Talaðir þú við Gens í jær?

Það er með ólíkindum hvernig manni tekst stundum að klára jafnvel heila setningu með slíku brengli að hún hljómar nánast eins og talað sé tungum.

Í dag átti ég spjall við vin minn sem er að fara að halda upp á stórafmæli bráðlega. Hann sagði mér m.a annars að hann væri búinn að bjóða Jens í veisluna og hefði gert það í gær.

Þá sagði ég "já! talaðir þú við Gens í jær" Auðvitað ætlaði ég að segja, talaðir þú við Jens í gær.

Um daginn spurði ég konu mína hvað eigum við að hafa í matinn í kvöld, þá sagði hún er ekki upplagt að við höfum spakk og haketí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hahaha, kannast við svona, á kunningja sem eru kallaðir Rósa og Sassi - ruglast ansi oft og segi Sósa og Rassi...

alva (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 21:43

2 Smámynd: Jens Guð

Hehehe!  Billi Start sagði mér frá því í dag að hann hafi verið að spjalla við þig.  En hann minntist ekkert á þessi stafavíxl.

Jens Guð, 9.11.2007 kl. 21:50

3 Smámynd: Karl Tómasson

Sósa og Rassi er nokkuð gott Alva.

Gaman að heyra frá þér, sjálfum Jens Guð, málið snérist akkúrat um það, að verið var að tala um þig minn kæri. Ég held Jens að Billi hafi ekki heyrt þetta stafavíxl hjá mér en Lína mín sem sat í bílnum á meðan Billi talaði við mig heyrði það og við hlógum mikið að loknu samtalinu.

Karl Tómasson, 9.11.2007 kl. 21:57

4 Smámynd: HP Foss

Gaman að því, þegar stóra Grímsvatnahlaupið varð 1996 spurði vinnufélagi minn, virðulegur maður sem ekki mátti vamm sitt vita, spurði hvort foreldrar mínir væru með kort og kúk. Hefur sennilega átt við kork og kút. Hann blánaði í framan og hélt afram vð það sem hann var að gera.

HP Foss, 9.11.2007 kl. 23:10

5 identicon

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 00:31

6 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 10.11.2007 kl. 01:46

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jamm... ég var líka að horfa á gamla mynd með East Clintwood...

Jónína Dúadóttir, 10.11.2007 kl. 15:38

8 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Er þetta ekki bara önnur tungumálaflóra þarna í Mosfellsbæ ?
Svipað og vestfirðingar leggja áherslu á vissa stafi .

Halldór Sigurðsson, 10.11.2007 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband