Hver er fallegasta þulan???

Ég varpaði fram þessari spurningu í gær og fékk nokkur viðbrögð. Í tilefni dagsins þ.e. dags íslenskrar tungu fannst mér upplagt að reyna að fá lesendur til að setja inn hjá mér fallegar þulur að þeirra mati.

Eitthvað fór þetta nú allt fyrir ofan garð og neðan og var m.a. félaga mínum úr tónlistinni Sverri Stormsker mikið niðri fyrir. Ég hefði nú haft meira gaman að því að fá þulu frá Sverri.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: steinimagg

Það er óhætt að segja að þú hafir náð Sverri Stormsker á vinstri græna öngulinn.

steinimagg, 17.11.2007 kl. 13:43

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég féll á bragðinu, skamm Jennýen ég áttaði mig þó seint væri

Jenný Anna Baldursdóttir, 17.11.2007 kl. 16:58

3 Smámynd: Karl Tómasson

Ég þakka ykkur öllum fyrir komuna.

Eins og ég sagði í hinni færslunni hér að neðan, þá fór þetta nú allt í einhvern snúning en það er bara gaman að því.

Sverri Stormsker  er margt til lista lagt og til að mynda er hann snókeráhugamaður mikill og leikur þá íþrótt listavel. Einu sinni tók hann mig í bakaríið í snóker og mikið var gaman að spila við hann. Ég er ekki frá því að ég hafi náð hefndum í þetta skiptið þó það hafi nú ekki verið neitt sérstakt markmið.

Ég skora á Sverri að koma með fallega þulu en Sverrir þá er ég ekki að meina í heimsókn til mín.

Karl Tómasson, 17.11.2007 kl. 18:19

4 Smámynd: HP Foss

Þessi fær mig alltaf til að fella tár. 

Gimbillinn mælti
og grét við stokkinn:
Nú er hún móðir mín
mjólkuð heima:
Því ber ég svangan
um sumardag langan
munn minn og maga
á mosaþúfu.

Þetta segir svo margt, eiginlega allt.

HP Foss, 17.11.2007 kl. 18:23

5 Smámynd: Karl Tómasson

Gaman að fá þessa þulu frá þér Helgi minn, hún hefði mátt koma í hinni færslunni hjá mér. Einhvernvegin læðist að mér sá grunur að einn besti húmoristi sem ég þekki hafi eina ferðina en náð sér á strik.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó. 

Karl Tómasson, 17.11.2007 kl. 18:42

6 Smámynd: HP Foss

Já, ég hef nú forsetann grunaðan um að vera ekki alveg saklaus í þulumálinu og við Sverrir tökum því þennan öngul í gegnum meltingarveginn og sendum hann að því loknu til föðurhúsanna, í kvosina.
Maður hefur nú oftar en einu sinni þurft að gleypa Þennan öngulskratta.

Annars missti ég af tónleikum Sverris á Álafoss Föt Best um árið, var svekktur því ég frétti að þeir hefðu verið helvíti góðir.

HP Foss, 17.11.2007 kl. 18:58

7 Smámynd: HP Foss

Og svo er það þessi, sem segir allt sem segja þarf.

Gimlill eftir götu rann,
hvergi sína móður fann,
þá jarmaði hann.

HP Foss, 17.11.2007 kl. 21:10

8 identicon

Þetta er auðvitað sú fallegasta :

Fransman (IP-tala skráð) 17.11.2007 kl. 21:56

9 Smámynd: Guðmundur H. Bragason

Ef ég hef atkvæðisrétt þá verð ég að taka undir með Sveini er það ekki hehehehe

Guðmundur H. Bragason, 18.11.2007 kl. 03:50

10 Smámynd: Karl Tómasson

Jú Gummi minn, ekki spurning!!!

Gaman að sjá þig minn kæri.

Bestu kveðjur frá Kalla Tomm úr Mosó. 

Karl Tómasson, 18.11.2007 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband