga til að allir eigi þess kost með góðu móti að ferðast um þá og njóta náttúrunnar allt í kring.
Óttalega er þetta til mikilla vansa fyrir nátúruverndarsinna að sjónarmið sem þessi eigi sér stað innan þeirra raða.
Náttúran á að vera fyrir alla.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 17.2.2008 kl. 01:00
ég er algjörlega sammála þér kalli, ótrúlegt að samkendin með fötluðum ekki sé komin lengra.. það er alveg hægt að gera fallega göngustíga sem alir hafa möguleika á að nota, ef bara er skoðaðir þeir möguleikar sem eru. t.d.það þarf bara að fá kreativur t.d listamenn til að finna spennandi lausnir.
fallegan sunnudag til þín kæri kalli.
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 17.2.2008 kl. 10:41
Ég er litblindur og á ekki möguleika á starfi sem flugumferðarstjóri og draumur hvers peyja er að vera slökkviliðsmaður. Þessi störf eru út úr myndinni hjá mér og á ég þá að telja að það sé brotið á mér?
En ég hef úr mörgum öðrum störfum að moða og það eru einnig fleiri fallegir staðir á landinu en þessi Gullfoss. Hvað gerist ef þessi maður gefur það út að aðgengi fyrir hjólastóla verði aldrei að vörðunni uppi á Þverfellshorni? Verður allt brjálað?
Lifið heil, eða handycapped eins og ég...
gardarm (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 11:29
Mig langar að nefna það í þessu samhengi.
Og þó að mér finnist það svo sjálfagt þá þurfti að setja sérstök lög hér á Íslandi og þótti víst mikill baráttu sigur fyrir fatlaða!
Að fatlaðir búi við sömu mannréttindi og ófatlaðir.
Náttúruvernd er öll af hinu góða, nema að hún ali af sér svona vitleysu og sjálfselsku!
Fjarki , 17.2.2008 kl. 11:31
Gunnlaugur B Ólafsson varaformaður Varmársamtakanna og Samfylkingamaður heldur áfram að reyna að réttlæta málflutning sinn um göngustíga. Hann furðar sig á að fólk geri athugasemdir við veikan og sjálfselskan málflutning sinn. Hann segir orðrétt
"Er verið að segja það í alvöru að aðgengi fyrir fatlaða geti réttlætt stórfelld náttúruspjöll og umfangsmikið inngrip í náttúruna á hverfisverndarbelti? Stígurinn malbikaði verður um fimm metra frá Álafossinum".
Ég spyr, er ekki gott að sem flestir geti notið þess að horfa á Álafossinn? Hingað til hafa ekki allir haft tækifæri til þess. Ég held að húsin sem nánast standa ofan í fossinum hafi meiri umhverfisáhrif á Álafoss en göngustígur í nokkurra metra fjarlægð. Mikið er hægt að ganga langt í skjóli einhvers sem kalla á náttúruvernd til að gagnrýna bæjaryfirvöld. Svona málflutningur er öllum sem unna náttúrunni til skammar.
Kær kveðja Kalli Tomm.
Karl Tómasson, 17.2.2008 kl. 13:55
Ég hef farið alloft þennan malarstíg á hjóli og finnst það alltaf jafn gaman, þessi spotti frá Álafossi meðfram Varmá og í gegnum skóginn fyrir neðan Reykjalund er frábær eins og hann er og fellur vel við náttúruna. Er svo ekki fínt að fatlaðir geti skoðað ána hinu megin frá? Ekki veit ég hvar þessi malbikaði stígur endar, vonandi fær náttúrulegi stígurinn sem hlykkjast meðfram ánni, yfir brúna og upp í gegnum skóginn að halda sér.
steinimagg, 17.2.2008 kl. 14:21
Það er greinilegt að verndarsjónarmið náttúruunnenda og umgengissjónarmið fyrir hreyfihamlaða fara ekki saman. O sveiattan!
Gunnar Kr., 17.2.2008 kl. 14:32
Nú verð ég að taka undir með þér Kalli. Gerði athugasemd við blogg Gunnlaugs þar sem ég sem hreyfihamlaður einstaklingur hér í Mosó fjalla um hvað það auðveldar okkur för ef stígarnir eru malbikaðir. Minnti hann á að sveitarfélög eiga að tryggja aðgengi fyrir alla ekki bara suma.
Jón Eiríksson (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 21:20
Sæl öll sömul og takk fyrir innlitið.
Það er ótrúlegt að fólk sem vill láta kalla sig náttúruverndarsinna sætti sig ekki við að þannig sé gengið frá lagningu göngustíga að allir eigi gott með að ferðast um þá.
Öfgafull barátta Varmársamtakanna nær nú hæstu hæðum og þau Sigrún Pálsdóttir, Gunnlaugur B Ólafsson og bloggdólgur Varmársamtakanna Valdi Sturlaugz reyna nú á aumkunarverðan hátt eina ferðina enn að ná höggi á bæjaryfirvöldum Mosfellsbæjar í nafni einhvers sem kalla á umhverfisvernd en er hreinræktuð pólitík og andúð á meirihluta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.
Auðvitað er tætingslegt um að litast á meðan framkvæmdir standa yfir og því fáránlegt af þessu fólki að vera að birta myndir á meðan á framkvæmdum stendur til að reyna að styrkja aumkunarverðan málflutning. Það vita allir að allt verður lagt í sölurnar til að hafa lokafrágang á göngustígunum eins glæsilegan og kostur er.
Ég spyr aftur, á ekki umhverfið að vera fyrir alla?
Hvað er það að vera umhverfisvænn?
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 17.2.2008 kl. 22:48
Það er rétt að bæta því við, að margar náttúruperlur landsins eru á þannig stöðum að ómögulegt er nema fyrir full frískt fólk að komast að.
Réttlætir það ekki enn frekar mikilvægi þess að gera aðgengi fyrir fatlaða á sem bestan hátt þar sem því er viðkomið með góðu móti að njóta fallegra náttúruperla?
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 17.2.2008 kl. 23:54
Sæll Kalli.
Gaman að heyra viðtalið við þig í útvarpinu í morgun.
Fróðlegt, skemmtilegt og upplýsandi.
kær kveðja- Helgi
HP Foss, 18.2.2008 kl. 15:09
Auðvitað er náttúran fyrir alla. Og malbikaður göngustígur getur alveg fallið undir skilgreiningu um náttúruvernd, ef hann er vel hannaður og fellur vel að umhverfi sínu.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.2.2008 kl. 09:05
Takk fyrir Helgi minn.
Ásthildur, þetta er í raun þess eðlis að þurfi vart umræðu. Í öllu er hægt að ganga of langt og það er málefnum aldrei til góðs. Hér er verið að ræða um göngustíga innan bæjarmarka og í námunda við nýtt hverfi sem er að rísa í Mosfellsbæ. Það er ekki verið að ræða um göngustíga upp í miðjar hlíðar fjalla. Slík umræða er útúrsnúningur og í raun hjákátleg.
Bestu kveðjur Kalli Tomm.
Karl Tómasson, 19.2.2008 kl. 12:14
Stígurinn er algjörlega ofvaxið fyrirbæri um helstu náttúruverndarsvæði bæjarfélagsins. Meðfram Varmá og Álafossi. Þetta svæði hefur verið tekið frá sem hverfisverndarbelti. Það getur verið sjónarmið að malbika stíga, þá helst á meginæðum og þar sem er nóg pláss. Annað er að hafa þá 3ja metra breiða, með undirbyggingu allt að 4 m, alveg meðfram árbökkum. Þar að auki virðist þetta ekki hafa verið rætt í umhverfisnefnd eða farið í nokkra kynningu meðal bæjarbúa. Þessi trukkur var að vinna í "göngustígnum" í gær.
Gunnlaugur B Ólafsson, 19.2.2008 kl. 13:02
Sæll Gunnlaugur.
Mér þykir líklegt að um vanþekkingu þína á verklegum framkvæmdum sé um að ræða varðandi þennan stíg. Ég þarf oft og iðulega að útskýra fyrir leikmönnum hvernig framkvæmdir ganga fyrir sig, hlutirnir líta stundum ekki vel út á framkvæmdastigi en smella svo í lokin þannig að allir eru glimrandi sáttir. Ég held að þú sért einnig að misskilja það að þetta sé stígur sem eingöngu er lagður fyrir fatlaða. Með því að fylgjast með þessu svona úr fjarlægð sýnist mér að þarna hljóti að koma göngustígur með sérstakri hjólreiðabraut. Breiddin gefur það til kynna.
Fatlaðir hafa þar að sjálfsögðu góðan aðgang.
Til að gera hlutina vel og þannig að þeir standist tímans tönn, þá þarf undirvinnan að vera góð, eins og ég hef áður lýst fyrir þér. Þegar nær verklokum dregur tekur við snyrting á verki og lokaútlitið verður ekki alltaf öllum ljóst fyrr en þá.
Ég vona að ég hafi náð að fræða þig lítillega, sveitungi sæll.
Kveðja- Helgi Páls
HP Foss, 19.2.2008 kl. 14:28
Ég tek undir sjónarmið Gunnlaugs í þessu máli. Það er kannski full ástæða til að fara að spyrja sig þeirrar spurningar hverjir stjórna í raun málefnum Mosfellsbæjar ?
Er spilling í bæjarstjórn ??
Óli í hvarfi
Ólafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 17:21
Þakka þér Helgi fyrir þína viðleitni til að fræða mig um eðli framkvæmda. Ég geri mér alveg grein fyrir því að þetta á eftir að líta mun betur út að lokum og ég geri mér alveg grein fyrir því að stígurinn á efalítið eftir að nýtast ágætlega fyrir þá sem munu ganga þar, hjóla, ganga um með barnavagna eða fara um í hjólastólum. Málið snýst um hvort nauðsynlegt var að gera svona groddalegan stíg og hvort nauðsynlegt var að leggja hann alveg rétt meðfram Varmá og Álafossi.
Nú langar mig að fræða þig um náttúruvernd og jafnvel suma vini þína í leiðinni. Viðhorf til náttúruverndar hafa einkum mótast af nytjagildi lands annarsvegar og hinsvegar verndargildi lands. Í því samhengi vilja verktakar ná hámarksnýtingu út úr landi með því að margfalda áætlaðan íbúafjölda o.s.frv. Hægri flokkar sem oft eru hallir undir þau viðhorf að maðurinn sé drottnari yfir náttúrunni og hafi fullan rétt til að fullnýta auðlindir jarðar hafa oft lagt áherslur sínar á nytjagildi. Hinsvegar hafa vinstri flokkar oftast lagt meiri áherslur á samfélagsleg gildi og virðingu fyrir fjölbreytileika náttúrunnar og þar með lagt meira vægi á verndargildi lands.
Myndin hér að ofan með trukkinn á barmi Álafoss við göngustígagerð undirstrikar að allar áherslur í uppbyggingu Helgafellslands eru á nytjagildi. Það gengur meira að segja svo langt að malbikið á að flæða út á bakka Varmár. Friðlýsingar og verndun ganga út á að taka frá svæði þar sem ætlast er til að þau séu laus við inngrip mannsins. Þar fái náttúran að mótast á eigin forsendum. Meðfram og upp með Varmá ríkir hverfisvernd í 50 m. Víða annars staðar til dæmis í Reykjavík er miðað við að hverfisvernd nái allt að 100 m frá árbökkum.
Markmið verndunar eru oft miðuð út frá einhverri yfirvofandi vá. Í Mosfellsbæ var í aðalskipulagi brugðist við hinni miklu nýtingu á landi til húsbygginga með því að halda eftir þessu verndar- og útivistarbelti upp með Varmá. Það var sem sagt ekki farið fram á mikið, sem skildi halda eftir ósnortnu. Á þessu litla belti átti verndargildið að ver meira vegið heldur en nytjagildið, hvort sem það er fyrir fatlaða eða verktaka. Land og lífríki tekið frá fyrir komandi kynslóðir.
Ég man alltaf eftir því sem barn að faðir minn var að leggja vatnsleiðslu í jörð út í fjárhús. Hann gat stundum verið fljótfær framkvæmdamaður. Skurðgrafa hafði grafið fyrir leiðslunni og hann mokaði síðan yfir á Nallanum. Síðan vantaði aðeins meiri mold ofan á sums staðar. Nærtækast var að taka hana úr hólnum og gilinu við bæjarlækinn, sem og hann gerði. Þó sa´rin séu nú að mestu gróin grasi, þá sést að þessi illa ígrundaða farmkvæmd í dagstund breytti ásýnd og sköpunarverki sem verið hafði í mótun í þúsundir ára.
Það er ótrúlegt að nú á dögum þar sem að vélar eru margfalt stórvirkari en Nallinn hans pabba að verktakar fái frelsi til að eyðileggja bæjarlæk og bæjarhól, án nokkurrar umræðu, mats eða kynningar.
Gunnlaugur B Ólafsson, 19.2.2008 kl. 17:44
Kalli Tomm hjá mér í kvöld kl 21 þú sérlega velkominn.
Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 19:18
Að halda úti bloggsíðu og taka þátt í almennri umræðu um allt og ekkert getur verið gaman. Það hef ég nú gert í tæpt ár og oftar en ekki skemmt mér konunglega. Mín ætlun var líka fyrst og síðast að gera þetta mér aðallega til skemmtunar.
Þegar umræðan og athugasemdir eru orðnar rætnar og jafnvel ýjað að tilbúnum hugrenningum eða kjaftasögum sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum er þetta orðið jafn leiðinlegt.
Það er ábyrgðarhlutur að ýja að spillingu og hver sá sem gerir slíkt á í fyrstu að snúa sér að þeim yfirvöldum sem ganga úr skugga um hvort um slíkt athæfi sé að ræða en ekki að gerast ábyrgur fyrir því að slík umræða fari jafnvel á flug af tilefnislausu.
Það er sárt að lesa um slíkt hvar og hvenær sem er, svo ekki sé nú talað um á sinni eigin heimasíðu.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 19.2.2008 kl. 20:55
Það er nú alveg óþarfi að vera of dramatískur Kalli minn og svo hátíðlegur að maður byrjar að raula þjóðsönginn..... það er enginn að segja að þú sért spilltur bæjarstjórnarmaður, enda rétt hvítvoðungur í pólitíkinni og rétt að átta þig á hvernig klukkan glymur í hinum pólitíska heimi.
En ég spyr aðeins réttmætrar spurningar um það hvort að spilling eigi sér stað í bæjarstjórn... eða skulum við segja hvort að sumt gengur fyrir sig í svona átakalausum gúddí fíling en annað fær kannski engann fíling sem á þó kannski líka rétt á sér.
Spilling er ekki endilega ráðabrugg í reykfylltum herbergjum, spilling er oftast lúmsk og læðist inn á einhvern furðulega eðlilegan hátt, þó einkennilegt sé að segja það og yfirleitt án þess að leikendur geri sér grein fyrir því.
En ég segi bara svona Kalli minn... ekki taka þetta persónulega... mér fannst bara tilheyrandi að kasta þessari spurningu fram hérna og kannski til að þú getir haft auga með þessum hlutum fyrir okkur í ráðhúsinu og passað upp á það fyrir okkur að þeir sem þar starfa gleymi því ekki að þeir eru þjónar fólksins sem valdi þá til starfa en ekki yfirvald.
Og já endilega að hafa óspillta kurlaða gangstíga í óspilltu sveitinni, malbikið er bölvuð tjara, hrein spilling.
Kveðja frá sauðspilltum alþýðumanni í Hvarfi
Olafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 01:35
Þekkt er á meðal barna að reyna að fanga athygli með því að ganga of langt. Sem betur fer eldist það af þeim flestum með auknum þroska.
Ég bendi öllum sem hafa áhuga á spillingar- og hæðnisumræðu að vippa sér yfir á Varmársamtaka Valda þar nær hún hæstu hæðum. Þar er allt í gúddí fíling og engin dramatík. Þar er allt í djóki, meira að segja þjóðsöngurinn er spilaður í pönkútgáfu, mjög töff.
Lagningu göngustíga með kurli eða möl í þéttbýli var hætt í kringum 1896. Ein af náttúruperlum Reykjavíkur er laxveiðiá, meðfram henni eru malbikaðir göngustígar sem gera öllum kleift jafnt, hjólandi, fótgangandi, fólki með barnavagna eða fólki í hjólastólum að njóta hennar.
Göngustígar með kurli og möl eru mjög fallegir og rómantískir upp í miðjum hlíðum fjalla og á milli fagurra birkihríslna. Við slíka stíga er oft gott að setjast niður og hlusta á fagran söng Þrastarins.
Bestu kveðjur frá Kalla Tomm.
Karl Tómasson, 20.2.2008 kl. 08:24
Jæja þetta er nú að verða meira en gott af svona óþægilegri umræðu og pólitík í bili, ég bara ræð ekki við mig hérna í hallelújalandi, tökum upp innihaldsríkara og meira þroskandi hjal.
Ég hef hugsað mér fisk........ ??
P.s.... er okkur þá óhætt að éta báðar endurnar sem enn þrauka við Varmá.... svona áður en það verður malbikað yfir þær og verða engum að gagni ?
Ólafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 10:04
Hallllelújaaaaaa... Hjördís mín.... flott ræða hjá þér, ertu ekki annars bara í gúddí fíling ! .... þú ert annars svo krúttleg þegar þú ert að skammast fyrir hann Kalla.
Annars þetta með að draga í land... einhver misskilningur í gangi hjá þér... ég stend við það að spillingarmál gæti verið í augsýn og þar sem er skítalykt, er hugsanlega haugur.
Málið er bara þannig Hjördís mín að þú vest ekkert hvað ég er að tala um og ert engu nær. Kalli hins vegar gæti verið sá sem kom mér á sporið um þá meintu spillingu sem er í augsýn og á þá heiður skilið fyrir það. En hver veit, ég spurði Kalla hvort að spilling væri í bæjarstjórn en ekki þig og ég veit að hann á ekki í neinum vandræðum með að ræða þau mál við mig persónulega án þinnar aðstoðar, þótt krúttleg sé.
Sjáumst í golfi í sumar Hjördís mín.
Olafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 23:24
Já talandi um golfið, hreinlega hin mesta heilsubót fyrir svona miðaldra manneskjur eins og mig... veistu ég sló og elti kúluna sem óður maður síðasta sumar og bræddi af mér heil 12 kíló af spiki... ekki amalegt það.... þú ættir að prófa, alveg ótrúlega gaman !
Og þar sem þú hefur kannski áhuga á golfiðkun er vert að geta Þess að engin önnur íþrótt kemur með tærnar þar sem golfið er með hælana í heilsueflingu þeirra sem eru farnir að reskjast, nú eða bara yfirleitt... það væri gaman að vita hversu gríðarlegar upphæðir golfíþróttin sparar samfélaginu árlega í heilbrigðisþjónustu !!
Vissir þú að í Mosfellsbæ eru tveir golfklúbbar sem starfa af elju og áhuga.. þ.e.a.s. Kjölur og Bakkakot..... Kjölur er með að ég held yfir 500 meðlimi og Bakkakot um 350 meðlimi.... ekki veitir af tveimur klúbbum í bænum þar sem við erum að verða yfir 10 þúsund á næstu vikum... vorum ekki nema 3000 þegar klúbbarnir byrjuðu. Jú og bærinn ætlar sér að styrkja íþróttina um enn frekar en áður og fjárfesta 120 millj. í þessa öflugu heilsueflingu. Ég skora á þig að prófa... tekur okkur um stund frá tölvunni og sjónvarpinu og eflir líkama okkar og sál á góðan hátt.
En nóg um golfið.... varðandi spillingarhauginn, þá er ég nokkuð viss um það að þú myndir ekki taka eftir honum þó hann væri beint fyrir framan þig.... þessvegna kýs ég að reyna að ná tali af Kalla um þau mál ef hægt er.... ég hef reynt að hringja í hann í einhver skipti í þessu samhengi og einhverra hluta vegna þá hefur hann látið mig á talhólf og ekki svarað til baka.... þannig að ég kom hingað í heimsókn til að heilsa upp á kallinn. Nú ef hann lætur ekki heyra í sér þá hitti ég hann væntanlega í Hveragerði 15 mars næstkomandi og tek hann þá undir 4.
kveðaj, Púkinn á fjóshaugnum
Ólafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 01:29
Já fjóshaugurinn... ég bara hafði svo gaman af því hvernig þú hefur húmor fyrir sjálfri þér og samskiptum þínum við kónginn!! Ég veit að þú gætir aldrei svívirt nokkurn mann eð borið öðrum níð og það sýnir þú á frábæran hátt hversu mikinn húmor þú hefur fyrir sjálfri þér og ert nokkuð djörf að líkja þér við hirðfífl ... en gott hjá þér.
linkur á bloogið þitt þar sem fjóshaugurinn kemur fyrir og hin frábæara saga um hirðfíflið og kónginn: http://kvaran.blog.is/blog/kvaran/
Ólafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 02:27
Ég hef auðsjáanlega farið "holu í höggi" á þínum eigin golfvelli Hjördís mín !..... frábær og mjög fyndin grein hjá þér um feitu hænuna og hirðfiflið dansandi um kónginn :) ..... lífið væri mikið auðveldara ef allir hefðu sama húmor fyrir sjálfum sér og þú hefur :)
http://kvaran.blog.is/blog/kvaran/entry/450301/
Ég má einng til með að þakka þér Hjördís fyrir að blása mér andann í brjóst.... þú ert óskoraður sjálfskipaður varnarmálaráðherra hans Kalla beint úr hirðinni og alveg óþarfi hjá þér að líkja sjálfri þér við hirðfífl... það væri mun frekar að skipa þig hershöfðingja hirðarinnar því að flestar þínar varnir hafa þvert á móti blásið til ófriðar fyrir blessaðan kónginn og ríki hans með andagift þinni og innblásnum ræðum.
Ef að ég hef verið í vafa um hvort að ég ætti að róta í skítnum eða ekki, þá hefur þú á þinn einstaka hátt reist mig upp og borið mér sverð í hönd, tilbúinn til atlögu við ríkið, kónginn, hirðfíflið og feitu hænuna.
Takk, Takk
Ólafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 11:20
Jæja Hjördís mín, þér er óhætt að slökkva á gjallhorninu og róa taugarnar..... hafðu engar áhyggjur, ég tek ekkert af þessu inn á mig sem þú skrifar og erfi ekkert, ég hef bar haft mikið gaman af þessu. Svona til að róa þig frekar og svala kvennlegri forvitni þinni þá er ég búinn að tala við Kalla kóng og erum aðeins búnir að fara í gegnum málið sem á sér mun eldri aðdraganda en þessi skrif hér á blogginu. Þá get ég upplýst þig um að sökum þess hversu stuttan tíma hann hefur verið í pólitíkinni þá snýst hið meinta spillingarmál ekki að honum persónulega. Málið hefur ekkert með gangstíga eða kurl að gera og hvað þá náttúruvernd nema þá að mannleg heilsa fellur líklega að hluta undir þá skilgreiningu. Málið fellur undir íþrótta og tómstundamál, málið fjallar um úthlutun úr sameiginlegum sjóðum og tengsl manna í slíkum úthlutunum. Kalli kemur að þessu máli vegna þess að ég var buinn að biðja hann um að líta á þessi mál og leita tölulegra upplýsinga til að fá skýra mynd af eðli og umfangi. Hann er jú fulltrúi Vinstri grænna sem skilgreina sig sem verði félagslegs réttlætis. Hluti af þeim upplýsingum um sjóðsúthlutanir sem verið er að leita eftir er að finna hér:http://www.mosfellsbaer.is/Files/Skra_0025235.pdf Ástæðan fyrir því að ég fer ekki dýpra í þetta mál hér er eimitt til að gæta þess að málið verði ekki persónugert í Kalla og að bloggið hans verði ekki miðpunktur meints spillingarmáls sem hann á ekki upphaf að. Hann er jú einu sinni forseti bæjarstjórnar og verður að þola ýmsar spurningar þó þær séu stundum óþægilegar og málefnið vandasamt. Og Hjördís, ef að vinskapur er raunverulegur og einhvers virði, þá þolir hann átök rétt eins og gott hjónaband.... vinskapur er eins og hjónabandi ekki bara tómt halelúja.
Ólafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 16:12
Hjödda mín, þú ert bara svo mikið krútt
Ólafur Ragnarsson (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 17:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.