Uppspretta kærleikans

Ég hef undanfarna mánuði verið þess heiðursaðnjótandi að haldið er úti bloggsíðu af einhverjum leynimanni sem virðist mér sérstaklega tileinkuð. Auðvitað er það eitt útaf fyrir sig stórmerkilegt að einhver finni hjá sér þörf að gera slíkt. Fyrstu mánuðina nafngreindi hann mig óspart í skrifum sínum en nú undanfarið virðist hann ekki treysta sér lengur til þess, heldur notar þá frægu aðferð að tala undir rós.

Leynimaðurinn, hugrakki, hikar ekki heldur við að leggja dóm sinn á samferðafólk sitt. Á síðu hans er ekki óalgengt að fólk sé kallað geðsjúklingar, kotbændur, vanhæfir embættismenn, eða jafnvel  fjósakallar.

Leynimaðurinn segist flokksbundinn sjálfstæðismaður og því er óhætt að segja að það veki furðu hversu oft hann fárast út í samstarf núverandi meirihluta Sjálfstæðismanna og Vinstri grænna í Mosfellsbæ. Tilvist okkar Vinstri grænna í því samstarfi virðist honum sérstaklega erfiður biti að kyngja.

Nú spyr maður sig, er leynimaðurinn þegar upp er staðið ekki nógu greindur? Honum fatast svo hratt flugið. Það er sama hvað hann tekur sér orðið fyrir hendur, ekkert gengur upp. Það vill engin lengur þekkja leynimanninn eða hans fólk. Allir hættir að mæta á fundi hjá honum, ekkert fjölmiðlafár í kringum hann, engar athugasemdir á síðuna hans. Með öðrum orðum allt er á niðurleið. Ég tel því rétt að reyna að rétta honum hjálparhönd. Tilfinningagreind er honum ofarlega í huga eins og sjá má á skrifum hans og því er mitt fyrsta heilræði til leynimannsins að lesa sér til um hana og reyna að læra af.   

Til að komast inn á síðu þessa hugrakka manns er auðveldast að fara fyrst inn á heimasíðu umhverfissamtaka sem kenna sig við Varmá og þaðan er slóð inn á þessa síðu sem ber heitið Valdi Sturlaugz. Varmársamtaka Valdi, eins og hann var einhvertíma kallaður breytir reyndar oft um nafn og á það einnig til svona öðru hvoru að fjarlægja part af skrifum sínum og þá einna helst þau sem hann setur inn um miðjar nætur.

Ég hvet alla sem sem hafa áhuga á umhverfismálum, mannrækt, auknu flæði í mannlegum samskiptum og síðast en ekki síst, hafa mikinn kærleika að bera að líta við hjá Varmársamtökunum og vippa sér þaðan yfir á Valda, það er á við marga jóga tíma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: HP Foss

Já, Valdi Sturlaugz? Ég hef nú aðeins séð þessi skrif hélt nú satt að segja að þetta væri svona einhver sem hafi átt þann draum að komast til metorða en ekki haft það. Býr þess í stað til þessa ímynduðu persónu og lifir sig þannig inn í hana að honum finnst hann lifa hinu "ljúfa" lífi. Þetta er vel þekkt í læknisfræðinni en ég man ekki hvað það kallast. Þetta er víst ólæknandi.

Þessi sami maður heldur sjálfsagt úti síðu á Moggablogginu, því þar er ekki hægt að hafa tvö blogg á sömu kennitölunni en Valda síðan er jú á Vísisblogginu.

Nú man ég hvað þetta er kallað sem hrjáir skrifara Valda Sturlaugs. Þetta er kallað öfund.

kv
Helgi Pálsson

HP Foss, 30.10.2007 kl. 20:47

2 Smámynd: steinimagg

Ég átta mig nú ekki alveg á þessu, er einhver sem nennir að lesa það sem Valdi skrifar, ég kíkti aðeinns á síðuna og gafst upp eftir ca 53 sek, annars er eflaust hið besta mál að hann skrifi bara sem mest, hann gerir ekkert alvarlegt af sér á meðan.

steinimagg, 30.10.2007 kl. 21:28

3 identicon

Þetta var frískleg færsla hjá þér Karl. Ég hef í raun beðið eftir því að þú hættir að taka mark á þessu fólki og reyna að svara því á málefnanlegan hátt heldur akkúrat svona - gera grín að því.

Mosfellingur sem þorir ekki láta nafn síns getið (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 23:34

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Karl.: Góð grein hjá þér, en.......Ekki eyða meira púðri í þetta fyrirbæri. Kvikyndið gengur frá sér sjálft.  "Smil til værdaen og værden smiler til deg!"

Halldór Egill Guðnason, 31.10.2007 kl. 00:43

5 identicon

Þú hefur alla mína samúð

Valdi B. Ólafz og Fjóla Sig
Bæði í góðu flæði
Frú Konstantín hún elskar þig
Þú ert algjört æði

Girðingar hann rífur
góðan gjörning fremur
skítinn eftir sig þrífur
bloggfærslur hann semur

Gunnvaldi... skvaldur og skot
hvað hann sig nú kallar
hans eiginhagsmunapot
það er sem hann brallar

Kærleikskveðjur Þorlákz

Þorlákur (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 11:26

6 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Gott hjá þér - um að gera að hlæja að svona einstaklingum.
sem sjá ekki sóma sinn í að koma undir nafni með svona bull.

Halldór Sigurðsson, 31.10.2007 kl. 20:51

7 identicon

Ég hef þekkt þig frá barnæsku. það er nóg fyrir mig. Baráttu kveðjur í sveitina Kalli.

Hilsen frá Óskari (Peter Shilton)

Óskar (IP-tala skráð) 31.10.2007 kl. 23:34

8 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

nenni nú ekki að eiða tíma á þennan valda eða hvað hann nú heitir, nóg er að heyra hjá þér og fl. hvernig skrif hans eru. ósköp er þetta samt leiðinlegt fyrir hann, en allt sem við upplifum í lífinu eru möguleikar á að þroska sig sem manneskja.

hafðu fallegan dag í dag.

AlheimsLjós til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.11.2007 kl. 07:57

9 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ertu með slóðina á hann?

Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.11.2007 kl. 12:40

10 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

"Ég hvet alla sem sem hafa áhuga á umhverfismálum, mannrækt, auknu flæði í mannlegum samskiptum og síðast en ekki síst, hafa mikinn kærleika að bera að líta við hjá Varmársamtökunum og vippa sér þaðan yfir á Valda, það er á við marga jóga tíma."

Veit einhver hvern forseti bæjarstjórnar er að reyna að hafa að háði og spotti með þessum skrifum? Getur einhver ráðlagt mér hvort að það er skynsamlegt að auglýsa starfsemi í blaði hans, þar sem hann og félagar fara síðan um og reyna að lítillækka? Á ég að beita sömu aðferðum og fara að ráðast opinberlega að starfsemi hans, rekstur Mosfellings?

Hann vísar í sinni innlögn í "þá frægu aðferð að tala undir rós". Beitir henni síðan sjálfur með því að dylgja á þeim nótum að ég sé Valdi Sturlaugz sem ég hef ekki hugmynd, ekki hugmynd um hver hann er. Ekki frekar en þau þrjátíu nöfn sem reyndust uppskálduð á síðum Karls og Mosfellings í vor.

Margur heldur viðhlæjendur vini. Ráðlagði honum heilt nýlega að fara að tala á uppbyggilegan og málefnalegan hátt um bæjarmálin. Þá kom hugmynd hans að háhýsinu í framhaldi. En hún fékk vægast dræmar viðtökur og því virðist Karl ætla að halda sér við sprell í bland við dylgjur um íllgjarna og ímyndaða andstæðinga.

Gunnlaugur B Ólafsson, 4.11.2007 kl. 00:52

11 identicon

Gunnlaugur!

Hver er sinnar gæfu smiður.

MálshátturINN (IP-tala skráð) 4.11.2007 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband