Kæru bloggvinir og bloggarar!!!

Þetta er nú bara þannig að þrátt fyrir að maður reyni svona við og við að vera duglegur að rækta vinahópinn, þá stendur maður sjálfan sig að því oftar en ekki að fara oftast sama hringinn á meðal bloggvina þegar tími gefst til. Rétt eins og kýrnar fara alltaf á sama básinn og við mannfólkið viljum helst alltaf setjast í sömu sætin. 

Í mínum huga er bloggið eitt það merkasta og besta fyrirbæri sem upp hefur komið fyrir íslenska tungu og menningu í langan tíma. Munum bara eftir því að vanda okkur.

Áfram með smjerið og fjerið kæru bloggarar með bestu kveðjum frá Kalla Tomm..  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þú ert ríkur maður að eiga svona flotta bloggvini. Mínir eru ekki sem verstir heldur.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 24.10.2007 kl. 22:45

2 Smámynd: Hlynur Hallsson

Ég er allaveg mjög stoltur yfir því að vera í þessum hópi. Bestu kveðjur kæri vin,

Hlynur Hallsson, 24.10.2007 kl. 22:53

3 Smámynd: Þóra Sigurðardóttir

Góður hópur 

Þóra Sigurðardóttir, 24.10.2007 kl. 23:03

4 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Það er bara  HEIÐUR   að fá að vera með í þessum hópi. Takk fyrir að leyfa mér að vera með.

Kjartan Pálmarsson, 24.10.2007 kl. 23:05

5 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Jamm -- ég hef alvarlega verið að hugsa hvort það sé ekki varhugavert að vera með of marga bloggvini? -- Þó einhver sé ekki á listanum er ekki þar með sagt að maður líti ekki til þeirra líka. Og svo eru sumir á listanum gersamlega óvirkir.

Ætli sé ekki með bloggvini eins og aðra vini: velja þá færri og velja þá vel?

Kveðja

Sigurður Hreiðar, 25.10.2007 kl. 11:05

6 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Jamm -- ég hef alvarlega verið að hugsa hvort það sé ekki varhugavert að vera með of marga bloggvini? -- Þó einhver sé ekki á listanum er ekki þar með sagt að maður líti ekki til þeirra líka. Og svo eru sumir á listanum gersamlega óvirkir. Ætli sé ekki með bloggvini eins og aðra vini: velja þá færri og velja þá vel? Kveðja

Sigurður Hreiðar, 25.10.2007 kl. 11:06

7 Smámynd: Guðmundur Rafnkell Gíslason

Blessaður trommari! Þú stendur þig vel. Við verðum að standa saman forsetarnir... spurning afhverju Óli er ekki með okkur á bloggvinalista:-) Sjáumst á Fjármálaráðstefnunni. Við ættum kannski að stofna forsetaband?

Guðmundur Rafnkell Gíslason, 25.10.2007 kl. 11:25

8 Smámynd: steinimagg

Það er nú frekar fúlt að vera ekki boðið í þennan fína hóp, kannski er maður ekki nóku vel ættaður

steinimagg, 25.10.2007 kl. 13:44

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Hæ Kalli minn. Takk fyrir kveðjuna. Ég segi það sama. er í vandræðum með að komast yfir lestur allra blogvinanna þeir eru orðnir svo margir. En maður reynir að varíera.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.10.2007 kl. 14:51

10 identicon

Takk fyrir mig Kalli  Mig langar til að lesa svo miklu fleiri bloggfærslur en ég kemst yfir. En það þýðir lítið að fást um það, klukkustundirnar í sólarhringnum eru einfaldlega ekki nógu margar. Hafðu það gott

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 17:59

11 Smámynd: Jens Guð

  Kalli,  honum Valda vini okkar er eiginlega ofaukið þarna.  Hann lokaði blogginu sínu í maí eða júní.  Sem var miður því hann er skemmtilegur náungi. 

Jens Guð, 25.10.2007 kl. 18:02

12 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Takk fyrir að vera bloggvinur minn...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 26.10.2007 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband