Er greind vitsmunalegt fyrirbæri ?

Hugtakið greind hefur löngum verið tengt við vitsmunalega hæfileika, skýra hugsun, skynsemi og rök. Hugtakinu greind fylgir oftar en ekki ákveðið mat á hæfileikum manna og umræða um greind og mælingar á henni vekja oft tilfinningaleg viðbrögð.

Tilfinningagreind ýtir við fólki og vekur mismunandi viðbrögð. Margir telja mikilvægi tilfinninga gömul sannindi, heilbrigða skynsemi og benda á að það hafi aldrei leynt sér að maður sem er hálærður á bókina geti verið algjör rati í mannlegum samskiptum. Það fari heldur ekki alltaf  saman að vera góður í fræðunum og geta miðlað kunnáttu sinni til annarra, né að ganga vel í skóla og starfi síða meir.

Tilfinningagreind er miklir hæfileikar af færni og getu sem hefur áhrif á færni einstaklingsins til að takast á farsælan hátt við kröfur og þrýsting  frá umhverfinu. Upplýsingasamfélag nútímans kalla á breytt viðhorf til þekkingar og færni. Það leitar helst eftir starfsfólki sem býr yfir sjálfsöryggi, frumkvæði og samskiptafærni enda  eru kröfurnar mestar um hæfni í mannlegum samskiptum.

Félagsgreind er hæfileikinn til að eiga góð samskipti við aðra, fá aðra til að líða vel, lesa í líkamsmál annarra og hafa samkennd með tilfinningum annarra. Þeir sem hafa til að bera þróaða félagsgreind eru félagslyndir og eru góðir í því að kenna öðrum. 

Þegar öllu er á botninn hvolft er það aðferðarfræðin  sem  við notum í samskiptum sem vegur hæst.

Heimildir að mestu hafðar uppúr grein Erlu Kristjánsdóttur lektor.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ekki hef ég greind til að skilja þetta.

Sigurður Þór Guðjónsson, 27.10.2007 kl. 01:17

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Með öðrum orðum: fleygum IQ og byrjum að nota EQ sem mælistiku á greind fólks

Gunnar Helgi Eysteinsson, 27.10.2007 kl. 10:10

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Greind er mjög flókið vitsmunalegt og sálfræðilegt fyrirbæri sem ekki er auðvelt að útskýra. Þar kemur uppeldi, þroski, áhrif umhverfis og gerð einstaklingsins við sögu. Hvernig skynjum við t.d. nánasta umhverfi okkar? Er e-ð sem truflar okkur? Eða er e-ð sem við sjálf getum bætt?

Greindin hefur stundum verið mæld. Mælistikan er eðlilega ekki venjulegur tommustokkur eða vog heldur er greindin mæld eftir því hverning einstaklingurinn ber sig að við óvænta upp ákomu. Frægt er í sögunni þegar óþekktarpjakkurinn Gauss reiknaði saman summuna  af fyrstu 100 tölunum á örfáum andartökum. Kennarinn fullorðni stóð allt í einu frammi fyrir snilling sem skynjaði nýja leið að markinu!

Spurning er hvort hæfileiki sem nefndur hefur verið ófreskisgáfur á íslensku sé einnig ein tegund greindar. Fróðlegt væri að fá gagnlegar og uppbyggilegar umræður um þetta efni.

Svo langar mig til að grípa tækifærið og óska Mosdælingunum Bjarka og Dúddú ásamt Höskuldi Þráinssyni til hamingju með sigurinn í spurningakeppninni í sjónvarpinu í gærkveldi! Það vakti ábyggilega kátínu um allt land þegar Dúddí fór á kostum í leiklistinni!

Bestu kveðjur

Guðjón Sigþór Jensson, 27.10.2007 kl. 10:20

4 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Til hamingju með sigurinn í bæjarkeppninni.
Samt bjóst ég við að sjá yður þar ,keppa og sigra fyrir yðar sveiterfélag.

Halldór Sigurðsson, 27.10.2007 kl. 11:46

5 Smámynd: steinimagg

Ég botna ekkert í þessu, best að leggja sig aðeinns og safna kröftum.

steinimagg, 27.10.2007 kl. 12:23

6 Smámynd: Jens Guð

  Ef ég man rétt þá hefur greind verið skipt upp í 6 eða 7 flokka.  Tilfinningagreind er einn flokkurinn.  Félagsgreind annar.  Gott ef sá þriðji snýr ekki að sköpunargreind,  hæfileikanum til að skapa (hvort sem er myndlist,  tónlist eða annað).  Svo man ég ekki restina.  Enda ekki með góða minnisgreind. 

Jens Guð, 28.10.2007 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband