lau. 16.2.2008
Græna netið er ekki undir fölsku flaggi
Nýlega voru stofnuð samtök umhverfis- og náttúruverndarfólks sem kalla sig Græna netið. Á heimasíðu félagsins segir orðrétt:
Nokkrir áhugamenn innan Samfylkingarinnar stofnuðu 13. október sl. nýtt félag umhverfis- og náttúruverndarfólks. Vinnuheiti félagsins er Græna netið - félag jafnaðarmanna um náttúruna, umhverfið og framtíðina.
Ég vil nota tækifærið og óska þessum nýju samtökum velfarnaðar.
Fyrir tæpum tveimur árum voru stofnuð umhverfissamtök í Mosfellsbæ sem kalla sig Varmársamtökin, allt frá upphafi lögðu þau þunga áherslu á að auglýsa sig sem þverpólitísk samtök.Undirrituðum var fljótlega ljóst að þar var flaggað undir fölsku flaggi og skrifaði um það nokkrar greinar. Endalokin á þeirri sögu þarf ekki að tíunda, öllum eru þau kunn.
Nú hafa verið stofnuð ný samtök og á þeim bænum er ekkert farið í grafgötur með tengsl við Samfylkinguna. Ritstjóri á heimasíðu nýju samtakanna er Sigrún Pálsdóttir, aðaltalsmaður og gjaldkeri Varmársamtakanna og fyrsti bloggvinurinn er Gunnlaugur B Ólafsson, varaformaður Varmársamtakanna. Eitt fyrsta verk nýju samtakanna er m.a. að heimsækja Álafosskvosina og ræða deiluna um tengibrautina sem var aðal baráttumál Varmársamtakanna. Einnig verða bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ þau, Hanna Bjartmarz og Jónas Sigurðsson heimsótt.
Þarna er allt á yfirborðinu og innilegar hamingjuóskir með það.
Athugasemdir
gott að heyra þetta.
fallega helgi til þín kæri kalli.
Bless í bili
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 16.2.2008 kl. 14:25
Ætli það verið tekið námsskeið í girðingavinnu? Eða kannski þvergirðingavinnu?
Nei, æ,æ. Gunnlaugur var búinn að biðja mig um að gleyma þessu með æðiskastið hans. En ég bara get það ekki, þjáist bæði af bakflæði og gyllinæð af því að hafa þetta í hugskoti mínu, stanslaust.
HP Foss, 16.2.2008 kl. 21:28
Laugheiður Gunnarsdóttir, 16.2.2008 kl. 21:57
Gunnar Helgi Eysteinsson, 16.2.2008 kl. 22:27
Reynt er að gera aðalmál úr því hvaða flokk náttúruverndarfólk kýs. Væntanlega til að þjóna einhverjum hugmyndum um samsæri. Þetta er búið að vera meginstef Karls Tómassonar í umræðu um skipulagsmál síðasta árið, en síðan vildi hann koma fyrrverandi formanni VG í Mosó í stjórnina. Tilgangurinn helgar meðalið, enda eru þeir víst sannari og meiri unnendur náttúru en aðrir.
Stjórn Varmársamtakanna hefur verið kosinn á opnum og fjölmennum aðalfundum. Tveir stjórnarmenn eru skráðir í Samfylkinguna, einn er í stjórn Sjálfstæðisfélagsins og síðan veit ég ekki með afstöðu tveggja í landsmálum. Tel að þeir væru alveg eins líklegir til að kjósa VG á góðum degi og forystumenn þeirra stæðu í lappirnar í umhverfismálum.
Gunnlaugur B Ólafsson, 17.2.2008 kl. 10:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.