Mosfellingarnir fóru á kostum

Það var gaman að sjá Mosfellingana, þau Bjarka Bjarnason, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Höskuld Þráinsson í spurningaþættinum Útsvar í gær. Í þættinum öttu þau kappi við lið Vestmannaeyjinga og höfðu betur með glæsibrag í skemmtilegum og líflegum þætti. Nú verður spennandi að fylgjast með næstu viðureign og sjá hvort þeim takist jafnvel upp.

Þau Bjarki, Diddú og Höskuldur eru eins og flestir vita fólk með víðtæka reynslu og þekkingu hvert á sínu sviði og held ég að það sé óhætt að vera nokkuð bjartsýnn með framhaldið.

Áfram Mosó!!! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

NEI NEI Kalli Mosó keppti við Vestmanneyinga, Hvergerðingar sigruðu Kópavog svo eftirminnilega í fyrsta þættinum og erum með eitt af hæstu skorunum.

Þú verður að fylgjast betur með kallinn minn !!!!!

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 27.10.2007 kl. 21:30

2 Smámynd: Karl Tómasson

Takk fyrir ábendinguna Hulda Bergrós.

Ég laga þetta strax.

Karl Tómasson, 27.10.2007 kl. 21:42

3 Smámynd: Hulda Bergrós Stefánsdóttir

Úff mér líður betur

Hulda Bergrós Stefánsdóttir, 27.10.2007 kl. 21:47

4 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

ég heppa bara með þér kæri kalli,

AlheimsLjós til þín

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 27.10.2007 kl. 23:08

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég læt næga KVITT

Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.10.2007 kl. 20:17

6 identicon

Skoðannna bróðir minn og Vinur sá mikli snillingur Bjarki Bjarnason í Hvirfli átti stórleik og lagði drög að öruggum sigri okkar sveitungana.Ekki skemmdi fyrir frábærir leikrænir tilburðir fallegustu söngraddar okkar Íslendinga að mínu mati,hún Diddú okkar og skelegg svör Höskuldar áttu sinn þátt í að jarða eyjarnar.

Við þurfum að fjölmenna í klapplið, Mosfellingar, í næstu beina útsendingu.......áfram Mosfellsbær

Högni Snær

Högni Snær (IP-tala skráð) 28.10.2007 kl. 21:45

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég hélt með Mosó. 

Anna Einarsdóttir, 28.10.2007 kl. 23:09

8 Smámynd: Vilborg

Ég var sko ekkert svekkt yfir úrslitunum, hehehe  Enda er ég líka kölluð AKP hérna

Vilborg, 28.10.2007 kl. 23:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband