þri. 20.11.2007
Bloggalþýðan og blogglæðurnar
Nokkrum sinnum hef ég látið þá skoðun mína í ljós að bloggið sé án vafa eitt það besta og merkilegasta sem upp hafi komið fyrir íslenska tungu og menningu hin síðari ár. Á þessari trú minni verð ég alltaf staðfastari.
Hundruð og jafnvel þúsundir íslendinga sitja við skriftir, skiptast á skoðunum og þankagangi í gríni og alvöru hvern dag og oftar en ekki og sem betur fer á málefnalegan hátt. Er þetta ekki gott fyrir tungu okkar og menningu? Auðvitað eru draugar inn á milli í þessum heimi eins og öðrum en ég tel ástæðulaust að eyða bleki í þá lágkúru að þessu sinni.
Á meðal minna bloggvina, eins og vafalaust flestra annarra er til að mynda fólk sem hefur haft margt fróðlegt og uppbyggilegt fram að færa og oft unun að lesa og setja sig inn í þeirra þankagang og lífsviðhorf og hafa tækifæri til þess hvern dag. Að hafa jafnframt tækifæri til þess hvern dag að koma með athugasemdir, spurningar og hrós til fólks sem fæst við þessi skrif er einnig ómetanlegt. Bloggarar eru: iðnaðarmenn, stórstjörnur, húsmæður, pólitíkusar,verkamenn, læknar, leigubílstjórar og nemar. Með öðrum orðum, fólk úr öllum stéttum.
Oft er talað um alþýðumanninn, manninn sem er yfir ekkert hafinn og talar máli alþýðunnar. Fyrir kosningar telja pólitíkusar t.d. oft gott að tilheyra þeim fjölmenna hópi. Í bloggheimum sér maður ótrúlega oft og glöggt hinn eina sanna alþýðumann, það er manneskjur sem eru tilbúnar að taka þátt í almennum umræðum, hversu merkilegar eða ómerkilegar sem þær kunna nú að vera, axla ábyrgð á skrifum sínum og þankagangi, tilbúnar að gantast, tilbúnar að opinbera fáfræði sína í sumu hverju og tilbúnar að tak þátt í umræðunni, burt séð frá stétt eða stöðu. Svo er auðvitað einnig til fólk sem á þessu hefur engan áhuga, gott og vel.
Blogglæðurnar eru merkilegra fyrirbrygði. Það er fólk sem læðist um heima bloggsins, smjattar á umræðunni öllum stundum og oftar en ekki gerir lítið úr þessari vitleysu allri en þorir ekki fyrir sitt litla líf að taka þátt og opinbera sína skoðun. Jú sumir undir leyninöfnum.
Bloggið er þverskurður af sönnu alþýðufólki sem ég held fyrst og síðast, taki sig í raun ekki of alvarlega.
Er það ekki gott?
Athugasemdir
Ég vildi að ég gæti skrifað svona langan texta, ég er bara svo slæmur í ganglion já og svo er ég með kvef.
steinimagg, 20.11.2007 kl. 22:49
Ég vildi að ég gæti lesið svona langan texta.
Var eitthvað varið í þeta Hallsteinn?
HP Foss, 20.11.2007 kl. 22:54
Lifi byltinginn (eða er þetta ekki bylting fólksin þar sem hið skrifaða orð er vopnið?) vei,vei, vei
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2007 kl. 23:00
Þorrí Kalli minn, fékk krampa í n-puttan en þarna á að sjálfsögðu að standa BYLTINGIN. Takk fyrir mig.
Jenný Anna Baldursdóttir, 20.11.2007 kl. 23:01
Helgi þetta er alveg stórmerkilegt. Best að prenta þetta út og lesa upp í rúmi næstu fjögur kvöld.
steinimagg, 20.11.2007 kl. 23:13
já, það er alveg ótrúlega gaman að lesa og lesa og lesa...skemmtilegt að lesa hjá þér þetta blogg t.d., þú hittir naglann alveg á höfuðið finnst mér.
alva (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 00:58
Gaman hvað fólk tekur þetta mátulega hátíðlega. En það er einmitt eins og þú segir, bloggið er vettvangur fyrir þá sem vilja taka þátt í umræðunni á sínum eigin forsendum. En öllu gamni fylgir nokkur alvara og þess vegna verða menn að skapa sér strik og síðan passa sig að fara ekki yfir strikið.
Og Hallsteinn: ég trúi ekki að þú sért svona seinlæs! Þá er þér illa í ætt skotið.
Sigurður Hreiðar, 21.11.2007 kl. 09:04
Eflaust er ég seinlæs Sigurður, en ég var nú bara að benda honum Helga á hvernig hann gæti lesið allan þennan texta á auðveldan hátt, það er bara kvef og ganglion sem hrjáir mig.
steinimagg, 21.11.2007 kl. 12:45
Er þetta ekki gott spyr Karl, jú þetta er nefnilega mjög gott. Og ég er viss um að það á sinn þátt í upplýstara samfélagi. Ég er viss um að margt málið ratar inn í fréttirnar einmitt vegna umræðunnar á bloggsíðum landsins, og það er vel. Þakka gott innlegg.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.11.2007 kl. 20:14
Það besta við bloggið er það "það held ég að minnsta kosti" að það sem fólk hefur í gengum árin verið að ræða við eldhúsborðin yfir kaffibolla verður opinbert þeim sem eiga að taka það til sín. Þ.e. fólk fær tækifæri til þess að tjá sínar skoðanir og koma þeim á framfæri. Nafnlaust eða undir nafni.
Bæðe vei
Blómið er Berglind 37 ára tveggja barna móðir með ein ekta mér við hlið
Blómið, 21.11.2007 kl. 20:48
Takk fyrir góð skrif Kalli bloggvinur minn
Þóra Sigurðardóttir, 21.11.2007 kl. 21:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.