Ég fagna fyrir hönd Varmársamtakanna

Ég vil nú nota tækifærið og óska Varmársamtökunum innilega til hamingju með að hafa loks slitið öllum tengslum við bloggdólginn Valda Sturlaugz.

Hann og hans fólk hefur undir nafnleynd um margra mánaða skeið verið einn af aðal talsmönnum samtakanna og veist að fólki með slíkri háð og heift að engu tali tekur, þrátt fyrir marg ítrekuð viðvörunarorð mætra sveitunga um hversu lágt samtökin hafa lagst með tengingu sinni við hann.

Ég tel þetta stórt skref í í baráttu samtakanna um hin einu sönnu umhverfismál, því umhverfið snýst ekki síst um manneskjuna. Varmársamtökin hafa því miður farið allt of glannalega fram í sínum baráttumálum og hefur það án vafa stórskemmt fyrir þeirra hugðarefnum. 

Ég vona að aðalfundur Varmársamtakanna, sem hafa án vafa sannarlega margt til málanna að leggja fari vel fram og þeirra baráttumál nái hljómgrunni. Það gerist aldrei með þeim aðferðum sem þau hafa beitt undanfarið ár en getur án vafa gerst með breyttum áherslum.

Á það geta kjósendur til nýrrar stjórnar haft mikil áhrif og þar vegur þungt að  Bjarki Bjarnason fái glæsilega kosningu. 

Karl Tómasson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Styrkurinn liggur í sjálfsgagnrýni - var ekkert sem að forseti bæjarstjórnar hefði getað gert á annan veg þegar hann lítur yfir farin veg og á þessi mál? Morgunblaðið vísar til þeirra í ritstjórnargreinum á þann veg að í þessu máli hafi ríkt af hálfu bæjarins vanvirðing við íbúalýðræði og vitræna umræðu. Mosfellsbær hafi sýnt meiri ósveigjanleika og hörku í samskiptum við íbúa heldur en þekkt er frá öðrum hverfum höfuðborgarinnar. - Fyrir þér hefur málið bara snúist um vondu samtökin og ímyndaða íllgjarna óvini? -

Gunnlaugur B Ólafsson, 14.11.2007 kl. 02:17

2 identicon

Ég hef aðeins fylgst með deilum Varmársamtakana og skil það mæta vel að fólk sem þar býr vill vernda þetta svæði fyrir ágangi mikillar umferðar og öllu sem því fylgir.

En mig langar að fá að vita og spyr Karl Tómasson af því hvernig skipulagið við Kaldárkvísl við Leirvogstunguhverfi á að vera í framtíðinni? Ég bý í Kollafirðinum  og vinn í Mosfellsbæ, og þarf því að keyra um þennan veg daglega 2x á dag. Það er enginn lýsing á veginum þarna,og bílar að taka vinstri beygur niður í Leirvogstunguna.Það er hryllingur að aka heim til sín og lenda í þeirri umferð sem þarna skapast,ég tala nú ekki um á kvöldin þegar engin lýsing er þarna.Ég get ekki skilið þessar framkvæmdir allar,að það er byrjað að byggja upp heilu hverfin en ekkert spáð í vegina sem liggja að þessum hverfum eins og t.d. þarna við Leirvogstunguna. Það verður að gera eitthvað áður en slys verða.Það er þvílíkur munur að keyra inní Mosfellsbæ eftir að hringtorgið við Mosfellsdal og Þingvallarafleggjarann kom,maður þarf ekki lengur að vera með lífið sitt í lúkunum þar. Og það á ekki að þurfa að vera þannig.

Kveðja,Guðbjörg Elín.

Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir (IP-tala skráð) 14.11.2007 kl. 09:03

3 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Ekki ætla ég að svara fyrir Karl Tómasson, Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir(furðulega líkt nafni konu sem ég kannast við og vinnur uppi í Borgarfirði), en þú spyrð um skipulagið við Leirvogstungu Kaldárkvísl og meinar líklega Köldukvísl.

Ég get ekki svarað því, en bendi á að fram hefur komið tillaga sem er mjög góð að mínu mati: Færa hringtorgið sem þú nefnir upp undir Köldukvíslarbrú og tengja Tunguhverfið þar inn á Vesturlandsveginn. Ég vona að bæjaryfirvöld hér í Mosó og Vegagerðin beri gæfu til að skoða þau lausn mjög vandlega.

Annars kostur gæti verið að færa heimreið Tunguhverfisins fram í nýja hringtorgið á Ásum.

Sigurður Hreiðar, 14.11.2007 kl. 10:42

4 Smámynd: Karl Tómasson

Heil og sæl Guðbjörg Elín.

Það má segja að Sigurður Hreiðar sé búinn að svara þér varðandi tengingu við hið nýja Leirvogstunguhverfi þ.e. hvar hún verður. Endanleg útfærsla tengingarinnar hefur ekki verið ákveðin.

Það er rétt hjá þér þetta er mjög hættuleg aðkoma í hverfið eins og hún er núna.

Hringtorgið við Þingvallaafleggjaran er mikil samgöngubót.

Kær kveðja Karl Tómasson.

Karl Tómasson, 14.11.2007 kl. 19:55

5 identicon

Plís,plís,plís hættum nú að ræða um þessi blessuðu varmársamtök.

Ég held ég geti alveg fullyrt það að 99,99% Mosfellinga séu komin með nóg.

Fannar Pálsson (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 15:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband