Afmæliskveðja til vinkonu

Einn af mínum bestu vinum á afmæli í dag. Það er hún Hjördís Kvaran, hún er sannur fjölskylduvinur og ein litríkasta og skemmtilegasta persóna sem ég hef kynnst um dagana.

Hún er í senn bráðskörp, góð og óútreiknanleg. Það er aldrei lognmolla í kringum Hjöddu, þegar hún mætir á svæðið gerist alltaf eitthvað óvænt og skemmtilegt. 

Mikið gefur það lífinu mikið gildi að kynnast manneskju sem er heilt í gegn gæðin ein og um leið óútreiknanlegur sérvitringur með yfirburða þekkingu á ótrúlegustu málefnum.

Til hamingju með daginn Hjödda okkar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kæra vinkona Hjördís.

Innilegar hamingjuóskir með daginn. Það var gaman að fá þig í afmæli mitt fyrr í mánuðinum. Vegni þér alltaf sem best.

Billi Start.

Billi Start (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 00:46

2 identicon

Hææj Kalli það er svo gott að geta lesið eitthvað fallegt um hana mömmu hún er líka svo falleg og skemmtileg.Þegar hún las þetta í gær þá brosti hún svona rosalega mikið og sætt og varð svo glöð Þið eruð svaka góðir vinir ég veit það alveg en takk fyrir að tala svona vel um hana mömmu

Kv:Þuríður dóttir Hjördísar.

Þuríður Kvaran :) (IP-tala skráð) 21.12.2007 kl. 12:50

3 identicon

Til hamingju með afmælið Hjördís.

Kveðja Högni Snær

Högni (IP-tala skráð) 22.12.2007 kl. 07:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband