Snoddas var engum líkur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Að sjá þá saman hér hlið við hlið á bloggsíðunni, Snoddas og Jussi Björling, verður til þess að það fer bjánahrollur um mig.

Snoddas er eitthvert besta dæmi um árangur snilldar auglýsingamennsku sem getur selt hvað sem er á ósvífinn hátt.

Lagið Flottarkarlek fór sem eldur í sinu um Norðurlönd og Sjómannadagsráð var í skýjunum eftir að það gat fengið "snillinginn" til að koma til Íslands og fylla Austurbæjarbíó.

Sagt er að eftir að hafa heyrt í vininum á æfingu daginn áður hafi ráðsmenn ekki getað sofið fyrir áhyggjum fyrir tónleikana því að í ljós kom að vesalings maðurinn gat ekki sungið af neinu viti neitt nema þetta eina lag!

Fyrir sænsku þjóðina var það slæmt að tveir af frægustu söngvurum hennar skyldu floppa á Íslandi með stuttu millibili.

Munurinn á þeim var hins vegar himinhrópandi. Jussi var afburðamaður sem gat örþreyttur og fárveikur (alkóhólismi er sjúkdómur) ekki notið sín.

Snoddas hefði hins vegar ekki átt möguleika til að verða skárri þótt mokað hefði verið í hann sterum, spítti og öðru því sem nota má til að kreista út úr mönnum eitthvað meira en þeir hafa.

Það var nefnilega ekkert að kreista.  

Ómar Ragnarsson, 15.11.2007 kl. 00:06

2 Smámynd: Karl Tómasson

Ómar, við þetta þarf ekkert að bæta.

Takk fyrir.

Karl Tómasson, 15.11.2007 kl. 00:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband